Fara í efni
Menning

„Niðursuðuvörur í sérstökum gæðaflokki“

SÖFNIN OKKAR – 132

Frá Iðnaðarsafninu á Akureyri_ _ _

Akureyri.net heldur áfram að opna dyr safnanna í bænum lesendum til fróðleiks og skemmtunar. Það er gert vikulega, á fimmtudögum.


Stóran hluta 20. aldar voru tveir framleiðendur á Akureyri fremstir í flokki þegar kom að niðursoðnum matvælum; annars vegar Kjötiðnaðarstöð KEA og hins vegar Niðursuðuverksmiðja K. Jónssonar & Co. Iðnaðarsafnið á Akureyri varðveitir ýmsar tegundir af niðursuðuvörum frá báðum aðilum og eru þær til sýnis á safninu. Að þessu sinni birtum við hér myndir af fjölbreyttum niðursuðuvarningi sem KEA bauð upp á, en síðar á þessum vettvangi verður fjallað um Niðursuðuverksmiðju K. Jónssonar & Co.

Kjötiðnaðarstöð KEA var stofnuð árið 1966 í húsi á Oddeyrartanga sem þá var nýbyggt. Kjötvinnsla var þó langt því frá ný af nálinni hjá félaginu. Pylsugerð KEA var stofnuð árið 1934 og kjötbúð KEA hafði um árabil boðið upp á ýmsar kjötvörur. Nýja húsið á Oddeyrartanga var útbúið fullkomnum vélbúnaði. Þar voru til dæmis ýmis konar niðursuðuvélar og var þá stóraukið við framleiðslu á niðursuðuvörum. Kjötiðnaðarstöðin bauð upp á ýmsar gerðir af niðursoðnum kjötvörum, s.s. steikta lifur í lauksósu, kindakæfu, bæjarabjúgu og grillpylsur, nautakjöt, kjötbollur og fleira. Þá voru einnig nokkrar tegundir af meðlæti, til dæmis grænar baunir, gulrætur í bitum og blandað grænmeti.

Kjötiðnaðarstöð KEA auglýsir niðursoðnar kjötvörur í miklu úrvali. Vorið 35, nr. 4 (1969).

Af kjötvörunum var saxbauti (nautabuff) einna vinsælastur, bæði til þess að hafa í matinn heima en einnig og ekki síst í útilegum. Við einfalda leit á timarit.is eru þó nokkur dæmi um að barnabörn skrifi minningargreinar um afa sinn eða ömmu þar sem rifjaðar eru upp útileguferðir. Þá var saxbauti eða grillpylsur oft hafðar með og myndaðist yfirleitt góð stemning í kringum það sem skapaði ljúfar minningar. Skapti Hallgrímsson, ritstjóri og stofnandi Akureyri.net, lýsir þessari stemningu vel í pistli er birtist í Morgunblaðinu 6. ágúst 2011 (bls. 22), þegar hann rifjaði upp útilegu úr æsku; „Allt er eins og best verður á kosið; saxbauti frá Kjötiðnaðarstöð KEA hitaður upp á prímus í kvöldlogninu, skolað niður með Jolly Cola eða Valash“.


Árið 2000 sameinaðist Kjötiðnaðarstöð KEA Kjötiðju KÞ á Húsavík undir nafninu Norðlenska. Hafði þá nokkuð dregið úr vinsældum á niðursoðnum mat. Spilaði þar líklega inn í aukið framboð á ýmis konar skyndibita hér á landi. Eflaust fá þó einhverjir vatn í munninn í bland við nostalgíu við að sjá myndir af gömlum niðursuðudósum frá Kjötiðnaðarstöð KEA.

Iðnaðarsafnið er opið alla daga í sumar frá 11–17.

Unnið að pökkun á nautasmásteik á Kjötiðnaðarstöð KEA. Ljósmynd úr safni KEA: Gunnlaugur P. Kristinsson/Minjasafnið á Akureyri.