Fara í efni
Pistlar

Breskur auðjöfur eignast Höfða Lodge

Hótelið verður á Þengilhöfða, steinsnar sunnan við Grenivíkurþorp. Þessi mynd með frétt akureyri.net í nóvember árið 2020.

Breskur fjárfestir, Russ DeLeon, hefur eignast allt hlutafé í Höfða Lodge, fimm stjarna lúxushóteli sem er í byggingu á Þengilhöfða steinsnar sunnan Grenivíkur. Hann átti 49,99% í hótelinu en skíðakapparnir fyrrverandi, Björgvin Björgvinsson og Jóhann Haukur Hafstein, sem áttu 50,01% hafa selt DeLeon hlut sinn.

Vísir greindi frá þessu í gærkvöldi. Þegar tilkynnt var um framkvæmdina haustið 2020 var stefnt að því að hótelið yrði opnað liðlega tveimur árum síðar en það er enn í byggingu.

  • Frétt Vísis í gærkvöldi:

Ross DeLeon eignast Höfða Lodge

Þannig vill til að akureyri.net birti frétt um fyrirhugað hótel sama dag og vefurinn var endurreistur, 13. nóvember árið 2020.

  • Frétt akureyri.net:

Reisa lúxushótel á höfða Þengils mjögsiglandi

Hafþyrnir - Hinn þyrnótti hestaljómi

Sigurður Arnarson skrifar
15. júlí 2026 | kl. 11:30

Hús dagsins: Sigtún; eldra íbúðarhús

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
14. júlí 2026 | kl. 09:00

Þarf sumarið að vera fullkomið?

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
14. júlí 2026 | kl. 06:00

Er hægt að spila fótbolta svona?

Orri Páll Ormarsson skrifar
10. júlí 2026 | kl. 11:00

Vínviður Vínlands hins góða

Sigurður Arnarson skrifar
08. júlí 2026 | kl. 10:00

Kreppuáll, fuglalíf og ástarglóð

Jóhann Árelíuz skrifar
05. júlí 2026 | kl. 06:00