Fara í efni
Umræðan

Lífsgæði fyrir fólkið sem lagði grunninn

Eldri borgarar hafa lagt grunn að þeirri velferð sem við búum við í dag og eiga skilið að njóta þess.

Á síðasta kjörtímabili var verkefnið Virk efri ár sett á laggirnar og hefur gengið frábærlega. Það sýnir að þegar rétt er staðið að málum má auka lífsgæði, draga úr einangrun og efla virkni.

Við í L-listanum viljum halda áfram á þeirri braut. Við viljum tryggja Félagi eldri borgara góða og varanlega aðstöðu, því öflugt félagsstarf skiptir miklu máli. Við viljum auka framboð tómstunda, meðal annars með verkefnum á borð við Karlar í skúrum, sem skapa vettvang fyrir samveru og tilgang.

Við viljum styðja við uppbyggingu lífsgæðakjarna og fjölbreyttra íbúða fyrir eldri borgara, þar sem öryggi og sjálfstæði fara saman. Þá lögðum við í L-listanum áherslu á að frístundastyrkur fyrir eldri borgara yrði tekinn upp, til að tryggja jafnt aðgengi að virkni og þátttöku í tómstundum.

Þá viljum við festa í sessi frístundastyrk fyrir eldri borgara til að tryggja jafnt aðgengi að virkni og þátttöku.

Þetta gerist ekkert af sjálfu sér. Það þarf vilja og skýra sýn. Við í L-listanum erum tilbúin að taka þá ábyrgð og tryggja að Akureyri verði samfélag þar sem eldri borgurum líði vel.

Óðinn Svan Óðinsson er í 1. sæti L-listans fyrir bæjarstjórnarkosningarnar á Akureyri í maí.

Brú yfir byggðaföllin eða mjaltavél Icelandair?

Þóroddur Bjarnason skrifar
26. október 2026 | kl. 17:30

Loftbrúin má ekki missa flugið

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. október 2026 | kl. 17:15

Hvað gerist í síðari hálfleik? 

Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar
19. október 2026 | kl. 16:30

Indverskur matur og kvíðaspurningin

Inga Dagný Eydal skrifar
10. október 2026 | kl. 06:00

Réttlát kjördæmaskipan og ofríki stærðfræðinganna

Þóroddur Bjarnason skrifar
07. október 2026 | kl. 15:00

Mikilvægi endurhæfingar í hvetjandi og náttúrulegu umhverfi

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
06. október 2026 | kl. 13:00