Fara í efni
Fréttir

Ferð á leik Liverpool og Man Utd á Anfield

TA Sport og akureyri.net bjóða í vetur upp á hópferðir á leiki í ensku knattspyrnunni, í beinu flugi frá Akureyri eins og undanfarin ár. Ein ferð hefur þegar verið ákveðin, á leik Liverpool og Manchester United á Anfield, heimavelli Liverpool, næst síðustu helgina í nóvember.

Gífurleg spurn hefur verið eftir ferðum á heimaleiki Liverpool undanfarin ár en í vetur stendur til að bjóða upp á ferðir á aðra velli. Nánar um það síðar.

  • Flogið er með easyjet frá Akureyri kl. 9.40 að morgni föstudagsins 20. nóvember og lent í Manchester kl. 12.15.
  • Flugið heim er frá Mancester að morgni mánudags 23. nóvember. Brottför kl. 6.30 og lent á Akureyri kl. 9.20.

Samkvæmt niðurröðun fer leikurinn fram laugardaginn 21. nóvember en ekki er hægt að útiloka að hann verður færður á sunnudag að ósk sjónvarpsstöðva.

HVAÐ KOSTAR FERÐIN?

  • Barnagjald, 15 ára og yngri 204.800 – miðað við tvo fullorðna í herbergi.  
  • Frá 224.800 kr. á mann fyrir gistingu í tveggja manna herbergi
  • Frá 254.800 kr. fyrir einbýli.

HVAÐ ER INNIFALIÐ?

  • Flug með easyjet Akureyri - Manchester - Akureyri.
  • 15 kg handfarangurstaska og bakpoki eða veski sem kemst undir sæti í flugvélinni.
  • Akstur til og frá flugvelli.
  • Gisting og morgunmatur á 4 stjarna hóteli í miðborg Liverpool.
  • Premier lounge miði, í Kenny Dalglish stúkunni, eða Brodies lounge miði, í Anfield Road stúkunni, aftan við markið gegnt Kop stúkunni.
  • Matur fyrir leik, drykkur í leikhléi. Te og kaffi. Hægt er að kaupa aðra drykki. Opnað 3 klukkustundum fyrir leik.
  • Leikskrá.
  • Fararstjórn – Skapti Hallgrímsson ritstjóri akureyri.net verður fararstjóri.


Frekari upplýsingar hjá TA Sport í síma 552-2018 eða á info@tasport.is

Útsýni úr Anfield stúkunni; hér sat hluti hópsins sem fór með akureyri.net og TA Sport á leik Liverpool og Manchester City á síðasta keppnistímabil.


Útsýni þaðan sem farþegar TA Sport og akureyri.net sitja í Kenny Dalglish stúkunni.