Fara í efni
Íþróttir

Vélsleðakempur tæta og trylla – MYNDIR

Baldvin Gunnarsson sigraði í flokki þeirra bestu - Pro open flokki - bæði á laugardag og sunnudag. Ljósmyndir: Þorgeir Baldursson.

Fyrst tvær umferðir Íslandsmótsins í snjókrossi – snocross – fóru fram í Ólafsfirði um helgina.

Á laugardag var Heliair snocrossið og í gær var keppnin kennd við Skógarböðin; sú umferð var fyrirhuguð á Akureyri um næstu helgi en þar er snjóskortur svo ákveðið var að nota tækifærið og keppa strax aftur í Ólafsfirði.

Akureyringurinn Baldvin Gunnarsson sigraði báða dagana í flokki þeirra bestu, Pro open flokki. Hér að neðan má sjá glæsilega myndaveislu Þorgeirs Baldurssonar frá keppninni í Ólafsfirði.

Úrslitin um helgina urðu sem hér segir:

Heliair snocrossið

Unglingaflokkur:

  • 1. Tómas Karl Sigurðarson
  • 2. Sigurður Bjarnason
  • 3. Skírnir Arnarsson

Sport lite flokkur:

  • 1. Tristan Árni Eiríksson
  • 2. Ívar Helgi Grímsson
  • 3. Patrekur Knutsen

Sport flokkur:

  • 1. Frímann Geir Ingólfsson
  • 2. Gabríel Arnar Guðnason
  • 2. Birgir Ingvason

Pro lite flokkur:

  • 1. Kolbeinn Þór Finnsson
  • 2. Ármann Örn Sigursteinsson
  • 3. Elvar Örn Jóhannsson

Pro open flokkur:

  • 1. Baldvin Gunnarsson
  • 2. Ívar Már Halldórsson
  • 3. Jónas Stefánsson

Skógarbaða snocrossið sunnudag

Unglingaflokkur:

  • 1. Árni Helgason
  • 2. Tómas Karl Sigurðarson
  • 3. Sigurður Bjarnason

Sport lite flokkur:

  • 1. Ívan Geir Heiðmarsson
  • 2. Ívar Helgi Grímsson
  • 3. Trausti Dagbjartsson

Sport flokkur:

  • 1. Frímann Geir Ingólfsson
  • 2. Viðar Freyr Hafþórsson
  • 3. Ingólfur Atli Ingason

Pro lite flokkur:

  • 1. Alex Þór Einarsson
  • 2. Ármann Örn Sigursteinsson
  • 3. Kolbeinn Þór Finnsson

Pro open flokkur:

  • 1. Baldvin Gunnarsson
  • 2. Ívar Már Halldórsson
  • 3. Jónas Stefánsson

Vélsleðakappar Íslands reyna alls fimm sinnum með sér í baráttu um Íslandsmeistaratitil. Næsta keppni verður í Mývatnssveit 11. mars, því næst keppa þeir á Sauðárkróki 25. mars og loks á Egilsstöðum 15. apríl.