Finnur tóninn sem er sannur í sögunni
Tónleikarnir 'Ljós í myrkri', með tónlist Atla Örvarssonar kvikmyndatónskálds, verða í Hofi á Skírdag. Meðal þeirra sem fram koma á tónleikunum er systir hans, söngkonan Þórhildur Örvarsdóttir. Það er því skemmtileg tenging, að allra fyrsta lagið sem Atli man eftir að hafa samið og skrifað nótur að, var einmitt lag fyrir Þórhildi á tíu ára afmælisdaginn hennar.
Það voru ekki bara bernskubrekin við tónsmíðar með systkinum sínum, sem höfðu áhrif á framtíð Atla sem kvikmyndatónskáld. Hann segir blaðamanni akureyri.net að tækifærin frá þrettán ára aldri til þess að spila með leikhúshljómsveitinni í Samkomuhúsinu hafi lagt grunninn að ástríðu hans fyrir því að glæða sögur lífi með tónlist.
Þetta er annar hluti viðtalsins við Atla Örvarsson á akureyri.net.
- Í GÆR – „Á MYRKUM TÍMUM, ER LJÓSIÐ Í MANNFÓLKINU“
- Á MORGUN – DÝRMÆTT AÐ GETA STARFAÐ Í HEIMABÆNUM
„Ég hef séð það, eftir á að hyggja, að starfið með Leikfélaginu hafði áhrif á mína framtíð af því að í dag er ég í rauninni að fást við samskonar verkefni. Það er einhver samruni eða samskeyti tónlistar og drama sem er aðalatriðið,“ segir Atli, en hann er í raun sögumaður með tónlist að vopni í starfi sínu í dag.
Að sjóða einhvern vegin tilfinninguna af því að vera á þessum stað, með þessu fólki, niður í tónlist. Það er það sem ég geri!
Atli hefur haft í nægu að snúast við að semja tónlist fyrir kvikmyndir, þætti og tölvuleiki fyrir framleiðslurisa á borð við Netflix, Sony og fleiri, síðan hann hóf ferilinn í Los Angeles. Fjölskyldan hefur síðan búið á Akureyri og London.

Atli býr í London ásamt konu sinni Önnu Örvarsson og yngri börnum þeirra tveimur, Óðni og Sóleyju. Þessi mynd er tekin þegar fjölskyldan bjó á Akureyri, fyrir viðtal í Morgunblaðinu árið 2018. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Að byggja heiminn í kringum söguna
„Þetta snýst allt um að segja söguna gegn um tónlist. Ég kalla þetta á ensku 'world-building', kannski hægt að segja að maður sé að skapa heiminn í kring um söguna. Þegar þú býður fólki að setjast niður og horfa á eitthvað í sjónvarpi eða bíó, þá ertu í rauninni að biðja það um að gleyma stað og stund og fara í ferðalag. Sökkva djúpt í einhverja sögu og tengjast einhverjum persónum og sögu þeirra.“
Framleiðsla kvikmyndar eða sjónvarpsþátta er langt ferli, sem er margþætt og flókið. Atli segir að það hafi tekist best til hjá honum í starfi, þegar hann fær að koma snemma inn í ferlið. „Þegar ég fæ að byrja að semja tónlistina jafnvel bara út frá handriti, áður en nokkuð er tekið upp, þá verður svolítið hrein sköpun af því að þá er ekkert sjónrænt að hafa áhrif á upplifun mína af sögunni. Ég set mig bara í spor persóna og ímynda mér heiminn. Að sjóða einhvern vegin tilfinninguna af því að vera á þessum stað, með þessu fólki, niður í tónlist. Það er það sem ég geri!“
Ég mæti alltaf nýjum áskorunum og nýjum sögum
„Ég byrja oftast á því að semja tónlist, ekki við myndina, heldur bara við mína upplifun af sögunni. Þarna verður til hráefni sem svo verður heildartónlistarmyndin, eða það sem kallast 'score' á ensku.“
„Ég kalla það oft að finna sannleikann, þegar ég sem tónlist við myndir eða þætti. Það eru náttúrlega milljón mismunandi leiðir að útkomunni, en það er einhver tónn sem þarf að finna sem er sannur í sögunni. Það er í rauninni lykillinn að þessu öllu saman.“

