Fara í efni
Umræðan

Spurt er: Er hægt að gera meira fyrir atvinnulífið?

Já, það er nauðsynlegt að gera meira og gera það hraðar. Það er stundum allt í lagi að bíða eftir góðum hlutum en það er betra setja sér markmið og sækja fram.

Þurfum við að stækka atvinnulífið? Já.

Við viljum að atvinnulífið sé eins fjölbreytt og það getur verið. Ástæðan er einföld, hér eiga að vera næg tækifæri fyrir alla. Við þurfum þess vegna að markaðssetja styrkleika sveitarfélagsins, til þess að sækja hingað fólk, fyrirtæki og fjárfestingar sem geta styrkt svæðið. Til þess þurfum við líka að átta okkur á því hvað vantar í bæinn (innskot: aukið verk- og tækninám) og hvar vöxtur getur orðið.

Bæjarfélag sem vex ekki og þróast, það staðnar.

Snýst þetta þá bara um vöxt? Nei.

Vöxtur er ágætur í sjálfu sér en hann er samt til lítils ef hann bætir ekki kjör bæjarbúa. Þess vegna eigum við að skipuleggja okkur, búa til framtíðarsýn og vinna eftir henni. Ef markmiðin eru skýr þá er hægt að tryggja að vöxtur skili sér í betri lífsgæðum.

En er nóg að hugsa um nýjabrumið? Nei.

Það er ekki síður mikilvægt að halda í rótgróin fyrirtæki. Það eru rótgrónu fyrirtækin okkar sem þekkja best mannauðinn sem býr hérna og tækifærin sem eru nú þegar til staðar. Ávinningurinn verður enginn ef við gleymum þeim. Þess vegna verður sveitarfélagið að efla samstarf sitt við fyrirtækin. Við verðum að skilja þarfir atvinnulífsins og berjast fyrir sameiginlegum hagsmunum okkar.

Er eitthvað fleira sem við þurfum að hugsa um? Já.

Við þurfum líka að hugsa um hvernig fyrirtækin okkar geta þróast, vaxið og staðið að nýsköpun. Við þurfum að hjálpa þeim að efla sinn mannauð, við þurfum að fjárfesta í innviðum og við verðum að gera bæinn aðlaðandi fyrir áframhaldandi starfsemi.

Eitthvað fleira? Já.

XB. Fyrir bæ sem vex af skynsemi.

Gunnar Már Gunnarsson er bæjarfulltrúi Framsóknar á Akureyri.

Við ætlum að leggja okkar af mörkum

Óðinn Svan Óðinsson, Sunna Hlín Jóhannesdóttir og Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifa
25. júní 2026 | kl. 17:00

Mikilvægur áfangi fyrir eldri ökumenn

Björn Snæbjörnsson skrifar
25. júní 2026 | kl. 10:45

Framtíð menntastofnana á Akureyri varðar okkur öll

Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar
23. júní 2026 | kl. 11:00

Framtíð heilbrigðisþjónustu á Akureyri er í sjónmáli

Sindri S. Kristjánsson skrifar
20. júní 2026 | kl. 09:00

Fullveldi

Helgi Jónsson skrifar
18. júní 2026 | kl. 16:30

Mikilvægur áfangi fyrir Norðurland og landið allt

Heimir Örn Árnason skrifar
18. júní 2026 | kl. 06:00