Safaríkar nýjungar á Glerártorgi
Það hefur heldur betur bæst í matarflóruna á Glerártorgi á Akureyri að undanförnu. Tveir nýir matsölustaðir, The Codfather og Smash Amigos, hafa opnað í Iðunni mathöll og eru veitingastaðirnir í mathöllinni þar með orðnir fimm talsins. Þá hefur kaffihúsið The Coffee Corner opnað í hinum enda verslunarmiðstöðvarinnar.
The Codfather er nýjasti staðurinn í Iðunni mathöll en þar eru fiskréttir í aðalhlutverki. Á matseðlinum má meðal annars finna fish and chips (fisk og franskar), fiskitaco, humartaco og humarloku sem hefur þegar slegið í gegn sunnan heiða. Hlynur Friðfinnsson, framkvæmdastjóri og einn eigenda The Codfather, segir hugmyndina að staðnum hafa kviknað þegar eigendurnir keyptu matarvagn árið 2025 og hófu að selja fiskrétti á Selfossi. Síðan hefur vagninn ferðast víða um land og hafa viðtökurnar verið góðar. Að sögn Hlyns kom tækifærið til að opna á Akureyri upp þegar haft var samband við eigendurna vegna lauss pláss í mathöllinni. Það hafi meðal annars ráðið úrslitum að ekki væri mikið úrval veitingastaða á Akureyri sem sérhæfðu sig í fiskréttum af þessu tagi. Akureyringurinn Leví Ellertsen verður rekstrarstjóri staðarins en Andri Björn Jónsson, yfirkokkur fyrirtækisins, er höfundur uppskriftanna. Sömu réttir verða í boði á Glerártorgi og í matarvagninum sem verður áfram á ferðinni yfir sumartímann.

Fjölbreyttara úrval er nú að finna í mathöllinni á Glerártorgi eftir að tveir nýir staðir bættust við flóruna þar; The Codfather sem sérhæfir sig í fiskiréttum og Smash Amigos sem bjóða m.a. upp á franskt taco.
Extra djúsí borgarar og frönsk tacos
Veitingastaðurinn Smash Amigos opnaði í Iðunni mathöll í september og hefur að sögn eigenda farið afar vel af stað. Þar eru svokallaðir smashborgarar í aðalhlutverki, auk franskra tacos sem hafa notið vaxandi vinsælda á samfélagsmiðlum. Guðbjörg Sandra Gunnarsdóttir rekur staðinn ásamt eiginmanni sínum, Ali Hyder Malik,en þau standa einnig að veitingastöðunum Malik í Skipagötu og Taste við Ráðhústorg.

Hjónin Guðbjörg og Ali eru með þrjá mismunandi veitingastaði á Akureyri. Smash Amigos í mathöllinni er sá nýjasti.
Að sögn Guðbjargar eru smashborgararnir frábrugðnir hefðbundnum hamborgurum að því leyti að kjötið er pressað niður á heita steikarhellu. Segir hún að í þá sé notað aðeins feitara og vandaðra kjöt en í hefðbundna borgara sem gerir þá sérstaklega safaríka. Frönsku tacos-réttirnir eru einnig nokkuð frábrugðnir þeim mexíkósku. Um er að ræða stórt vefjubrauð sem fyllt er meðal annars með frönskum kartöflum, stökkum kjúklingi eða hamborgarakjöti og síðan grillað þar til það verður stökkt að utan. Guðbjörg segir að þrátt fyrir að hjónin reki nú þrjá veitingastaði á Akureyri sé lögð áhersla á að hver þeirra hafi sína sérstöðu. Í tiltölulega litlu samfélagi sé mikilvægt að bjóða upp á fjölbreytni og eitthvað nýtt. Viðtökurnar við Smash Amigos hafa verið framar vonum að hennar sögn. Bæði sé mikið að gera í mathöllinni og pantanir í gegnum Wolt gangi vel.

Fatty smash borgarinn sem er á matseðlinum hjá Smash Amigos.
Kaffihús aftur á Glerártorgi
Það eru ekki aðeins nýir veitingastaðir sem hafa bæst við á Glerártorgi því kaffihúsið Coffee Corner hefur einnig opnað í hinum enda verslunarmiðstöðvarinnar. Að kaffihúsinu stendur hin pólska Joanna Kotorayne Rogulska ásamt eiginmanni sínum Kamil. Þar verður boðið upp á fjölbreytta kaffidrykki, kökur og samlokur. Opnunin ætti að gleðja kaffihúsaunnendur enda er töluvert um liðið síðan kaffihús var síðast starfrækt á Glerártorgi en húsnæðið hefur staðið autt frá því að Maikai hætti þar starfsemi.

Enn fleiri valkostir eru komnir á Glerártorg með þremur nýjum matsölustöðum. Nú hafa gestir til að mynda val um fisk og franskar, djúsí borgara eða einfaldlega kaffibolla og kökusneið hjá Coffee Corner.

The Codfather byrjaði sem matarvagn á Selfossi en fyrirtækið er nú búið að opna útibú á Glerártorgi. Á myndinni eru Leví Ellertsen, rekstrarstjóri The Codfather fyrir norðan, Hlynur Friðfinnsson framkvæmdastjóri The Codfather og Andri Björn Jónsson, yfirkokkur fyrirtækisins