Hús dagsins: Norðurgata 16
Í síðasta pistli vorum við stödd í Kaupangssveit, á Knarrarbergi, sem Sveinbjörn Jónsson teiknaði og byggði og bjó í áratug. Nú höldum við aftur til kaupstaðarins og tökum fyrir nokkur hús Sveinbjarnar, sem öll eru aldargömul í ár en það sem eftir lifir árs verða 100 ára hús hér í forgrunni. Þarf greinarhöfundur að hafa venju fremur hraðar hendur því þau eru býsna mörg Akureyrarhúsin sem fylla öldina í ár. Ekki höfum við þó alveg sagt skilið við sveitina því eitt hús verður tekið fyrir þar, sem einnig er 100 ára og hannað af Sveinbirni en hins vegar svo falið í trjágróðri að h.u.b. vonlaust er að ná af því mynd, fyrr en haustar að ráði og laufin falla. En nú ber okkur niður á Oddeyri, nánar tiltekið í Norðurgötu.
Elsti hluti Norðurgötu, sem liggur sunnan Eiðsvallagötu er að mestu skipaður húsum frá tveimur síðustu áratugum 19. aldar. Þar er að mestu um að ræða timburhús, sem móðins voru þá en þar er einnig að finna eina grjóthlaðna hús Akureyrar, svo vitað sé; Gömlu Prentsmiðjuna eða einfaldlega, Steinhúsið. Svo virðist sem ártöl með endingunni ´26 séu uppbyggingarskeið í þessum hluta götunnar; árið 2026 hafa risið vestanmegin stóreflis steinhús, margra íbúða fjölbýli, sem þrátt fyrir stærð og umfang bera að einhverju leyti með sér yfirbragð eldri byggðar. Munar þar mestu um há ris og kvisti og margskipta glugga, þótt öll hlutföll og frágangur séu auðvitað frábrugðin þeim gömlu. En hér eru ekki ferkantaðir margra hæða turnar, sem hefðu verið afleitir á þessum stað; nýju húsin eru ekki hærri en Sambyggingin og Dagshúsið. Síðast árið ´26, nefnilega 1926 var einnig töluverð uppbygging í þessum hluta Norðurgötu, sem þá þegar var orðinn um hálfrar aldar gamall. Austanmegin götunnar, ofan Gránufélagsgötu, risu þrjú steinhús, öllu háreistari en húsin neðan Gránufélagsgötunnar. Raunar reis einnig steinhús á horninu, nr. 27 við Gránufélagsgötu og fleiri steinhús risu ofan við götuna.
Það virðist raunar, sem ákveðinn kippur hafi orðið í steinhúsabyggingum almennt árið 1926. Hvort eitthvað hefur liðkast til um fyrirgreiðslur, innflutning á byggingarefnum (sementi og járni) eða verð á þessum vörum orðið hagstæðari eða almennt ríkt góðæri þekkir höfundur ekki. En mikið var byggt næstu árin á eftir og þá nær eingöngu steinhús, timburhús áttu síður upp á pallborðið m.a. eftir ítrekaða stórbruna. Reyndar voru steinhús þessa tíma yfirleitt „timburhús að innan“, aðeins útveggir og mögulega fáeinir burðarveggir voru steyptir. Milliloft og veggir voru ævinlega úr timbri, það var ekki fyrr en um 1940 eða svo að hús urðu „alsteypt“, þ.e. hæðaskil og innveggir. Stærst þeirra steinhúsa sem reis við Norðurgötuna árið 1926 reistu tveir mágar úr Svarfaðardal og Skíðadal. Var það löngum kallað Svarfdælingahús. Í manntali það ár er einfaldlega skráð spurningamerki við númer hússins en ári síðar hefur það fengið númerið 16, sem það ber æ síðan. Norðurgata 14 er hins vegar ekki til og hefur aldrei verið. Ekki er plássið á milli húsa nr. 12 og 16 það drjúgt, að þar rúmist hús, svo ekki er auð lóð á milli. Kannski var gert ráð fyrir, að annar helmingur Svarfdælingahússins, sem skiptist í eignarhluta eftir miðju, yrði nr. 14 og hinn yrði nr. 16?

