Nokkur orð um þjónustu Akureyrarbæjar við eldra fólk
Sem einn þriggja fulltrúa Félags eldri borgara (EBAK) í öldungaráði Akureyrarbæjar hef ég undanfarin fjögur ár kynnst málefnum eldra fólks einnig innan „kerfisins“.
Hópur eldra fólks stækkar hlutfallslega meira en aðrir aldurshópar á Íslandi. Innan hópsins eru ólíkir einstaklingar með mismunandi þarfir en flestir sem lifa langa æfi þurfa á þjónustu og stuðningi samfélagsins að halda á einhverjum tíma lífsins. Íbúar á Akureyri voru í fyrra samtals 20.050 þar af 3.032 67 ára og eldri, hlutfall eldri árganga Akureyringa er um 10% hærra en landsmeðaltal. Það er því augljóst að bæjaryfirvöld þurfa á ábyrgan hátt að hugsa til framtíðar hvað varðar þjónustu við þennan sístækkandi hóp bæjarbúa.
Stórþing
Í maí í fyrra stóð bærinn fyrir Stórþingi eldri borgara á Akureyri í Hofi. Fundurinn fór fram í hópavinnu þar sem farið var yfir ótal atriði varðandi málefni eldra fólks, beðið um mat fólks á fjölbreyttri þjónustu bæjarins og tillögur um hvað betur mætti gera. Áberandi var að margir voru ekki með á hreinu hvaða þjónusta heyrir undir sveitarfélagið annars vegar og ríkisstofnanir hins vegar. Þrátt fyrir að þátttaka á þinginu hefði mátt vera meiri tókst það með ágætum margar ábendingar og hugmyndir komu fram. Nauðsynlegt að endurtaka reglulega sambærilega fundi til að fá fram skoðanir eldra fólks og hugmyndir um þeirra eigin málefni innan sveitarfélagsins.
Aðgerðaráætlun eldra fólks á Akureyri 2025-2030
Bæjarráð Akureyrar samþykkti nýja aðgerðaráætlun í nóvember í fyrra. Fulltrúar EBAK komu að vinnunni, sem byggði á fyrri áætlun, niðurstöðum frá stórþinginu ásamt nýjum hugmyndum. Áætlunin fjallar um 9 eftirfarandi liði.
Heilsutengd fræðsla í félagsmiðstöðunum og víðar
Fjallað er um nauðsyn fræðsluerinda fyrir eldra fólk um bæði andlega og líkamlega heilsu. Heilsurækt og hreyfing er nauðsynleg alla æfi og alveg ljóst að heilsurækt er mikilvæg forvörn þegar árin færast yfir og heilsan fer að bila. Eldra fólk þarf að hafa val um hreyfingu við hæfi hvers og eins og fá upplýsingar um hvað er í boði í bænum. Fyrir samfélagið er mikilvægt að styðja við hvers konar forvarnir og beinlínis sparnaður að virkja eldra fólk andlega og líkamlega svo dragi úr þörf á ýmis konar stuðningsþjónustu.
Verkefnið Virk efri ár, sem er á vegum bæjarins hefur vaxið og dafnað undandarin ár og sífellt bætast fleiri valkostir við dagskrána.
Félagsmiðstöðvarnar þurfa að vera í samstarfi við HSN, Háskólann á Akureyri og SAK og sjálfstætt starfandi aðila um heilsutengda fræðslu, auglýsa vel og gera sem flestum kleift að nýta sér hana.
Upplýsingabæklingur
Gefin verður út bæklingur með sem mestum upplýsingum um þjónustu bæjarins og annarra opinberra aðila, hvar og hvernig á að nálgast og sækja um. Allt á einum stað. Bæklingnum yrði sendur til íbúa 67 ára og eldri og yrði einnig á heimasíðu bæjarins.
Húsnæðismál fyrir félagsstarf eldri borgara
Ljóst er að núverandi aðstaða í félagsmiðstöðvunum er allt of lítil og að mörgu leyti óhentug. Á þessu ári eru á áætlaðar 30 milljónir til bættrar aðstöðu í Sölku, einnig eru framundan breytingar á starfsemi bæjarins í Bugðusíðu sem kæmu félagsstarfinu í Birtu til góða.
Námskeið í tölvunotkun og snjalltækjum
Mikil eftirspurn er eftir slíkum námskeiðum og aðstoð við glímuna við snjalltækin. Haldin verði stærri og minni námskeið í samstarfi við Símey, framhaldsskólana og aðra fræðslustarfsemi.
