Fara í efni
Umræðan

Öryggi í fyrirrúmi - sameinumst öll um nýja Slökkvistöð á Akureyri

Frábært skref var tekið á líðandi kjörtímabili þegar lóð var tekin frá fyrir Slökkvilið Akureyrar við Súluveg. Nú er lag að öll framboð í Akureyrarbæ sameinist um þessa mikilvægu framkvæmd.

Lögbundin hlutverk sveitarfélaga eru mörg, eitt af þeim er rekstur slökkviliðs. Slökkvilið Akureyrar er eina atvinnuslökkviliðið á Norðurlandi, það sinnir einnig sjúkraflutningum og sjúkraflugi með samningi við ríkið. Núverandi slökkvistöð er komin til ára sinna, slökkviliðið hefur ekki viðunandi æfingaaðstöðu og viðhaldskostnaður á húsnæðinu er mikill. Eitthvað af búnaði er úr sér genginn, þó hefur verið bætt úr á undanförnum árum, en betur má ef duga skal.

Akureyri hefur vaxið og hlutverk bæjarins sem þjónustumiðstöð fyrir stórt svæði er skýrt. Svæðisborgin Akureyri, hefur skýrt ábyrgðahlutverk gagnvart íbúum sínum sem og íbúum sveitarfélaga í kring. Við þurfum skýra framtíðarsýn, ný slökkvistöð er nauðsynleg framkvæmd sem styrkir öryggi og varnir á svæðinu og styður við framlínufólkið okkar í sínum mikilvægu störfum.

Ég vona að nýrri bæjarstjórn beri gæfa til að forgangsraða þessari mikilvægu framkvæmd í fyrstu fjárhagsáætlun sinni og ný slökkvistöð rísi við Súluveg innan fárra ára. Við í VG munum berjast fyrir því og vonum að önnur framboð taki undir.

Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir er oddviti Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs á Akureyri.

Brú yfir byggðaföllin eða mjaltavél Icelandair?

Þóroddur Bjarnason skrifar
26. október 2026 | kl. 17:30

Loftbrúin má ekki missa flugið

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. október 2026 | kl. 17:15

Hvað gerist í síðari hálfleik? 

Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar
19. október 2026 | kl. 16:30

Indverskur matur og kvíðaspurningin

Inga Dagný Eydal skrifar
10. október 2026 | kl. 06:00

Réttlát kjördæmaskipan og ofríki stærðfræðinganna

Þóroddur Bjarnason skrifar
07. október 2026 | kl. 15:00

Mikilvægi endurhæfingar í hvetjandi og náttúrulegu umhverfi

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
06. október 2026 | kl. 13:00