Mágarnir, sem reistu Norðurgötu 16 hétu Aðalsteinn Sigurðsson og Jóhann Þórðarson. Aðalsteinn var frá Þorleifsstöðum í Svarfaðardal, fæddur þar árið 1871 og hafði m.a. stundað búskap á Hreiðarsstaðakoti í sömu sveit. Hann var kvæntur Þorbjörgu Þórðardóttur, sem fædd var árið 1874 og uppalin var á Hnjúki í Skíðadal. Þorbjörg var systir Jóhanns, en þau systkinin voru bæði uppalin á Hnjúki. Jóhann var hins vegar fæddur á Hreiðarsstöðum í Svarfaðardal árið 1870. Jóhann var kvæntur Önnu Þorsteinsdóttur frá Grund í Svarfaðardal. Þau systkin Jóhann og Þorbjörg Þórðarbörn eru skráð í Manntali árið 1880 sem tökubörn Þórðar Jónssonar á Hnjúki en móðir þeirra var Aðalbjörg Jónsdóttir, vinnukona á bænum. (Nú bregður höfundur fyrir sig mikilli ættfræðileikfimi). Þórður var kvæntur Halldóru Jónsdóttur. Halldóra var frá Hólárkoti í Svarfaðardal og árið sem þau Þórður og Þorbjörg voru skráð sem tökubörn hjá henni og föður þeirra var bróðir hennar, Snorri, að hasla sér völl sem timburmeistari og skipasmiður á Oddeyri. Reisti hann þar veglegt tvílyft timburhús sem fullbúið var þetta sama ár, 1880. Ekki gátu fósturbörn systur Snorra þó leitað til hans um aðstoð þegar þau, nálega hálfri öld síðar, reistu steinhús sitt á sömu slóðum; Snorri lést nefnilega, tæplega sjötugur, árið 1918. Það var hins vegar annar frændi þeirra, ungur bróðursonur (Jóns Þórðarsonar frá Hnjúki) sem teiknaði fyrir þau húsið. Sá var aðeins þrítugur en hafði þá þegar teiknað og byggt fjölmörg hús á Akureyri, Ólafsfirði og víðar, fundið upp og framleitt sérstakan hleðslustein, r-stein og hafði numið byggingarfræði í Noregi. Hér er auðvitað um að ræða Sveinbjörn Jónsson byggingarfræðing sem síðar stofnaði Ofnasmiðjuna í Reykjavík og var löngum kenndur við hana. Má ímynda sér, að væntanlega hafi verið hæg heimatökin fyrir þau Aðalstein og Þorbjörgu og Jóhann og Önnu, að fá Sveinbjörn til að teikna fyrir sig húsið.
En það var þann 10. apríl 1926 að þeir Jóhann og Aðalsteinn fengu að reisa tvílyft steinsteypt hús með kjallara og brotnu þaki, 15x9m að stærð á lóð austan við Norðurgötu, samkvæmt teikningum og nánari útmælingu. Ekki hafði bygginganefnd fleiri orð þar um og um haustið var húsið risið og flutt inn: Í manntali árið 1926 voru þeir Aðalsteinn og Jóhann fluttir inn ásamt fjölskyldum sínum, en húsið hafði ekki fengið númer, sem fyrr segir var það eitt spurningarmerki; bókstaflega.
