Menning
Langelstur – Um vináttu sem spyr ekki um aldur
10.06.2025 kl. 06:00

AF BÓKUM – 30
Starfsfólk Amtsbókasafnsins á Akureyri segir lesendum Akureyri.net alla þriðjudaga frá bók eða bókum. Uppátækið vekur vonandi athygli á bókakosti safnsins, þar sem af nógu er að taka, og glæðir áhuga sem flestra á bóklestri.
Í dag skrifar Eydís Stefanía Kristjánsdóttir_ _ _
Langelstu bækurnar eftir Bergrúnu Írisi
Bergrún Íris Sævarsdóttir hefur gert fjórar bækur um vinina Eyju og Rögnvald. Langelstur í bekknum, Langelstur í leynifélaginu, Langelstur að eilífu og Langelstur á bókasafninu.
Í bókunum er sagt frá einstakri vináttu Eyju sem er í fyrsta bekk og Rögnvaldar sem er eldgamall karl sem er enn þá fastur í fyrsta bekk því hann kann ekki að lesa. Frá fyrsta degi verða þau góðir vinir og Eyja setur sér það markmið að kenna Rögnvaldi að lesa svo hann komist með henni í annan bekk. Eyja og Rögnvaldur bralla ýmislegt saman og eignast nýja vini.
Rögnvaldur heldur þó áfram að eldast og er orðinn 97 ára gamall og í bókinni Langelstur í leynifélaginu þarf Rögnvaldur gamli að flytja á elliheimili. Eyja eyðir því sumrinu með Rögnvaldi á Ellivöllum þar sem hún og vinir hennar stofna leynifélag og setja af stað rannsókn til þess að sanna það að forstöðukona heimilisins sé vélmenni. Eyja heldur áfram að kenna Rögnvaldi að lesa og kennir honum á klukku.
Í bókinni Langelstur að eilífu fer heilsu Rögnvaldar að hraka. Eyja og Rögnvaldur búa til lista yfir það sem Rögnvaldur vill gera áður en hann deyr. Á listanum eru atriði eins og að fá sér húðflúr, fara í fallhlífastökk, fara í bíó og á trampólín. Vinirnir ná að klára listann áður en Rögnvaldur deyr. Sama dag og Rönvaldur er jarðaður eignast Eyja lítinn bróður.
Í Langelstur á bókasafninu saknar Eyja Rögnvaldar. Hún fer á bókasafnið með pabba sínum en þar nær hún að töfra Rögnvald fram með ímyndunaraflinu sínu. Á bókasafninu upplifa Rögnvaldur og Eyja stórkostlegan heim barnabókanna og ólíkar tegundir bóka. Þau lesa ástasögur, dýrasögur, ljóðabækur, krimma og fleira. Þau vinna úr bókunum ólík verkefni og gefa okkur góð ráð. Bókasafnið er nú uppáhaldsstaðurinn hennar Eyju því þar býr Rögnvaldur.
Bækurnar eru dásamlega skrifaðar um vináttu sem spyr ekki um aldur. Höfundur nær að skrifa um veikindi og dauða Rögnvaldar á nærgætinn og auðskilinn hátt sem hentar vel ungum börnum. Skemmtilegar og auðlesnar bækur sem börnin geta lesið sjálf eða foreldrar geta lesið fyrir þau.