Fara í efni
Mannlíf

„Á myrkum tímum, er ljósið í mannfólkinu“

Atli Örvarsson. Mynd: aðsend

Þegar Atli Örvarsson, kvikmyndatónskáld frá Akureyri, hlaut Bafta verðlaunin fyrir tónlistina í þáttaröðinni Silo, hafði hann orð á því í ræðu sinni að leikstjórinn hefði viljað fá tónskáld frá norður-Íslandi. Þættirnir eru framtíðardystópía um samfélag manna sem býr í tönkum neðanjarðar, og myrkrið sem einkennir norðurhjara var einmitt það sem leikstjórinn vildi nálgast. Hver getur samið hljóðheim myrkurs? Jú, auðvitað Íslendingur.

Á tónleikunum ætlum við að bjóða upp á svolítinn þverskurð af því, hver ég er sem tónskáld í dag

Á skírdag verða tónleikar í Hamraborg í Hofi, þar sem tónlist Atla verður flutt. Tónleikarnir bera heitið 'Ljós og myrkur'.

„Að alast upp í skammdeginu á Íslandi hefur mikil áhrif á okkur,“ segir Atli við blaðamann akureyri.net. „En svo fáum við á móti endalaust ljós á sumrin. Þetta samspil ljóss og myrkurs held ég að hafi verið innblástur fyrir mig í tónsköpun bæði fyrir þættina Silo og oftar.“

 

Ljós í myrkri, tónleikar í Hofi á Skírdag. Mynd: MAk.

Atli hefur samið nýtt verk fyrir tónleikana, sem hann kallar 'Luminescence' eða 'Ljós í myrkri'. „Það er viðeigandi að tónleikarnir verði haldnir núna, með hækkandi sól og við erum farin að sjá glitta í sumarið. Á myrkum tímum, þá er ljósið í mannfólkinu. Kærleikur og okkar æðri hvati sem manneskjur lýsir leið.“

„Á tónleikunum ætlum við að bjóða upp á svolítinn þverskurð af því, hver ég er sem tónskáld í dag,“ segir Atli um efnisskrá tónleikanna. „Bæði er um að ræða tónlist af plötum sem ég hef gefið út og var tekin upp á Akureyri. Ég var að vinna í þessum plötum þegar ég bjó í bænum frá 2015 - 2022. Fyrstu stefin sem ég samdi fyrir Silo voru líka samin heima á Akureyri. Þetta tengist allt saman.“

Þetta er fyrsti hluti viðtals akureyri.net við Atla Örvarsson.

  • Á MORGUN FINNUR TÓNINN SEM ER SANNUR Í SÖGUNNI
  • Á SUNNUDAG DÝRMÆTT AÐ GETA STARFAÐ Í HEIMABÆNUM

Atli er fæddur og uppalinn á Brekkunni á Akureyri. Til þriðja bekkjar var hann í Barnaskóla Akureyrar, fór því næst í Lundarskóla, svo í Gaggann og loks Menntaskólann á Akureyri. „Ég var í Tónlistarskólanum á Akureyri allan tímann, en ég var bara fimm eða sex ára þegar ég byrjaði að læra á hljóðfæri. Það var alveg mögnuð starfsemi í Tónó, en ég spilaði aðallega á trompet á þessum tíma, og man eftir allskonar tækifærum sem eru ekkert endilega svo sjálfsögð fyrir ung börn.“

„Ég var ekki nema tólf ára þegar ég fékk að spila með sinfóníuhljómsveit og stórhljómsveit,“ rifjar Atli upp. „Þrettán ára fór ég að spila í Samkomuhúsinu með leikhúshljómsveitinni, en það var mitt fyrsta gigg sem atvinnumaður í tónlist. Leikfélagið setti upp My fair lady, en sýningin naut gríðarlegra vinsælda og mig minnir að við höfum sýnt 63 sinnum í allt.“

