Meira var um gjafir í byrjun sumars en um jól
SÖFNIN OKKAR – 120
Frá Minjasafninu á Akureyri_ _ _
Akureyri.net heldur áfram að opna dyr safnanna í bænum lesendum til fróðleiks og skemmtunar. Það er gert vikulega, á fimmtudögum.
Sumargjafir
Sumardagurinn fyrsti, einnig kallaður Yngismeyjardagur, markar upphaf Hörpu í gamla norræna tímatalinu. Sumardagurinn var einn mesti hátíðardagur landsmanna og meiri gjafadagur en um jól. Þessi hátíðisdagur er þekktur frá 16. öld og tíðkaðist að gefa bæði börnum og fullorðnum gjafir í tilefni sumarkomunnar. Flestar gjafir voru heimagerðar og hvíldi mikil leynd og spenna yfir gerð þeirra. Algengt var að sumargjafir væru fatnaður; sokkar, vettlingar, íleppar, klútar og svuntur en einnig sálmabækur og smíðisgripir, t.d. kommóður og kistlar.

Þessi gjafasiður þekktist um land allt en virðist hafa verið algengastur Norðanlands og einna rótgrónastur í Eyjafirði. Hér rifjar Snjólaug Jóhannesdóttir (1888–1974) frá Göngustaðakoti í Svarfaðardal upp eftirminnilega sumargjöf:
Ég gleymi því aldrei, hvað mér fannst mikið til um sumargjöf, sem gömul kona gaf mér, þegar ég var eitthvað sjö, átta ára gömul, en það voru röndóttir sokkar, og var önnur röndin rauð en hin hvít.

Með auknu verslunarfrelsi á 19. öld jókst vöruúrval og var farið að gefa ýmsan innfluttan varning í sumargjafir, ekki síst fyrir fullorðna s.s. postulínsstyttur, blómavasa, myndaramma, reykjarpípur, þvottabala og gólfmottur. Á 20. öld fór vegur jólagjafa sífellt vaxandi á kostnað sumargjafa. Sumargjafir eru nú fyrst og fremst ætlaðar börnum og tækifærið oft nýtt til að endurnýja föt og skó. Þá hafa margir fengið sitt fyrsta hjól eða hlaupahjól þennan dag. Leikföng eru sígild sumargjöf t.d. sápukúlur, boltar og sandkassadót.
Á meðfylgjandi myndum getur að líta leikföng og fatnað frá ýmsum tímum sem gætu vel hafa verið sumargjafir. Leikföngin eru til sýnis í Nonnahúsi, en í dag, á sumardaginn fyrsta og Eyfirska safnadaginn er frítt inn í Nonnahús og fleiri söfn á Akureyri og Eyjafjarðarsvæðinu. Gleðilegt sumar!

15. apríl 1886 auglýsti Björn Símonarson gull- og úrsmiður á Akureyri í Fróða ýmsa smíðagripi sem þóttu henta vel til sumargjafa. Mun þetta vera ein elsta auglýsing frá Akureyri þar sem auglýstar eru til sölu sérstakar sumargjafir.
