Fara í efni
Mannlíf

Fjölbreytt Vetrarhátíð í Mývatnssveit

Vetrarhátíð við Mývatn hefst á föstudaginn, 5. mars, með hópreið um Mývatn. Hátíðin, sem hefur skipað sér sess sem einn skemmtilegasti vetrarviðburður Norðurlands, að mati Mývatnsstofu, stendur til 14. mars.

Á hátíðinni eru stundaðar hefðbundnar og óhefðbundnar vetraríþróttir í stórbrotinni náttúrufegurð Mývatnssveitar. Þar á meðal er Íslandsmeistaramót Sleðahundaklúbbs Íslands á hundasleða og „skijoring“ þar sem hundur dregur skíðamann, hestamótið Mývatn Open sem fer fram á ísilögðu Mývatni og fyrsta snjókross mót vetrarins, þar sem vélsleðamenn reyna með sér. Gönguskíðaspor verða lögð víðs vegar um svæðið, skíðalyftan í Kröflu verður opin ef veður leyfir og heimamenn kenna gestum að dorga.

„Hátíðin markar líka þau ánægjulegu tímamót að ferðaþjónustufyrirtæki í Skútustaðahreppi opna aftur eftir vetrar/COVID lokun. Það verða ýmis konar tilboð á gistingu, mat og afþreyingu og dagskráin er hin glæsilegasta. Nú er tilvalið að skella sér í hundasleðaferð eða á snjósleða og láta svo líða úr sér í jarðböðunum. Vegna sóttvarnaráðstafana er áhersla lögð á að njóta náttúrunnar og útiveru. Gestir eru því hvattir til þess að taka með sér gönguskó og skíði og njóta alls þess sem svæðið hefur upp á að bjóða á sínum forsendum,“ segir í tilkynningu frá Mývatnsstofu.

Smellið hér til að fá nánari upplýsingar og skoða dagskrá hátíðarinnar.