Fara í efni
Mannlíf

Serena býður upp á ítalskan kvöldverð

Veitingastaðurinn Orðakaffi á Amtsbókasafninu var í uppáhaldi hjá mörgum á sínum tíma. Serena Pedrana sem rak staðinn segist oft hafa  fengið að heyra hve fólk sakni hádegisverðanna og óski þess að staðurinn opni aftur en þótt af því verði ekki langaði hana til gefa áhugasömum tækifæri til að upplifa Orðakaffis stemninguna á ný og blæs til kvöldverðar á Hótel Akureyri við Hafnarstræti um næstu helgi, bæði föstudags- og laugardagskvöld.

 

„Ég og Radka, sem vann með mér á Orðakaffi í þrjú ár, ætlum að elda saman ítalskan þriggja rétta kvöldverð með nokkrum af okkar uppáhaldsréttum: caprese-salati, heimabökuðu focaccia-brauði, okkar vinsælu grænmetislasagna með sveppum, ferskum salötum – og að sjálfsögðu tiramisu, sem var einn af þeim eftirréttum sem oftast var beðið um á Orðakaffi,“ segir Serena við akureyri.net.

„Allt verður heimagert, alveg eins og við vorum vanar að gera á Orðakaffi, og útbúið af alúð og með mikilli ást á matnum,“ segir Serena.

„Við erum báðar ótrúlega spenntar fyrir því að vinna saman aftur. Það verður mjög gaman að standa aftur hlið við hlið í eldhúsinu, þó ekki sé nema þessi tvö kvöld. Í gegnum árin höfum við oft fengið að heyra hvað fólk sakni hádegisverðanna á Orðakaffi og óski þess að staðurinn opni aftur. Okkur langar því að gefa fólki tækifæri til að upplifa smá af þessari stemningu á ný, þó aðeins um eina helgi.“

  • Kvöldverðurinn verður föstudaginn 23. og laugardaginn 24. október, frá kl. 18:00, í salnum Lóni á Hótel Akureyri, Hafnarstræti 75.
  • Það verða 80 sæti í boði hvort kvöld og hægt er að bóka borð fyrirfram hjá Serenu í síma 6614638.