Vistarverur sögupersónanna í Silo er í risavöxnum tönkum neðanjarðar. Hvernig er hljóðheimur fólks sem býr allt sitt líf í myrkri? Atli sótti innblástur í íslenska skammdegið þegar hann samdi tónlistina fyrir þáttaröðina. Silo er framleidd af Apple, en Atli hlaut Bafta verðlaunin 2024 fyrir tónlistina í þáttunum. Mynd: space.com
Vel heppnað bíó kemst inn að hjartanu
Atli segist ekki komast hjá því að vera meðvitaður um tónlistina, þegar hann horfir á kvikmynd eða þátt, en oft á tíðum þá gleymi hann að hlusta og hverfi inn í söguna. „Það þýðir að verkefnið var leyst vel af hendi frá tónskáldinu, þegar þú hlustar ekki á tónlistina og veltir henni fyrir þér, heldur heyrir hana sem hluta af heildar upplifun sögunnar.“
„Ef þú ert að horfa á mynd og hlusta og greina, þá er heilinn að vinna. Ef sagan nær hjartanu, þá færist vægið yfir í það að lifa sig inn í myndina. Þá hafa allir sem að verkefninu staðið gert sitt vel.“
Hvernig er daglegt líf kvikmyndatónskálds?
Atli leggur mikla áherslu á, þó að það kunni að hljóma leiðinlega, að skipulagshæfni sé lykilatriði. „Ég er með allskonar verkefni, og það eru alltaf einhverjir skiladagar sem verður að standa við. Oft á tíðum þarf að endurskrifa ítrekað í samvinnu við leikstjóra og hlutirnir fara fram og aftur. Grunnurinn að þessu er að geta unnið skipulega, fylgt tímalínu og skila af sér á réttum tíma. Á hinn bóginn, þá eru engir tveir dagar eins, ég mæti alltaf nýjum áskorunum og nýjum sögum. Nýjir heimar og nýjar senur.“
Það er kannski svolítið órómantískt, hvað þetta er allt skipulagt!
„Það er eiginlega bara þjálfun, að læra að halda skipulagi í skapandi vinnu,“ segir Atli. „Einn hluti dagsins fer í hreina sköpun, svo er unnið úr því og svo er heilmikið utanumhald og skipulagsvinnan tekur tíma líka. Það er í rauninni bara kostur, í skapandi vinnu, að hafa skarpa tímaramma. Þú einfaldlega verður að semja þetta, og þá gerirðu það! Það er oft kannski svolítill misskilningur, finnst mér, að það sé andstætt sköpun að hafa tímamarkmið. Ég held að það sé öfugt, og það sé í raun mjög hvetjandi til sköpunar að halda sér við efnið.“

Hluti af tónlistinni fyrir Silo var tekin upp í aflögðu sílói í Djúpuvík á Ströndum. Mynd: Juliette Rowland
Skipulagið er þjálfun
Atli vinnur ekki einn, en hann hefur teymi af góðu fólki með sér sem hjálpa við að útsetja, taka upp og framleiða. „Mér hefur einfaldlega boðist meiri vinna heldur en einn maður getur sinnt. Svo er þetta allt saman þjálfun, bæði það að semja tónlist fyrir kvikmynd og að halda úti teymi í kring um það, það er þjálfun að læra að fara í göngutúra á réttum tíma dags til þess að endurhlaða ferskleika hugans. Það er kannski svolítið órómantískt, hvað þetta er allt skipulagt! Ég vakna bara kl. 7.30, krakkarnir fara í skólann og ég fer að vinna.“
„Ég las einhvern tíma sjálfsævisögu Igor Stravinsky, en hann sagðist ekki trúa á innblástur, heldur á að vinna skipulega og vera duglegur. Ef þú ert bakari, þá vaknar þú á morgnana og bakar. Ef þú ert tónskáld, þá vaknar þú á morgnana og semur tónlist. Þetta er ekkert flóknara en það.“
„Ég get kannski ekki útskýrt alveg, hvernig maður fær tækifæri til þess að vinna við þetta. Eitthvað samspil hæfileika, heppni og að kynnast rétta fólkinu. Númer eitt er svo að mæta og skila á réttum tíma þegar tækifærin bjóðast, og þá verður þér boðið aftur,“ segir Atli.
Líta á Akureyri sem sitt annað heimili
Atli býr í London ásamt fjölskyldu sinni, eiginkonunni Önnu Örvarsson og yngri börnum, þeim Óðni og Sóley. Hildur Svava er elst og býr á Selfossi með fjölskyldu sína. Þau koma þó reglulega til Akureyrar og öll fjölskyldan lítur á Akureyri sem sitt annað heimili. „Yngri börnin tvö eru reyndar fædd í Los Angeles, en þau ólust upp á Akureyri og líta á sig sem Íslendinga. Konan mín er frá Bandaríkjunum en hún hefur samt mjög sterka tengingu við Akureyri og Ísland. Það er mikilvægur þáttur í lífi okkar að koma heim annað slagið,“ segir Atli.
Næsta ferð til Akureyrar verður fyrir tónleikana 'Ljós í myrkri', en þá ætlar Atli að bera fjölbreytta tónlist á borð fyrir heimafólk sitt.
Við heyrum meira um tónleikana og efni þeirra, auk þess að fara með Atla ofan í Sinfó Nord ævintýrið í næsta og síðasta hluta viðtalsins sem birtist á morgun, sunnudag, á akureyri.net.
- Í GÆR – „Á MYRKUM TÍMUM, ER LJÓSIÐ Í MANNFÓLKINU“
- Á MORGUN – DÝRMÆTT AÐ GETA STARFAÐ Í HEIMABÆNUM