Matur í félagsmiðstöðvunum
Frá hausti 2026 verði boðið upp á næringarríkan mat í hádeginu á hverjum virkum degi í Birtu og Sölku.
Nú er hádegismatur fjóra daga í viku í hvorri félagsmiðstöð. Verðlagning þarf að vera í hófi.
Samgöngur efla þátttöku á viðburði
Leita leiða til að auðvelda fólki að komast á þá viðburði/námskeið sem í boði eru, í samstarfi við strætó, ferliþjónustuna og samninga við leigubíla.
Stuðningsþjónusta/heimaþjónusta/heimahjúkrun
Stuðningsþjónusta (heimaþjónusta) er rekin af Akureyrarbæ en heimahjúkrun af ríkinu (HSN). Áhersla er lögð á að fólk geti búið sem lengst á eigin heimili, eldra fólki fjölgar, þjónustan fer vaxandi og breytist m.a. með tækninýjungum. Nauðsynlegt er að efla samstarf þjónustuaðilanna og framkvæma reglubundnar þjónustukannanir. Allir eiga að geta fengið þá aðstoð sem er þeir þurfa.
Þjónustukannanir eru nauðsynlegar til að fylgjast með áhrifum breytinga sem verða á þjónustunni.
Húsnæðismál eldri borgara. Skipulags- og byggingamál
Tryggja þarf nauðsynlegt framboð lóða fyrir íbúðir fyrir eldra fólk víðsvegar um bæinn. EBAK hefur undanfarið lagt mikla vinnu í húsnæðismálin, gert kannanir á vilja félagsmanna sem nú eru yfir 3.000 (60 ára og eldri). Samvinnu bæjarins við EBAK um uppbyggingu íbúða fyrir eldra fólk þarf að tryggja.
Félagsleg einangrun
Einmanaleiki og félagsleg einangrun eru vandamál sem hafa áhrif á heilsu og vellíðan. Félagsleg tengsl hafa tilhneigingu til að breytast með aldrinum og hættan á einangrun eykst meðal eldra fólks. Setja þarf fram hugmyndir og leiðir til að rjúfa slíka einangrun. Stuðningsþjónustan, heimahjúkrun og félagasamtök sem stundað hafa t.d. vinaheimsóknir þekkja vandann en persónuvernd getur hamlað inngripi. Félagsmiðstöðvarnar Birta og Salka eru með vinavikur en þá eru fastagestir hvattir til að koma með vin með sér sem ekki hefur áður nýtt sér starfsemina sem þar fer fram.
Margir liðir áætlunarinnar eru nú þegar í góðri vinnslu hjá starfsfólki og stofnunum bæjarins en það sem mér finnst mest um vert er að starfshópurinn sem vann aðgerðaráætlunina á að endurmeta hana í lok ársins 2026. Þetta eiga ekki að vera bara orð á blaði. Ábyrgðaraðilar eru frá velferðarsviði og fræðslu- og lýðheilsusviðs Akureyrarbæjar.
Ég vil meina að samstarf Akureyrarbæjar og Félags eldri borgara á Akureyri sé til fyrirmyndar.
Við sem eldri erum viljum eins og allir aðrir búa í góðu, öruggu og eftirsóknarverðu samfélagi og að bærinn okkar sé þar í fremstu röð. Það er reynsla mín eftir þessi fjögur ár í öldungaráði að hér sé margt mjög vel gert fyrir eldra fólk þó alltaf megi gera betur.
Sem eldri borgari á lista Miðflokksins til bæjarstjórnarkosninganna þann 16. maí vil ég að lokum vekja athygli kjósenda á því góða fólki sem þar skipar efstu sætin, fólk með mikilvæga þekkingu og reynslu á ólíkum sviðum samfélagsins. Þeim treysti ég best til að fara vel og skynsamlega með það vald og þá ábyrgð sem fylgir bæjarfulltrúastarfinu.
Úlfhildur Rögnvaldsdóttir er eldri borgari á Akureyri og skipar 16. sæti á lista Miðflokksins við sveitarstjórnarkosningarnar í maí
Sorgin þegar fólk fellur á milli kerfa
Getur verslun blómstrað á Akureyri?
Grunnskólar Akureyrar: Sterkur grunnur – en aðgerða þörf
Hvar vilja aldraðir búa?