Fara í efni
Umræðan

Öflugt atvinnulíf þarf gott aðgengi að lóðum

Meirihluti Framsóknar, Sjálfstæðisflokks og L-lista lagði ríka áherslu á atvinnumál í málefnasamningi sínum og hluti af því er að tryggja nægt framboð atvinnulóða.

Við upphaf kjörtímabilsins voru aðeins tvær atvinnulóðir skráðar lausar. Nú hafa sex lóðir til viðbótar verið auglýstar og jafnframt hefur verið samþykkt að hefja skipulagningu fleiri lóða í haust.

Markmiðið er skýrt: Við viljum að atvinnulóðir séu eins og kostur er „hilluvara“ fyrir fyrirtæki sem vilja fjárfesta og skapa störf á Akureyri. Jafnframt viljum við hafa sveigjanleika í skipulagi og geta brugðist við ólíkum þörfum atvinnulífsins.

Þær sex lóðir sem nú eru auglýstar eru við Sjafnargötu og liggja þrjár þeirra að þjóðvegi 1, við eina helstu innkomuna í bæinn. Þess vegna leggjum við sérstaka áherslu á að þar verði hreinleg starfsemi sem sómir sér vel á þessum áberandi stað.

Með þessu erum við að stíga mikilvæg skref í að skapa betri skilyrði fyrir atvinnuuppbyggingu og tryggja að Akureyrarbær sé tilbúinn þegar ný tækifæri gefast.

Linkur á auglýsinguna:

https://www.akureyri.is/skipulags-og-byggingarmal/skipulag-i-auglysingu/sjafnargata-5-15-auglysing-loda

Sunna Hlín Jóhannesdóttir er oddviti Framsóknar og formaður skipulagsráðs

Þegar hækkanir eru auglýstar sem lækkanir

Páll Kristjánsson skrifar
25. nóvember 2026 | kl. 10:00

Talaðu niður atvinnugreinina, hækkaðu svo skatta

Gunnar Már Gunnarsson skrifar
23. nóvember 2026 | kl. 14:15

Ingvexit?: Þegar þingmenn gleyma kjósendum sínum

Axel Björnsson skrifar
18. nóvember 2026 | kl. 11:45

Við eigum að vera við stýrið!

Svava Björk Ólafsdóttir skrifar
18. nóvember 2026 | kl. 11:15

Erum við ekki í sama liði?

Þorleifur Ananíasson skrifar
16. nóvember 2026 | kl. 06:00

Tíu milljarða halli

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
15. nóvember 2026 | kl. 11:45