Norðurgata 16 er tvílyft steinsteypuhús á háum kjallara, með háu valmaþaki, eða risþaki, gaflsneiddu að þakkanti. (Hvenær risþak verður að valmaþaki er góð spurning). Veggir eru múrsléttaðir og bárujárn á þaki en einfaldir þverpóstar með skiptum efri fögum í flestum gluggum. Þegar þetta er ritað standa yfir miklar endurbætur á húsinu, m.a. byggðir stórir miðjukvistir með svölum beggja vegna á langhliðum auk tveggja smærri hvoru megin, auk þess sem kvistir verða á stafni. Þá er verða gluggar einnig endurnýjaðir og veggir múrhúðaðir. Grunnflötur mælist um 15,40x9,40m. Skv. fyrirliggjandi teikningum á map.is er heildarflatarmál hússins 407 m2 og rúmtak 1363 m3.
Aðalsteinn Sigurðsson, sem fæddur var að Hreiðarsstöðum í Svarfaðardal og Þorbjörg Þórðardóttir höfðu um árabil búið að Hreiðarsstaðakoti í Svarfaðardal áður en þau fluttust til Akureyrar en Jóhann Þórðarson og kona hans Anna Þorsteinsdóttir, fædd að Grund í Þorvaldsdal, höfðu búið að Hnjúki í Skíðadal. Í Manntali árið 1927 virðist hvor eignarhluti Aðalsteins skiptast í tvö íbúðarrými en hluti Jóhanns í þrjú. Í síðarnefnda hlutanum eru einnig búsett þau Jón Þórðarson, stjúpbróðir Jóhanns og Þorbjargar, kona hans María Sigríður Jónsdóttir og sonur þeirra Gunnlaugur. Þar er um að ræða foreldra og bróður téðs Sveinbjarnar Jónssonar. Kallaðist Norðurgata 16 löngum Svarfdælingahús og kallast jafnvel enn, þó íbúar og eigendur hússins séu orðnir fjölmargir, eftir tíð stórfjölskyldnanna úr Svarfaðardal og Skíðadal.

Í lok janúar árið 1927 var hið nýbyggða hús Svarfdælinganna metið til brunabóta. Þá er því lýst eftirfarandi: Íbúðarhús, 2 hæðir á háum kjallara, með háu valmaþaki. Á neðri hæð eru undir framhlið 4 stofur og við bakhlið 4 stofur. 2 forstofur. Efri hæð við framhlið 4 stofur við bakhlið 2 stofur 2 eldhús 2 forstofur. Í kjallara 2 eldhús 1 þvottahús 1 baðherbergi 6 geimsluherbergi [svo]. Efstaloft óinrjettað [svo]. Miðstöðvarhitun. 2 reikháfar. Rafleiðsla. Lengd 15,1m, breidd 8,8m, hæð 7,5m, tala glugga 44. Útveggir steinsteypa. Þak steinlagt [væntanlega hafa verið steinskífur á þakinu]. Miðstöðvartæki og 2 eldavélar (Brunabótafélag Íslands 1927: nr. 203).
Um 1928 búa þau Friðrik Sigurðsson trésmiður frá Litla-Eyrarlandi og Björg Guðnadóttir frá Fótaskinni í Aðaldal ásamt fjórum börnum sínum í íbúðinni á móti Aðalsteini og Þorbjörgu en Jósefína, dóttir þeirra Jóhanns og Önnu er „mótbúi“ foreldra sinna ásamt eiginmanni sínum, Kristjáni Guðmundssyni, bakara frá Sandeyri í Ísafjarðardjúpi og þriggja ára syni þeirra, Alfreð. Árið 1930 eru þrír eigendur skráðir að húsinu: Friðgeir Sigurbjörnsson trésmiður frá Svalbarði í Þistilfirði og Jóhannes Jónsson verslunarmaður frá Öxarfirði, auk Aðalsteins Sigurðssonar. Búa þeir hér ásamt fjölskyldum sínum en einnig eru hér búsett Hallgrímur Finsen Traustason pakkhúsmaður frá Fremstafelli í Köldukinn og Kristín Ingibjörg Jónsdóttir frá Búrfelli í Svarfaðardal. Þannig hefði viðurnefnið Þingeyingahús allt eins getað átt við Norðurgötu 16 eins og Svarfdælingahús. Alls bjuggu hér 24 manns árið 1930. Það væri einfaldlega of langt mál að rekja íbúa - og eigendasögu Norðurgötu 16 gegnum þessa öld sem liðin er frá byggingu en við skulum skoða nokkur manntöl. Árið 1940 búa hér 26 manns. Friðgeir Sigurbjörnsson smiður og Halldóra Sumarrós Jóhannesdóttir frá Ólafsfirði búa hér enn, sem og Jóhannes Jónsson verslunarmaður og Sigrún Sigvaldadóttir frá Byrgi í Kelduneshreppi.
