Dýrmætt að geta starfað í heimabænum
„Það þurfti pínu áræðni og jafnvel brjálæði til þess að koma þessu í kring,“ segir Atli Örvarsson um SinfoniaNord ævintýrið, þar sem hann og Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson hófu fjarupptökur á kvikmyndatónlist með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands í Hofi fyrir Netflix, Sony og fleiri framleiðslurisa. Nú kemur Atli heim í Hof og á skírdag verður boðið til tónleikaveisluna 'Ljós í myrkri', þar sem konfektmolar úr tónverkum Atla fá að hljóma.
Þetta er þriðji og síðasti hluti viðtalsins við Atla Örvarsson á akureyri.net.
- FYRSTI HLUTI – „Á MYRKUM TÍMUM, ER LJÓSIÐ Í MANNFÓLKINU“
- Í GÆR – FINNUR TÓNINN SEM ER SANNUR Í SÖGUNNI
„Ég er stoltur af því að hafa getað starfað með þessum hætti í heimabænum mínum,“ segir Atli um vinnuna með SinfoniaNord. „Ræturnar eru alltaf á Akureyri, og ég er svo þakklátur fyrir það tónlistaruppeldi sem ég fékk hérna og tækifærin sem mér buðust. Ég var algjörlega á kafi í tónlist og fékk svo að kynnast drama í leikhúshljómsveitinni. Það er því ótrúlega dýrmætt fyrir mig að koma aftur heim og stunda mína vinnu í heimabænum og koma jafnvel með einhver tækifæri og þekkingu með mér. Það gefur mér gríðarlega mikið.“
Brjálæði til að byrja með
Atli hitti Þorvald Bjarna Þorvaldsson um jólin 2014 á Akureyri, en þá var Þorvaldur að flytja norður til þess að taka við Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. „Við fórum eitthvað að fabúlera með verkefni sem ég var þá kominn með á borðið, bandaríska bíómynd sem heitir 'The perfect guy', að fyrst að hér væri þetta góða menningarhús og þessi hljómsveit, hvort við gætum ekki bara tekið upp tónlistina hér.“
Umgjörðin var til staðar, við vorum komin með frábæra aðstöðu
„Ég ákvað að taka sénsinn og láta þetta gerast,“ segir Atli, en skemmst er frá því að segja að það tókst vel til og boltinn fór að rúlla áfram. „Ég hélt að það yrði erfitt að sannfæra yfir manneskju Sony að það væri skynsamlegt að taka upp tónlistina á Akureyri, en því var tekið gríðarlega vel.“
„Heimurinn breytist svo hratt, nú eru tíu eða ellefu ár síðan, og fólk leit hugmyndina um fjarvinnu ekki eins hýrum augum og í dag. Það hjálpaði svo klárlega, að íslensk tónlist hefur sannað sitt gildi og nýtur virðingar í heiminum.“

Þorvaldur Bjarni er tónlistarstjóri Menningarfélags Akureyrar, en hér situr hann í stúdíóinu sem er hjartað í upptökuverkefnum SinfoniaNord. Mynd: Rakel Hinriksdóttir
Gripu tækifærið í Covid
„Í kjölfarið af þessu fórum við að taka upp meira í Hofi, bæði af minni eigin tónlist og annarra. Það voru allskonar verkefni fyrir kvikmyndir, þætti og tölvuleiki. Svo kom Covid faraldurinn og þá var staðan einfaldlega sú, að víða í heiminum var ekki hægt að koma saman með stóra hljómsveit og taka upp tónlist. Í Bretlandi máttu bara tveir eða þrír koma saman á þessum tíma, en hérna heima máttu 20 manns koma saman. Það rétt slapp þá með 18 manna hljómsveit, stjórnanda og sviðsmann.“
„Á þessum tíma var Ísland bókstaflega eini staðurinn í heiminum, þar sem var til reynsla, þekking og aðstaða til þess að taka upp kvikmyndatónlist og samkomutakmarkanir okkur í hag. Netflix nýtti sér það, og við tókum upp nokkrar myndir á meðan þessu tímabili stóð,“ segir Atli. „Umgjörðin var til staðar, við vorum komin með frábæra aðstöðu, sem Akureyrarbær aðstoðaði okkur við að koma upp.“

Atli stjórnar Sinfóníuhljómsveit Norðurlands á sviðinu í Hamraborg. Fyrir ofan sviðið er upptökuherbergið, þar sem einbeitt starfsfólk fylgist með kvikmyndinni rúlla á einum skjá, fylgist með hljómsveitinni á öðrum og tekur tónlistina upp. Stundum er líka upptökuteymi erlendis og fylgist með í rauntíma í fjarbúnaði. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Atli situr hér í upptökuherberginu, en þarna er verið að taka upp tónlist fyrir barnaþættina Treasure Trekkers. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Kemur heim með tónleika
Það er vel við hæfi, að tónleikar þar sem sköpunarverk Atla eru í forgrunni, séu frumfluttir í Hofi. Á skírdag kl. 16.00 munu Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Söngsveit SinfoniaNord, Þórhildur Örvarsdóttir, systir Atla og Raftríóið Tjara (Kjartan Hólm, Sindri Már Sigfússon, Francesco Fabris) flytja metnaðarfulla dagskrá sem endurspeglar þverskurð af tónverkum Atla. Bjarni Frímann Bjarnason stjórnar hljómsveitinni.
Atli ætlar ekki bara að sitja og njóta tónleikanna, hann ætlar sjálfur að spila á píanó fyrir hlé, en fyrri hlutinn er tileinkaður verkum af sólóplötum Atla, meðal annars 7 Cycles og You Are Here. Þá tónlist samdi hann eftir að flytja aftur heim til Akureyrar og langaði til þess að semja persónulegri verk. Tónlist tónlistarinnar vegna, ekki við kvikmynd eða þætti.
„Eftir hlé ætla ég bara að njóta þess að hlusta og Bjarni stjórnar hljómsveitinni,“ segir Atli, en eftir hlé verður nýja verkið 'Luminescence' eða 'Ljós í mykri' flutt, við texta eftir breska rithöfundinn Max Porter.

