Áhugaverð, djúp innsýn í japanska menningu
AF BÓKUM – 89
Í dag skrifar Aija Burdikova_ _ _
Ég hef lengi haft áhuga á japanskri menningu og þess vegna ákvað ég að lesa bók sem leit út fyrir að vera um vellíðan í japönskum stíl. En þessi bók var alls ekki eins og ég bjóst við, hún kom mér hins vegar skemmtilega á óvart og reyndist allt öðruvísi en ég hafði gert mér í hugarlund.
Hiroko Yoda er þýðandi sem hefur menntað sig sem dansari við shintó-helgidóma, tekið þátt í búddískum helgisiðum og gengið á heilög fjöll til að öðlast dýpri skilning á japönskum hefðum og þeim lífssannindum sem þær fela í sér. Í þessari sjálfsævisögulegu bók segir hún frá reynslu sinni af því að vera bæði Japani og innflytjandi og hvernig sú reynsla hefur breytt sýn hennar á japanska menningu og eigið líf. Bókin er ferðalag inn í þær hefðir sem móta líf Japana.
Samkvæmt alþjóðlegum könnunum teljast Japanir ein af þeim þjóðum sem lýsa hvað síst yfir trúarlegri sannfæringu. Bókin útskýrir þetta með því að hugtakið trúarbrögð hefur aðra merkingu í Japan en víða á Vesturlöndum. Trú er þar sveigjanlegra og flæðandi hugtak. Margir iðka hefðbundna búddíska og shintó-siði fyrst og fremst af menningarlegum ástæðum fremur en vegna persónulegrar trúar. Oft er sagt að fólk í Japan fæðist sem shintóistar, giftist samkvæmt kristnum siðum og deyi sem búddistar.

Dagar mínir í Morisaki-bókabúðinni (2010) – Satoshi Yagisawa
Þessi skáldsaga kom út á íslensku í ár en hefur notið mikilla vinsælda víða um heim undanfarin ár. Hún er stutt og hlýleg saga um lífið í nútíma Japan þar sem ást á bókum er í forgrunni. Sagan gerist í Kanda-Jinbōchō-hverfinu í Tókýó, sem er þekkt fyrir bókaforlög og fornbókasölur.
Þegar Takako missir bæði kærastann sinn og vinnuna fær hún óvænt tækifæri til að hefja nýjan kafla í lífi sínu. Hún flytur til frænda síns sem rekur litla fornbókabúð í Tókýó. Morisaki-bókabúðin verður henni kyrrlátur griðarstaður, fullur af hlýju, bókum og sögum. Þar hefst ferðalag sem breytir lífi hennar.
Þetta er einstaklega notaleg bók fyrir alla sem hafa yndi af bókabúðum og lestri. Eftir að hafa lesið Eight Million Ways to Happiness var sérstaklega áhugavert að fá dýpri innsýn í japanska menningu, sem gerði lesturinn á Dögum mínum í Morisaki-bókabúðinni enn ánægjulegri og merkingarbærri.