Í hlutanum sem Aðalsteinn byggði búa þrjár fjölskyldur, Jón Sigursteinn Júlíusson verkamaður og Lilja Sveinsdóttir í einni íbúðinni, bæði úr Skriðuhreppi. Helga Sigfúsdóttir, fædd á Ásbyrgi í Kelduhverfi ásamt uppkomnum börnum, Sigurði og Rannveigu eru búsett í einni íbúðinni og í þriðju íbúð eru þau Þórir Jónsson málari og Þórey Steinþórsdóttir, bæði úr Hörgárdal. Aðalsteinn Sigurðsson og Þorbjörg Þórðardóttir sjást síðast hér í manntali árið 1937 en Aðalsteinn virðist skráður eigandi næstu tvö árin á eftir. Árið 1942 eru eigendur þess hluta Jakob Tryggvason og Sigurjón Ólafsson. Árið 1950 eru 22 búsettir í Norðurgötu 16 og eigendur þeir Barði G. Brynjólfsson, Valdemar Pétursson og Þorsteinn Guðmundsson. Haustið 1973 kom upp eldur í vesturhluta hússins, nánar tiltekið á efri hæð og urðu þar töluverðar skemmdir. Svo sorglega vill til, að bruninn sá var mannskæður, en Halldór Vilberg Jóhannesson prentari, 27 ára, þar búsettur í íbúð foreldra sinna, Jóhannesar Halldórssonar og Þorgerðar Halldórsdóttur, slasaðist illa í brunanum og lést nokkrum dögum síðar á sjúkrahúsi. Í upphafi var þess getið, að steinhús á þriðja áratugnum hafi ævinlega verið „timburhús að innan“ og það á að mestu við um Norðurgötu 16. Hins vegar er það svo, að fyrir miðju húsinu og á eignaskilum eru tveir steyptir burðarveggir. Trúlega hafa þessir veggir skipt sköpum um að eldurinn hafi ekki breiðst út meira en hann gerði en aðrir eignarhlutar en efri hæðin að vestan sluppu að mestu.

Norðurgata 16 hefur alla tíð verið fjölbýlishús og fjölmargir átt hér íbúðir og búið þar. Lengst af hafa íbúðarrýmin verið fjögur eða fimm og þegar unnin var húsakönnun um Oddeyrina voru þær fjórar. Húsið hefur líkast til alla tíð hlotið gott viðhald. Húsið er nokkuð sérstakt að gerð, ívið stærra en nærliggjandi hús og þakgerðin öðruvísi og setur húsið þannig sinn sérstaka svip á umhverfið. Að austan liggur lóð hússins að skólalóð leikskólans Iðavallar. Iðavallarlóðin er römmuð inn af Gránufélagsgötu í suðri, Eiðsvallagötu í norðri, Hríseyjargötu í austri og Norðurgötu í vestri. Við síðasttöldu götuna eru lóðirnar, sem liggja að leikskólalóðinni hlutfallslega langar og mjóar og snúa húsin þrjú, öll steinsteypuhús frá 1926, stöfnum að götu. Þegar horft er yfir næsta nágrenni má e.t.v. greina nokkur líkindi með Norðurgötu 16 og Sambyggingunni við Gránufélagsgötu 39-41 og gætu einhverjir haldið, að þau væru hluti sama skipulags. Svo er þó ekki: Sambyggingin er byggð árin 1928-30 eftir skipulagi Guðjóns Samúelssonar, sem samþykkt var árið 1927 og gerði ráð fyrir randbyggingum (sambyggingum) um mestalla Eyrina. Norðurgata 16 er hins vegar byggð og teiknuð ári áður en skipulagið var samþykkt en virðist engu að síður nokkuð draga dám af sömu hönnun.

