Fara í efni
Umræðan

Endurvekjum bílastæðaklukkuna og gerum bílastæði gjaldfrjáls fyrir eldri borgara

Við í L-listanum viljum gera miðbæinn okkar aðgengilegri fyrir alla, ekki síst eldri borgara. Það á ekki að vera flókið að skreppa í miðbæinn. Þess vegna viljum við endurvekja gömlu góðu bílastæðaklukkuna fyrir eldri borgara og gera bílastæðin gjaldfrjáls fyrir þann hóp.

Með þessu leggjum við til einfalt og notendavænt kerfi sem tekur mið af þörfum þeirra sem vilja forðast flókin öpp og tæknilausnir.

Þessi leið nýtist eldri borgurum sem nota símaforrit sjaldan eða hafa ekki tileinkað sér öpp. Markmiðið er ekki að flækja kerfið heldur einfalda það og gera það aðgengilegra fyrir alla aldurshópa.

Pössum að miðbærinn sé fyrir alla hópa!

Óðinn Svan Óðinsson er í 1. sæti L-listans fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 16. maí.

Brú yfir byggðaföllin eða mjaltavél Icelandair?

Þóroddur Bjarnason skrifar
26. október 2026 | kl. 17:30

Loftbrúin má ekki missa flugið

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. október 2026 | kl. 17:15

Hvað gerist í síðari hálfleik? 

Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar
19. október 2026 | kl. 16:30

Indverskur matur og kvíðaspurningin

Inga Dagný Eydal skrifar
10. október 2026 | kl. 06:00

Réttlát kjördæmaskipan og ofríki stærðfræðinganna

Þóroddur Bjarnason skrifar
07. október 2026 | kl. 15:00

Mikilvægi endurhæfingar í hvetjandi og náttúrulegu umhverfi

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
06. október 2026 | kl. 13:00