Fara í efni
Umræðan

Drífum í að stytta hringveginn

Í síðustu viku ók ég frá Akureyri til Reykjavíkur. Það er svo sem ekki í frásögur færandi. Ég fór nokkur hundruð keppnisferðir sömu leið og hef því verulega reynslu af þjóðveginum. Í hvert einasta skipti sem leið mín liggur um Langadalinn fyllist ég fýlu. Fýlu vegna þess að ekki er hægt að stytta vegalengdina milli þessara staða um tuttugu kílómetra. Það er vegna þvermóðsku íbúa á Blönduósi og nágrenni sem þurfa að halda lífinu í greiðasölunni á N1 olíufélaginu. Það er þjóðhagslega afar hagkvæmt að stytta leiðina og hreint ótrúlegt að heimamenn og þingmenn þeirra geti komið í veg fyrir framkvæmdir. Lög um að heimamenn hafi skipulagsvaldið eru fráleit og ríkisvaldið þarf að grípa inn í. Þetta er hagstæðasta möguleg framkvæmd á öllum hringveginum og yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar er hlynntur henni. Drífum í þessu.

Jóhannes Gunnar Bjarnason er kennari

Brú yfir byggðaföllin eða mjaltavél Icelandair?

Þóroddur Bjarnason skrifar
26. október 2026 | kl. 17:30

Loftbrúin má ekki missa flugið

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. október 2026 | kl. 17:15

Hvað gerist í síðari hálfleik? 

Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar
19. október 2026 | kl. 16:30

Indverskur matur og kvíðaspurningin

Inga Dagný Eydal skrifar
10. október 2026 | kl. 06:00

Réttlát kjördæmaskipan og ofríki stærðfræðinganna

Þóroddur Bjarnason skrifar
07. október 2026 | kl. 15:00

Mikilvægi endurhæfingar í hvetjandi og náttúrulegu umhverfi

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
06. október 2026 | kl. 13:00