Fara í efni
Umræðan

Um Hlíðarskóla og jafnræði landshluta

Fyrir skömmu heimsótti ég Hlíðarskóla ásamt frambjóðendum Viðreisnar á Akureyri. Þar fengum við að kynnast því flotta og mikilvæga starfi sem unnið er fyrir börn sem þurfa meiri stuðning um tíma en aðrir grunnskólar geta veitt. Það fór ekki á milli mála að Hlíðarskóli skiptir miklu máli, bæði fyrir börnin sjálf, fjölskyldur þeirra og samfélagið í heild. Það skiptir því máli að bæði sveitarfélag og ríki standi þétt við bakið á skólanum.

Í Viðreisn leggjum við mikla áherslu á að öll börn fái raunveruleg tækifæri, að börn eigi ekki heima á biðlistum og að kerfin tali betur saman þegar barn þarf aðstoð. Við höfum lagt áherslu á stöðu barna í viðkvæmri stöðu og málefni barna með fjölþættan vanda. Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar og formaður þverpólitískrar nefndar um úrbætur í málefnum barna, hefur verið ötull við að halda þessum málum á lofti og hefur bent á að alvarlegan vanda barna megi bara ekki einfalda niður í hegðunarvanda, heldur verði að nálgast hann sem velferðar- og heilbrigðismál líka.

Þess vegna skiptir Hlíðarskóli máli fyrir okkur í Viðreisn. Hann er mikilvægt úrræði fyrir börn sem þurfa sérhæfðan stuðning til að ná aftur fótfestu og komast betur áfram, bæði í námi og lífi.

Brúarskóli í Reykjavík er sambærilegt úrræði og Hlíðarskóli á Akureyri. Munurinn er hins vegar sá að Reykjavíkurborg nýtur stuðnings vegna reksturs sérskóla og sérdeilda með greiðslum úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga á grundvelli sérstaks samnings. Akureyri hefur ekki notið sambærilegs stuðnings vegna Hlíðarskóla. Það er erfitt að sjá að slíkt sé málefnalegt. Ef svona er staðið að málum í Reykjavík, en ekki á Akureyri, þá blasir við augljós spurning um jafnræði.

Af þessum sökum hef ég sent inn skriflega fyrirspurn til mennta- og barnamálaráðherra, með það að markmiði að draga fram hver stuðningur ríkisins við Reykjavíkurborg hefur verið vegna reksturs Brúarskóla og hvort ráðherra telji koma til greina að gera sambærilegan samning við Akureyrarbæ vegna reksturs Hlíðarskóla.

Við í Viðreisn viljum að börn fái þann stuðning sem þau þurfa, þegar þau þurfa á honum að halda, og að sveitarfélög utan höfuðborgarsvæðisins beri ekki skarðan hlut frá borði. Hlíðarskóli er of mikilvægur til þess að ríkisvaldið láti eins og þetta sé eingöngu mál Akureyrarbæjar. Ríkið þarf að svara því skýrt hvort það telji eðlilegt að Reykjavík og Akureyri búi við ólíkt fyrirkomulag þegar kemur að jafn mikilvægri þjónustu við börn í viðkvæmri stöðu.

Ingvar Þóroddsson er þingmaður Viðreisnar í Norðausturkjördæmi

Að loknum kosningum - takk fyrir okkur!

Sindri S. Kristjánsson skrifar
23. maí 2026 | kl. 12:00

Opið bréf til verðandi bæjarstjórnar

Erla Hrönn Unnsteinsdóttir skrifar
21. maí 2026 | kl. 10:10

Söguleg aftaka Hóla í Hjaltadal

Guðni Ágústsson skrifar
20. maí 2026 | kl. 21:00

Samstaða og bjartsýni á landsfundi LEB

Björn Snæbjörnsson skrifar
19. maí 2026 | kl. 15:00

Akureyri tengd til framtíðar

Erik Figueras Torras skrifar
18. maí 2026 | kl. 06:00

Til hamingju með daginn!

Sindri S. Kristjánsson, Hanna Dóra Markúsdóttir og Sigrún Steinarsdóttir skrifa
16. maí 2026 | kl. 12:00