Steingrímur Björnsson
Á haustmánuðum 1992 hitti ég í fyrsta sinn Steingrím Björnsson, sem verðandi tengdaföður, í Byggðaveginum. Auðvitað vissi ég hver maðurinn var því hann var þekktur í bænum sem fyrrverandi fótboltamaður og verslunarmaður lengst af hjá KEA. Þegar ég tók í hönd hans og kynnti mig var handtakið þétt og hristi hann vel og sagði; „já svo þú er bakarinn sem verið er að tala um“. Leiðrétti ég hann og sagðist nú aldrei hafa unnið við þá grein en veitingamaður væri ég. Leist honum vel á það að ég gæti nú kannski þá eldað eitthvað gott og glotti við. Þessum eðalmanni hef ég síðan þá verið samferða í gegnum lífið allt þangað til núna í síðustu viku þegar hann hélt á vit feðra sinna eftir erfið veikindi síðustu misseri. Þegar við Harpa keyptum húsið okkar í Helgamagrastrætinu ári síðar, leist honum vel á en sagði jafnframt að ekki yrði flutt inn fyrr en hann væri búinn að draga nýtt rafmagn í allt húsið. Gamli rafvirkjameistarinn gerði það síðan auðvitað af öryggi og með sinni stóísku ró. Það var svolítið skondið að horfa á hann og pabba minn vinna saman þessar daga, annar stundum ansi rólegur meðan hinn var kannski svona full æstur. Við Harpa og dætur okkar höfum nefnilega notið þeirra forréttinda að foreldrar okkar eru bestu vinir.
Saman spiluðu þeir með ÍBA á sínum tíma, Steini Þórsari og pabbi KA maður. Talandi um fótbolta þá þótti Steini afburða í þeim efnum, fyrsti landsliðsmaður Þórs, hann spilaði fjóra landsleiki og skoraði 1 mark á móti Hollandi. Hann sagði stundum söguna af því þegar hann fór til reynslu til Kölnar með Jóni heitnum Stefánssyni. Heim kom hann með samningstilboð uppá vasann 17 ára guttinn en mamma hans sagði NEI „þú þarft að gera eitthvað almennilegt við líf þitt drengur.“ Á Þessum tíma var bara einn Íslendingur atvinnumaður í fótbolta, Albert Guðmundsson. Steini meiddist illa snemma á sínum ferli og náði aldrei fyrri styrk eftir það. Hann fór síðar út í þjálfun, dómgæslu og ótalin eru ómæld sjálboðaliðavinna fyrir sitt félag til fjölda ára.
Það er eiginlega ekki hægt að minnast Steina nema að nefna líka Gunni eftirlifandi eiginkonu hans, samrýmd og ástfangin gegnum allan lífsins ólgusjó, gift í 65 ár! Alla tíð svo hjálpleg og elskuleg að leitun er að öðru eins. Maður þurfti hreinlega að passa sig um að biðja þau ekki of oft um t.d. pössun, svarið var alltaf já og síðan komst maður kannski að því að þau hefðu sleppt því að fara á tónleika til að geta passað! Já Steini var einstakur barnakall, ég er eiginlega viss um að hann hefði verið leikskólakennari í dag. Sem dæmi veit ég ekki um marga afa sem eru í „mömmó“ með afa stelpunum sínum í fjóra tíma meðan ManUtd er í beinni útsendingu en það gerði afi Steini. Enda er það svo að öll hans barnabörn og barnabörn syrgja og sakna mjög afa/langafa Steina, hann átti sérstakt samband við þau öll með sinni góðmennsku, næmni, endalausri þolinmæði og já, stundum stríðni. Börn löðuðust að honum og hann laðaðist að börnum.
Minningarnar streyma fram um samveru á jólum, áramótum, í útlöndum, á sumrin þegar þau dvöldu regluglega hjá okkur, en hvað ekki síst í sveitinni á Völlum í Þistilfirði, sælureit fjölskyldurnnar sem okkur öllum er svo kær. Þar var haldið uppá nokkur stór afmæli Steina með stæl, en þegar hann var áttæður var haldið á æskustöðvarnar í Grímsey, mjög eftirminnilega.
Ég kveð með mikilli eftirsjá, virðingu og þakklæti einstaklega góðan og hlýjan mann sem vildi öllum vel. Ég get ekki þakkað almættinu nóg að hafa fengið hann sem tengdaföður.
Blessuð sé minning Steingríms Inga Björnssonar.
Vignir Már Þormóðsson
Steingrímur Björnsson
Steingrímur Björnsson – lífshlaupið
Eiríkur Bóasson
Eiríkur Bóasson