Hlýlegar skáldsögur um mannleg samskipti
AF BÓKUM – 97
Í dag skrifar Dagný Davíðsdóttir
_ _ _
Mig langar að tala um jólabækur Sarah Morgan. Þegar það fer að dimma og kólna og jólaljósin fara að birtast í gluggum bæjarbúa fæ ég fiðringinn til að fara að lesa jólabók. Síðustu ár hef ég alltaf lesið nýjustu jólabók sem Sarah Morgan gefur út fyrir jólin. Bók ársins, Bestu jól í heimi, kemur út í þessari viku svo ég get ekki fjallað um hana, en tek þá bókina frá því í fyrra í staðinn.
Bókin Lygileg jól kom út fyrir jólin 2025. Sagan í henni fléttast í kringum þrjár konur sem allar standa frammi fyrir áskorunum í einkalífinu. Becky er á leið heim um jólin þegar ferðalagið tekur óvænta stefnu og hún neyðist til að horfast í augu við tilfinningar sem hún hefur reynt að forðast. Rosie hefur nýlega gengið í hjónaband en uppgötvar fljótt að hjónalífið er ekki alltaf jafn einfalt og hún hafði ímyndað sér. Hayley er hins vegar að undirbúa fyrstu jólin með fjölskyldu eiginmanns síns og leggur mikið á sig til að allt verði fullkomið, þótt hún hafi sjálf áhyggjur sem hún vill helst halda leyndum.
Sarah Morgan er þekkt fyrir hlýlegar og rómantískar skáldsögur um mannleg samskipti. Í Lygileg jól tekst henni að skapa notalega jólastemningu um leið og hún fjallar um málefni sem margir þekkja úr eigin lífi. Jólabækurnar hennar eru einfaldar og huggulegar sögur og því tilvaldar fyrir þá sem vilja koma sér í jólaskap. Þetta er pínu eins og að drekka góðan kakóbolla með rjóma.