Fara í efni
Umræðan

Siglingahús Nökkva – klárum verkefnið!

Haustið 2020 hófst bygging á fyrri áfanga nýs húss siglingaklúbbsins Nökkva, framkvæmd sem hefur haft mjög jákvæð áhrif á allt starf félagsins og markað tímamót – jafnvel byltingu – í aðstöðu og starfsemi Nökkva. Sá áfangi fól í sér búnings- og starfsmannaaðstöðu, geymslurými og verkstæði. Framkvæmdir gengu vel og var þessi hluti hússins formlega tekinn í notkun árið eftir.

Eftir á að ljúka seinni áfanganum, sem mun innihalda kennslu- og félagsaðstöðu, um 150 fermetra að stærð, auk frágangs bílastæða á svæðinu. Á sínum tíma var ákveðið að skipta framkvæmdinni í tvo áfanga, m.a. vegna þeirrar óvissu sem ríkti í samfélaginu í kjölfar covid-faraldursins.

Til að mæta þörfum félagsins á meðan hefur verið útbúin bráðabirgðaaðstaða til kennslu og félagsstarfs á efri hæð geymsluskemmu. Aðgengi að þeirri hæð er um stálstiga og því takmarkað, sérstaklega fyrir þá sem eiga erfiðara með gang. Aðstaðan uppfyllir því ekki þær kröfur sem gerðar eru í dag um jafnt aðgengi fyrir alla.

Með fullbúnu húsi skapast enn ný tækifæri. Öll helsta starfsemi félagsins færist á jarðhæð, aðgengi batnar verulega og aðstaðan verður í samræmi við nútímakröfur. Þá myndast grundvöllur fyrir aukna starfsemi og sterkari tekjugrunn undir rekstur hússins og siglingaklúbbsins í heild. Jafnframt myndi útiaðstaða batna til muna, skjól aukast og möguleikar skapast til að stækka geymslurými félagsins. Í dag er hluti búnaðar enn geymdur utandyra eða í gám á svæðinu.

Ekki er um mikið verk að ræða til að ljúka framkvæmdinni. Jarðvegur er tilbúinn, lagnir lagðar að húsinu og grunnhönnun liggur fyrir. Skilyrði eru því góð til að klára það sem hafið var. Hjá Nökkva teljum við tímabært að stíga síðustu skrefin og ljúka verkinu þannig að hér rísi fullbúið mannvirki til framtíðar.

Tryggvi J. Heimisson er formaður siglingaklúbbsins Nökkva

Áfram menning og listir, ekki bara á tyllidögum!

María Pálsdóttir skrifar
15. apríl 2026 | kl. 11:11

Gamall maður fer í framboð

Ragnar Sverrisson skrifar
15. apríl 2026 | kl. 08:45

Lóan er komin og sumarkvíðinn líka

Karen Sigurbjörnsdóttir skrifar
14. apríl 2026 | kl. 21:00

Hvað ætlar Akureyri að verða þegar hún verður stór?

Sindri S. Kristjánsson skrifar
14. apríl 2026 | kl. 09:00

Fyrir enn betri Akureyrarbæ

Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar
14. apríl 2026 | kl. 08:00

Er (ó)mögulegt að byggja ódýrt?

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
13. apríl 2026 | kl. 14:30