Frístundamál barna á Akureyri: er kominn tími á næsta skref?
Á frístundaheimilum fer fram afar mikilvægt starf í þágu barna. Viðreisn telur þó að til staðar séu margvísleg tækifæri til að efla starfsemina enn frekar, bæði fyrir börnin sjálf, starfsfólk og foreldra. Reykjavíkurborg hefur sýnt fram á forystu á þessu sviði og ætti Akureyrarbær að nýta þá þekkingu, læra af árangri þeirra en jafnframt horfa gagnrýnið til þess sem má gera betur.
Mig langar að nefna Frístundamiðstöðina Tjörnina en þar starfaði ég um tíma sem aðstoðar forstöðukona frístundaheimilisins Frostheima. Í Frostheimum voru yfir 200 börn í safnfrístund fyrir nemendur í 3. og 4. bekk, þar sem starfsemin byggði á skýrum hlutverkum og sterkum gildum. Lögð var rík áhersla á að börnum stæði til boða frístundastarf með raunverulegt uppeldis‑ og menntunargildi, sem tekur mið af aldri þeirra og þroska. Til að ná þeim markmiðum var unnið markvisst með virkri þátttöku barna, reynslunám, lýðræði og mannréttindi. Jafnframt var sérstök áhersla á að virkja og styðja börn sem þurftu aukna hvatningu, meðal annars vegna fötlunar eða félagslegrar stöðu, þannig að öll gætu notið sín á eigin forsendum.
Helsti munurinn á frístundaheimilum í Reykjavík og á Akureyri felst ekki í metnaði né vilja, heldur í framkvæmdinni. Í Reykjavík liggur fyrir skýr aðgerðaráætlun og aðstæður sem gera starfsfólki kleift að bjóða upp á fjölbreytt, faglegt og framsækið frístundastarf. Þar starfar einnig fjölbreyttur hópur starfsfólks sem hefur raunverulegt svigrúm og rödd til að hafa áhrif á þróun.
Á Akureyri er vissulega til staðar stefna í málaflokknum, en skortir skýra aðgerðaráætlun um hvernig markmiðum skuli náð í framkvæmd og fylgt eftir. Þar liggja sóknarfærin: að horfa til sveitarfélaga þar sem gengur vel, styrkja faglegt umhverfi frístundaheimila og tryggja að ávinningurinn skili sér í raun til barna, starfsfólks og foreldra.
Við í Viðreisn viljum styrkja stöðu frístundaheimila á Akureyri. Við viljum að starfsemin byggi á skýrum markmiðum og gildum og að hún fylgi þeim gæðaviðmiðum fyrir frístundaheimili sem mennta‑ og menningarmálaráðuneytið hefur sett. Til þess að það náist þarf að móta skýra og framkvæmanlega aðgerðaáætlun.
Við viljum eiga virkt samtal við starfsfólk frístundaheimila um hvernig best sé að styðja við faglega þróun, skapa hvata til frekari menntunar og bæta starfsaðstæður. Jafnframt viljum við að starf frístundaheimila sé samþætt menntastefnu Akureyrarbæjar og verði hluti af heildstæðri sýn á velferð og menntun barna.
Af hverju er þetta mikilvægt?
Starf frístundaheimila gegnir lykilhlutverki í þroska barna. Faglegt frístundastarf tryggir að leikur sé uppbyggilegur og markviss , ekki eingöngu umsjón eða „geymslupláss“. Í slíku umhverfi fá börn tækifæri til að þróa félagsfærni, sjálfstæði og sköpunarkraft í öruggu og vernduðu umhverfi.
Þessi nálgun tengist þekktum kenningum í þroskasálfræði, sem sýna að börn læra mest í gegnum samskipti og leik. Þar af leiðandi er eitt mikilvægasta menntamarkmið barns að þróa félagsfærni, þar sem þau samskipti leggja grunn að lífsgæðum, bæði hvað varðar andlega og félagslega heilsu sem og árangur í námi síðar á lífsleiðinni.
Faglegt starf á frístundaheimilum snýst ekki síður um öryggi. Skýr vinnubrögð og sameiginleg sýn skipta sköpum, sérstaklega við krefjandi aðstæður. Án skýrrar aðgerðaáætlunar og faglegs ramma getur starfsemin orðið tilviljanakennd og háð stjórnendum hverju sinni. Með markvissri faglegri nálgun skapast samræmi í vinnubrögðum, sem tryggir að öll börn fái jafna og góða þjónustu, óháð því hvar þau eru skráð í frístund.
Frístundaheimili eru mikilvæg en vanmetin forvörn!
Við í Viðreisn viljum jafnframt að boðið verði upp á sumarfrístund fyrir börn í 1.–4. bekk, með sömu markmið að leiðarljósi og gilda fyrir starf í frístundaheimili. Sumarfrístund myndi gegna mikilvægu hlutverki í að bjóða börnum upp á fjölbreytta og uppbyggilega tómstundadagskrá yfir sumartímann, styðja sérstaklega við þau börn sem ekki finna sér farveg í skipulögðu íþrótta‑ eða tómstundastarfi og sporna gegn félagslegri einangrun. Jafnframt skiptir máli að koma til móts við foreldra og forráðamenn með aðgengilegri og skipulagðri dagskrá sem er á sanngjörnu verði og léttir undir með fjölskyldum yfir sumarmánuðina.
Hver er framtíðarsýnin?
Akureyri er vaxandi bær og það þarf frístundastarfið að endurspegla. Þegar ný hverfi rísa og innviðir byggjast upp verðum við að hugsa frístundamál samhliða frá fyrsta degi. Með skýrri framtíðarsýn, markvissri áætlanagerð og raunhæfum lausnum getum við tryggt að frístundaheimili séu öflugur hluti af samfélaginu okkar.
Íunn Eir Gunnarsdóttir er með M.ed gráðu í tómstunda- og félagsmálafræði með áherslu á stjórnun og þróunarstörf og skipar 5. sæti á lista Viðreisnar í kosningum til bæjarstjórnar á Akureyri.
Símafrí sem virkar í Akureyarbæ
Húsnæði er hluti af grunninnviðum samfélagsins, ekki bara markaðsvara
Öryggi í fyrirrúmi - sameinumst öll um nýja Slökkvistöð á Akureyri
Er Loftbrúin næst?