Það kom í ljós að tónlistin velur þig, þú velur hana ekki

Þetta var annasamt ár í lífi þrettán ára Atla, en hann hafði fengið vinnu í matvöruverslun KEA í Hrísalundi við að vera 'pokadýr', en blaðamaður er of ungur til þess að muna eftir þeim starfstitli. „Það voru börn sem settu matvörur í poka fyrir viðskiptavini, en þetta þótti eðlilegt og sjálfsagt þá. Eftir skóla á föstudögum, fór ég í Hrísalund og setti í poka frá svona 15-19, og svo beint niður í Samkomuhús að spila á sýningu. Þetta var löng sýning, og ég var að klára yfirleitt um miðnætti. Þarna var ég bara kominn í harðkjarna vinnudag!“

Tónskáldið hefur alltaf blundað í Atla, en hann hefur verið að setja saman tóna og lög frá því að hann man eftir sér. Ungur fór hann að vera í hljómsveitum að spila popp og rokk og samdi þá gjarnan allskonar lög.

 

Hluti Stórsveitar – Big band – Tónlistarskólans á Akureyri, á tónleikum í Sjallanum í febrúar árið 1989. Trommarinn Ingvi Rafn Ingvason, Birgir Karlsson gítarleikari og Atli Örvarsson við hljómborðið.

Reyndi samviskusamlega að hætta

Þrátt fyrir að tónlistin hafi fylgt Atla svo náið í uppvextinum, var hann þó ekki sannfærður um framtíðarmöguleikana á tónlistarsviðinu og segir blaðamanni að hann hafi verið búinn að reyna samviskusamlega að hætta þessu og gera eitthvað skynsamlegra. „Það kom í ljós að tónlistin velur þig, þú velur hana ekki, þannig að mér tókst ekkert að skilja við hana. Ég fór því í tónlistarnám til Bandaríkjanna, þó með frekar óskýra sýn um hvað ég vildi gera og vissi bara að ég vildi og þurfti að vera tónlistarmaður.“

Atli tekur fram, að í dag sé það töluvert vænlegri kostur að leggja fyrir sig tónlist, þar sem mörg hafi atvinnu af því að kenna og spila í hljómsveitum samhliða eigin tónlistarsköpun. „Þegar ég var að alast upp, var það ekkert eins sjálfsagt og það er í dag að tónlist gæti verið fullt starf.“

Þetta var einfaldlega einhver köllun og ég fylgdi henni. Ég fann fjölina 

Þegar Atli hóf nám í Berklee College of Music í Boston var hann 22 ára. „Það eru svo fjölbreyttir möguleikar í náminu þarna, og stöðugt hægt að velja sér einhver aukafög til þess að kynnast einhverju nýju. Ég hafði alltaf haft áhuga og yndi af kvikmyndum og kvikmyndatónlist, en hafði hlustað mikið á Ennio Morricone og Zbigniew Preisner, sem dæmi. Þegar ég svo kom auga á kynningaráfanga í kvikmyndatónlist í skólanum, ákvað ég að skrá mig. Það var eiginlega bara ást við fyrstu sýn, vegna þess að í fyrsta skipti sem ég samdi tónlist við mynd, gerðist eitthvað. Ég bara fann minn vettvang fyrir sköpun og hef ekki litið um öxl síðan.“

Margt breyst á þremur áratugum

Á þessum tíma, um 1993, var kvikmyndaiðnaður á Íslandi ekki jafn þroskaður og hann er núna segir Atli. „Ég sá svo sem ekki mikla möguleika heima á þessum tíma, en þetta var einfaldlega einhver köllun og ég fylgdi henni. Ég fann fjölina.“

Það er skiljanlegt, að árið 1993 hafi Atli ekki getað séð fyrir sér að í framtíðinni ætti hann hins vegar eftir að framleiða hverja tónlistarperluna á fætur annarri fyrir kvikmyndir og þáttaraðir í heimabænum Akureyri.

 

Þetta var fyrsti hluti viðtalsins við Atla Örvarsson, næsti hluti verður birtur á morgun, laugardag. Heyrum þá um það, hvernig daglegt líf kvikmyndatónskálds lítur út, hið órómantíska skipulag sem lykilinn að skapandi vinnu o.fl.

  • Á MORGUN FINNUR TÓNINN SEM ER SANNUR Í SÖGUNNI
  • Á SUNNUDAG DÝRMÆTT AÐ GETA STARFAÐ Í HEIMABÆNUM