Litríkt og krúttlegt en ekki er allt sem sýnist
AF BÓKUM – 96
Í dag skrifar Reynir Elías Einarsson
_ _ _
Sagan fjallar um birnuna Samönthu. Hún rekur byggingavöruverslunina í friðsæla bænum Woodbrook og á í góðum samskiptum við nágranna sína. Samfélagið er afar vinalegt og allir hjálpast að. Samantha á sér hins vegar eitt afar óhefðbundið áhugamál, því hún stundar raðmorð í frístundum sínum. Hún fylgir þó einni strangri reglu og myrðir aldrei í nágrenni heimabæjar síns til að vekja ekki athygli á sér eða trufla kyrrðina í Woodbrook.
Líf hennar umturnast því þegar lík finnst í bænum. Einhver annar hefur hafið morðhrinu á hennar heimaslóðum og sá aðili gengur mun kærulausar til verks en hún hefur tamið sér. Samantha þarf að finna hinn seka og koma um leið í veg fyrir að hennar eigin glæpir komist upp.
Andstæðan á milli litríkra pastelteikninga af krúttlegum dýrum og ofbeldis er sláandi og skapar alveg sérstakt andrúmsloft sem minnti óneitanlega á þættina Happy Tree Friends. Frásögnin er beitt og fangar athyglina strax frá fyrstu blaðsíðu. Höfundurinn tekst á við kunnugleg stef úr glæpasagnahefðinni en setur þau í nýtt og óvenjulegt samhengi.
Verkið er drungalegt og grípandi og alls ekki við hæfi barna, þrátt fyrir stílinn. Fyrir þau sem hafa gaman af blóðugum spennusögum sem fara ótroðnar slóðir er þessi teiknimyndasaga afbragðs lesning. Þess má svo geta að framhaldið, Beneath the Trees Where Nobody Sees: Rite of Spring, er einnig komið í hillur Amtsbókasafnsins.