McFadden – ef þú vilt grípa í eitthvað fljótlesið
AF BÓKUM – 91
Í dag skrifar Dagný Davíðsdóttir
_ _ _
Ég ætlaði mér að lesa 30 bækur árið 2026 en hefur gengið frekar illa að halda plani og aðeins dregist aftur úr. Þegar mann vantar nokkrar bækur upp í til að halda góðu tempói er gott að geta gripið í eitthvað fljótlesið. Þar kemur höfundurinn Freida McFadden sterk inn.
McFadden er einstaklega afkastamikill höfundur en hún heitir í raun Sara Cohen og starfar sem læknir sem sérhæfir sig í heilabilun og heilaskaða. Hún kom fram undir eigin nafni fyrir nokkrum árum þegar það voru samsæriskenningar um að höfundurinn Freida McFadden væri í raun þrír karlmenn. Hún hefur gefið út 30 bækur á 13 árum sem er alveg merkilega mikið miðað við að vinna sem læknir samhliða skrifunum, en hún hefur þó minnkað við sig læknastarfið en vill ekki hætta alveg.
Ég gríp í McFadden þegar mig vantar eitthvað fljótlesið með hraðri atburðarrás, en get ekki lesið margar í röð þó því þær eru svolítið svipaðar. Núna er ég búin að lesa The Housemaid, The Inmate, Never Lie, The Divorce og Do Not Disturb. Bækurnar eru allar mjög spennandi og oftar en ekki með góðu „plot twisti“ þegar maður heldur að maður sé alveg búinn að ráða fram úr gátunni. Þetta eru stuttir en ágætir sálfræðitryllar sem ég mæli með að grípa í þegar ykkur vantar eitthvað fljótlesið sem heldur manni við efnið.
Það eru komnar þrjár bækur eftir hana á íslensku; Heimilishjálpin, Heimilishjálpin: Leyndarmálið og Heimilishjálpin sér allt, en þessar bækur eru þríleikur. Von á fjórðu bókinni hennar á íslensku núna í október en hún heitir Nornin og kemur út á sama tíma og bókin kemur út erlendis. Það er mjög spennandi og ég mun klárlega panta hana þegar hún kemur í hús!