Steingrímur Björnsson
Elsku afi Steini.
Þakklæti er mér efst í huga. Ég er þakklát fyrir allar stundirnar, minningarnar og knúsin. Ég er þakklát fyrir að hafa átt besta afa í öllum heiminum. Ég er þakklát fyrir að Móeiður Harpa fékk að leika við þig. Afi Steini var nefnilega enginn venjulegur afi. Þolinmæðin, stríðnin, leikgleðin og hlýjan var engu lík. Afa fannst fátt skemmtilegra en að leika við barnabörnin sín og síðan barnabarnabörnin. Afi gat verið með með manni í leik í marga klukkutíma. Ég man eftir degi þar sem við fórum í mömmó um leið og ég vaknaði og hættum ekki að leika fyrr en ég fór að sofa.
Stundirnar sem við áttum á Völlum eru mér dýrmætar. Afi gat endalaust brasað með okkur barnabörnunum. Fara í fjöruna að sækja rekavið, kenna okkur að stjórna mótornum á bátnum, sigla með okkur í hringi á vatninu, leyfa okkur að spreyta okkur með veiðifærin og vinna okkur í kubb. Það var alltaf gott að koma svo heim í hús og njóta þess að borða saman ömmuvöfflur. Afi blandaði sér oft „drullumall“ en það var kaffi og mikið af mjólkurkexi, þá var gott að setjast hjá honum og fá að stelast í nokkra bita. Mjólkurkex og kaffi mun alltaf minna mig á afa Steina.
Þrátt fyrir að vera mikill stríðnispúki og stutt í galsann þá bjó afi yfir stóískri ró. Hann var alltaf með opinn faðm og gat róað þandar taugar hvenær sem er. Það er ekki hægt að minnast afa Steina án þess að nefna fótanuddið hans en það var nóg að setja fæturna í kjöltuna á honum og þá hófst hann handa við að nudda tásurnar. Afi skreið iðulega til fóta á kvöldin og nuddaði tærnar á ömmu og þegar maður gisti hjá þeim þá fékk maður að sjálfsögðu fótanudd fyrir háttinn.
Elsku afi minn, það er svo skrítið að hafa þig ekki lengur hjá mér og ég mun alltaf sakna þín. Ég er spennt að segja Móeiði Hörpu sögur af þér og halda minningu þinni á lofti. Takk fyrir allt afi.
Gunnur Vignisdóttir
Steingrímur Björnsson
Steingrímur Björnsson – lífshlaupið
Eiríkur Bóasson
Eiríkur Bóasson