Fara í efni
Menning

Sesselía Ólafs er bæjarlistamaður

Sesselía Ólafs er bæjarlistamaður Akureyrar 2023. Ljósmynd: Jón Tómas Einarsson

Sesselía Ólafs er bæjarlistamaður Akureyrar árið 2023. Þetta var tilkynnt í rafrænni útsendingu Vorkomu Akureyrarbæjar sem hófst á samfélagsmiðlum kl. 17 í dag, sumardaginn fyrsta. Einnig voru veittar viðurkenningar vegna mannréttindamála og heiðursviðurkenning Menningarsjóðs.

Sesselía fæddist árið 1987 og ólst upp á Akureyri og í Hörgárdal. Hún hefur stundað tónlist, leiklist og ritlist síðan hún lauk námi í leikstjórn og leiklist í London árið 2012.

Í tilkynningu frá Akureyrarbæ segir:

  • Sesselía hefur leikið í ýmsum sviðsverkum og kvikmyndum, hérlendis og erlendis, en hún hefur einnig samið handrit fyrir og leikstýrt verðlaunastuttmyndunum Umskipti og Betur sjá augu.
  • Hún er annar stofnenda gríndúettsins Vandræðaskálda og átti þátt í stofnun leikhópsins Umskiptinga, en undir þeirra formerkjum hefur hún samið handrit, lög og ljóð.
  • Haustið 2021 gaf Sesselía út pastelverkið og ljóðabókina Leiðslu og undanfarið ár hefur hún unnið að handriti fræðilega tónlistaruppistandsverksins Móðir, kona, meyja.
  • Bæjarlistamaður Akureyrar 2023 mun verja starfslaunatímabilinu í að semja og útsetja tónlist verksins, ásamt því að ljúka fyrsta uppkasti fantasíuskáldsögunnar Silfurberg. Þá mun hún vinna að verkefninu List getur List, en lokaafurð þess verkefnis verður sýnt á Akureyrarvöku í haust.

Að þessu sinni sóttu átta einstaklingar um listamannalaun, fjórir karlmenn og fjórar konur. Í faghópnum sátu Margrét Jónsdóttir, Daníel Þorsteinsson og Hólmkell Hreinsson. Við val á bæjarlistamanni var fyrst og fremst horft til þriggja meginþátta: þess sem listamaðurinn hefur unnið að á undanförnum árum, þeirra verkefna sem listamaðurinn ætlar að sinna á tímabilinu og auðga þar með menningarlíf bæjarins og þess að hann búi og starfi á Akureyri.

Viðurkenningar vegna mannréttindamála eru í þremur flokkum:

  • Stofnunin sem hlaut viðurkenningu að þessu sinni er Amtsbókasafnið á Akureyri
  • Femínistafélag Menntaskólans á Akureyri, FemMA, hlýtur viðurkenningu í flokki félagasamtaka.
  • Sá einstaklingur sem hlýtur mannréttindaviðurkenningu Akureyrarbæjar 2023 er Fayrouz Nouh fyrir að miðla reynslu sinni sem flóttamaður, fræða, rannsaka og opna umræðu um menningarlegar hindranir flóttakvenna.
  • Heiðursviðurkenningu Menningarsjóðs Akureyrar hlýtur að þessu sinni Óskar Pétursson söngvari fyrir langan og farsælan feril og mikilsvert framlag til menningarmála á Akureyri.
  • Sumarstyrk ungra listamanna á aldrinum 18-25 ára hlýtur Egill Andrason en styrkurinn er til þess ætlaður að ungur listamaður geti helgað sig sköpun og æfingum þegar hlé er gert á námi yfir sumartímann. Egill er fjöllistamaður og sviðshöfundur sem leggur áherslu á tónlist, framkomu og skrif.

Þess er loks að geta að Menningarsjóður Akureyrar styrkir árlega ýmis menningarverkefni og í ár voru veittir 18 verkefnastyrkir að upphæð samtals 4.190.000 kr. og gerðir þrír samstarfssamningar að andvirði 750.000 kr.