Var Sveinbjörn e.t.v. framsýnn eða hafði hann fengið veður af fyrirhuguðum skipulagshugmyndum? Eða er útlit, yfirbragð og stærð Norðurgötu 16 í samhengi við Sambygginguna og skipulagið bara tilviljun? Úr því verður ekki skorið hér, en þeir hafa væntanlega allir þekkst sem „kollegar“, Sveinbjörn, Guðjón Samúelsson og Halldór Halldórsson, sem teiknaði Sambygginguna, og skipst á hugmyndum, ráðum og öðru er varðaði fagið. Sveinbjörn var t.d. byggingastjóri yfir byggingu Kristneshælis, Guðjóns Samúelssonar, árin 1926-27. Í Húsakönnun 2020 hlýtur Norðurgata 16 miðlungs varðveislugildi og telst hluti varðveisluverðrar heildar. Það fær umsagnirnar: Reisulegt hús, en mikill klumpur. Gott samræmi er þó í formi og gluggasetningu (Bjarki Jóhannesson 2021: 97) og sagt falla illa inn í umhverfi sitt vegna stærðar. Þar sem húsið er byggt eftir 1923 er það ekki aldursfriðað. Sem fyrr segir standa yfir gagngerar endurbætur á Norðurgötu 16 og eru þær unnar eftir teikningum Almars Eggertssonar. Ekki er annað að sjá, en að endurbótunum miði vel og verður spennandi að sjá afraksturinn. Meðfylgjandi myndir eru teknar 8. september 2026 en myndin sem sýnir Norðurgötu 16 fyrir framkvæmdir er tekin 12. mars 2011.
Heimildir:
Bjarki Jóhannesson. 2021. Húsakönnun fyrir Oddeyri 2020. Akureyrarbær. Aðgengilegt á pdf-formi á slóðinni Húsakönnun fyrir Oddeyri 2020.
Brunabótafélag Íslands. 1929. Virðingabók Brunabótafélags Íslands, Akureyrarumboð 1922-1929. Varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri, aðgengilegt á vef safnsins: https://issuu.com/heradsskjalasafnakureyri/docs/f117_3_virdingabok_1922_1929?fr=sMTZmNDQzODI5ODU Hskj.Ak. F-117/3.
Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1921-30. Fundur nr. 583, 10. apríl 1926. Óprentað, óútgefið; varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri, aðgengilegt á vef safnsins: https://www.herak.is/is/skjalavefur/sveitarfelog/akureyrarbaer-1/gjordabaekur
Friðrik G. Olgeirsson, Halldór Reynisson og Magnús Guðmundsson. 1996. Byggingameistari í stein og stál; Saga Sveinbjarnar Jónssonar í Ofnasmiðjunni. Reykjavík: Fjölvi.
Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson.1995. Oddeyri Húsakönnun. Minjasafnið á Akureyri. Aðgengileg á pdf-formi á slóðinni: Oddeyri. Húsakönnun.
Kristín Aðalsteinsdóttir og Arnór Bliki Hallmundsson. 2023. Oddeyri Saga hús og fólk. Akureyri: höfundar gáfu út.
Ýmis manntöl á vef Héraðsskjalasafns og manntal.is, greinar á timarit.is; sjá tengla í texta.
Notkun og mikilvægi hafþyrnis
Þurfum við alltaf að vera að verða betri?
Neita að troða nikku í kokið
Takk fyrir mig, Akureyri!