Árið 2017 voru haldnir tónleikar í Hofi undir heitinu 'Draumasmiðjan'. Á efnisskránni voru m.a. svítur eftir Atla úr ýmsum kvikmyndum, innlendum sem erlendum, og sjónvarpsþáttum. Mynd: Skapti Hallgrímsson.
Fyrstu ár lífsins móta tilveruna til framtíðar
Tónleikarnir bera heiti tónverksins sem verður flutt eftir hlé, 'Ljós í myrkri', en Atli telur að árstíðabrigðin á Íslandi hafi mikil áhrif á líf okkar og tilveru. „Ég held að allir listamenn séu einhverskonar heild af eigin upplifunum og reynslu. Ég var tvítugur þegar ég flutti frá Akureyrir fyrst, og þessi fyrstu tuttugu ár eru það sem gerir mig að þeim sem ég er.“
Það er óvanalegt að hafa á sama sviði kór, sinfóníuhljómsveit og raftónlistarhljómsveit. „Raftónlist hefur alltaf fylgt mér, og mér finnst mjög spennandi að setja þetta saman lifandi á tónleikasviði. Ég veit ekki til þess að neitt slíkt hafi gerst í Hofi áður,“ segir Atli.
Mikið af spennandi verkefnum framundan
Það er margt á döfinni hjá Atla, en hann er nýbúinn að ljúka við tónlist fyrir kvikmynd sem verður frumsýnd á Netflix í maí. Þetta er kómedía með Sacha Baron Cohen og Rosamund Pike sem heitir 'Ladies first'. „Myndin er feminísk og fjallar um karlrembusvín sem lendir í samhliða raunveruleika þar sem konur ráða öllu. Þá finnur hann á eigin skinni hvernig hans hegðun hefur ekki verið sem best. Þetta er gamanmynd með mikilvægum skilaboðum, en húmor er mjög dýrmætur til þess að skoða tilveruna,“ segir Atli.
Ég held að ég sé að elta augnablik, þegar ég hef náð að sameina tónlist og sögu í einhverju faðmlagi
„Ég er svo að gera bíómynd sem ég er gríðarlega spenntur fyrir með leikstjóranum Morten Tyldum, sem ég hef mikið unnið með. Hann var tilnefndur til Óskarsverðlauna til dæmis, fyrir myndina Imitation game. Við erum að gera mynd sem á mikið erindi til samfélagsins í dag, og þetta er mjög gefandi verkefni af því að við þekkjumst orðið svo vel og vinnum vel saman.“
Tvær þáttaraðir af Silo eiga enn eftir að fara í sýningu hjá Apple streymisveitunni og það er enn nóg að gera hjá Atla við að semja fyrir þær.

Árstíðaskiptin með sínum skuggum og birtu á víxl, auk íslenskrar náttúru, er Atla innblástur þegar hann semur tónverk. Mynd: Juliette Rowland.
Eltist ekki við viðurkenningar
„Ég held að ég sé að elta augnablik, þegar ég hef náð að sameina tónlist og sögu í einhverju faðmlagi. Það er næstum því líkamleg tilfinning og þú veist það strax, það verður næstum því einhver alsæla þegar maður finnur þetta. Einhver uppljómun,“ segir Atli, aðspurður um það hvenær hann upplifi sín bestu augnablik í starfi.
„Takmarkið mitt er alltaf að ná að semja dýpri og betri tónlist og að starfa við þýðingarmikil verkefni,“ segir Atli, aðspurður um framtíðarsýnina. „Ef maður er að eltast við verðlaun og viðurkenningar, þá er maður ekki alveg á réttri leið. Ég tileinka mitt líf að segja sögur í gegnum tónlist og markmiðið er að ná sem lengst í því að segja góðar sögur.“
Þetta var þriðji og síðasti hluti viðtalsins við Atla Örvarsson á akureyri.net.
- FYRSTI HLUTI – „Á MYRKUM TÍMUM, ER LJÓSIÐ Í MANNFÓLKINU“
- Í GÆR – FINNUR TÓNINN SEM ER SANNUR Í SÖGUNNI
Hlekkir á fyrri umfjöllun akureyri.net um Atla og verkefni SinfoniuNord:
- 31. janúar 2025 – MIKILL SINFÓNÍSKUR KRAFTUR Á AKUREYRI
- 28. apríl 2024 – ATLI ÖRVARSSON FÉKK BAFTA-VERÐLAUNIN
- 15. ágúst 2021 – SÝNIR HVAÐ SINFONIA NORD HEFUR NÁÐ LANGT