Fara í efni
Menning

Hef varla lagt þessar bækur frá mér í sumar

AF BÓKUM – 84

Starfsfólk Amtsbókasafnsins á Akureyri segir lesendum Akureyri.net frá bók eða bókum á þriðjudögum. Það vekur vonandi athygli á bókakosti safnsins, þar sem af nógu er að taka, og glæðir áhuga sem flestra á bóklestri.
 

Í dag skrifar Reynir Elías Einarsson_ _ _

Ég get ekki annað en mælt með bókunum um Dungeon Crawler Carl, sem ég hef varla lagt frá mér í allt sumar. Bækurnar eru orðnar átta, þær eru líka byrjaðar að koma út á teiknimyndasöguformi og einnig eru í bígerð sjónvarpsþættir.

Geimverur fletja út jörðina og breyta henni í sögusvið raunveruleikasjónvarpsþátta. Eftirlifendur þurfa að berjast upp á líf og dauða! En svo eru líka galdrar. Svolítið eins og Dungeons and Dragons mæti Hunger Games. Bækurnar eru svokallaðar LitRPG, sem þýðir að heimurinn er byggður upp eins og tölvuleikur eða hlutverkaspil.

Aðalpersónurnar eru Carl og Princess Donut, sem er persneskur köttur með sólgleraugu og gríðarlegan áhuga á hvers kyns höfuðfötum. Princess Donut á gæludýr, sem er risaeðlan Mongo. Kerfið sem stjórnar þessu öllu er svo vitaskuld gervigreind með fótablæti. Og já, ég var næstum búinn að gleyma Samönthu. Hún er haus af kynlífsdúkku. Hún rúllar um og bítur í ökkla óvinanna með latex tönnum sínum.

Ég geri mér grein fyrir því að þetta hljómar eins og eintómur ærslagangur sem yrði fljótt þreytandi. En í bók númer tvö, þegar Donut játar svolítið fyrir Carl, sá ég að þetta væri eitthvað meira. Persónuþróun hennar úr hégómlegum verðlaunaketti í öflugan leiðtoga er meistaraleg, en þar tvinnast saman húmor og áföll. Frábær persónusköpun og þróun persónanna er nefnilega keyrð áfram á dramatík, sem er þó alltaf í skugga húmorsins, og ég leyfi mér að fullyrða að Donut er með meiri persónuleika í vinstri framloppunni en margar kvenpersónur fantasíubókmenntanna. Serían er einnig stútfull af tilvitnunum í dægurmenningu, allt frá Gossip Girl til Blazing Saddles, sem ég hafði mjög gaman af.

Og ef þú þarft eina ástæðu enn til að lesa, þá get ég glaður tilkynnt að í bók fimm er afar ítarleg lýsing á því þegar risaeðlan Mongo missir sveindóminn svo ... já, hver vill missa af því?