Fara í efni
Umræðan

Gleymda forvörnin

Forvarnir barna eru gríðarlega mikilvægar þegar kemur að lýðheilsu samfélagsins. Þegar rætt er um forvarnir er nær eingöngu talað um mikilvægi íþróttastarfs. Þó er mikilvæg forvörn sem gleymist oft í umræðunni: tónlistarkennsla.

Ritrýndar rannsóknir sýna að virk þátttaka barna í tónlist styður við andlega heilsu, eykur félagsfærni og styrkir sjálfsmynd. Börn sem fá tækifæri til að tjá sig í gegnum tónlist eru líklegri til að þróa með sér seiglu og jákvæða sjálfsmynd, sem skiptir sköpum þegar tekist er á við áskoranir lífsins. Það er kjarni forvarna: að efla innri styrk áður en vandinn verður til.

Tónmenntakennsla í grunnskólum Akureyrarbæjar tók dýfu en hefur verið á uppleið undanfarin ár með samstarfi við Tónlistarskólann á Akureyri. Mikilvægt er að efla þetta samstarf og tryggja að tónmenntakennsla haldi áfram í öllum grunnskólum bæjarins.

Helsta hindrunin fyrir þátttöku grunnskóla í samstarfinu er skortur rými til kennslu innan skólanna. Ein möguleg lausn, sem bent hefur verið á, að setja upp færanlegar kennslueiningar við skólana. Það þarf að tryggja rými innan skóla Akureyrarbæjar fyrir tónmenntakennslu sem gæti einnig nýst fyrir einkatíma nemenda við Tónlistarskólann á Akureyri. Það myndi auðvelda nemendum að sækja nám í sínu skólahverfi, stytta vinnudag nemenda, skapa Tónlistarskólanum meira pláss í Hofi og stytta biðlista.

Sem frambjóðandi VG á Akureyri tel ég ljóst að hér höfum við verk að vinna. Með því að hugsa skipulagið heildrænt getum við brotið niður þær hindranir sem í dag standa í vegi fyrir jöfnu aðgengi barna að tónlistarnámi.

Það er kominn tími til að hætta að líta á tónlist sem aukaatriði. Hún er lykilþáttur í velferð barna, og þar með framtíð Akureyrar.

Stefán Oddur Hrafnsson er faðir, kennaranemi, og situr í öðru sæti á lista Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs á Akureyri

Brú yfir byggðaföllin eða mjaltavél Icelandair?

Þóroddur Bjarnason skrifar
26. október 2026 | kl. 17:30

Loftbrúin má ekki missa flugið

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. október 2026 | kl. 17:15

Hvað gerist í síðari hálfleik? 

Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar
19. október 2026 | kl. 16:30

Indverskur matur og kvíðaspurningin

Inga Dagný Eydal skrifar
10. október 2026 | kl. 06:00

Réttlát kjördæmaskipan og ofríki stærðfræðinganna

Þóroddur Bjarnason skrifar
07. október 2026 | kl. 15:00

Mikilvægi endurhæfingar í hvetjandi og náttúrulegu umhverfi

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
06. október 2026 | kl. 13:00