Fara í efni
Menning

Færðu Minjasafninu myndir frá stríðsárunum

Richard Batemann Jessop liggur á beddanum í bragga hermannanna á Akureyri. Maðurinn með pípuna er líklega Dick Newsom.

SÖFNIN OKKAR – 113

Frá Minjasafninu á Akureyri_ _ _

Akureyri.net heldur áfram að opna dyr safnanna í bænum lesendum til fróðleiks og skemmtunar. Það er gert vikulega, á fimmtudögum.


Þeir birtust óvænt. Innan við hálftíma eftir að flugfél easyJet lenti 9. desember s.l. birtust tveir breskir ferðamenn á gólfi Minjasafnsins á Akureyri. Það er í sjálfu sér ekki óvænt að ferðamenn komi í heimsókn en þessir herramenn voru í ákveðnum tilgangi.

Þann 10. maí 1940 birtust skip á Reykjavíkurhöfn. Breski herinn var kominn í þeim tilgangi að hernema Ísland áður en þýskir Nasistar klófestu landið. Viku síðar komu fyrstu bresku hermennirnir til Akureyrar. Asinn var ekki meiri en svo!

Aufúsugestir á Minjasafninu! Ian Stubbs, til vinstri, og James Jessop með albúm föður síns.

Í þessum hópi fyrstu hermanna var herforinginn Richard Batemann Jessop. Hann hafði marga hildi háð með breska hernum í norður Noregi ásamt norskum hermönnum við að verja landið frá innrás Þjóðverja og rétt slapp með síðustu hermönnum frá landinu þegar það féll.

Þegar breskir hermenn höfðu hernumið Akureyri hófust þeir handa við að koma sér fyrir og settu upp bækistöðvar víða í bænum. Hýbíli hermannanna voru í fyrstu tjöld, t.d. við Menntaskólann á Akureyri, sem í áætlunum Breta átti að verða hersjúkrahús. Smám saman hófu Bretarnir að reisa sér bragga víðsvegar um bæinn og víðar um Eyjafjörð.

Síða úr myndaalbúmi Richards Batemann Jessop sem sonur hans færði Minjasafninu að gjöf.

Hermennirnir komu með ýmislegt með sér en Richard var vel vopnaður eigin myndavél. Þar sem Richard var herforingi hafði hann leyfi til að ljósmynda meira en venjulegur hermaður hvað þá almennur borgari. Myndirnar sýna vel heim hermannsins sem kominn var á norðurhjara til að berjast við óvininn. Myndirnar voru Richard sérstaklega kærar og kom hann þeim vel fyrir í albúmi.

85 árum síðar voru James Jessop og Ian Stubbs komnir til Akureyrar í þeim tilgangi einum að koma ljósmyndaalbúmi föður James í varðveislu hjá Minjasafninu. Tímasetningin hefði vart geta verið betri. Í farvatninu er einmitt sýning um hernámsárin í Eyjafirði sem opnar í júní. Þeir félagar voru himinglaðir með að heyra að myndirnar myndu einmitt nýtast á sýninguna. Í ráðgerð er því önnur heimsókn til að skoða hana.

Sýningin opnar í byrjun júní og er byggð á ljósmyndum, frásögnum og gripum sem tengjast hernámsárunum. Ef þú lesandi góður býrð yfir sögu, ljósmyndum eða gripum sem ættu heima á sýningunni tekur starfsfólk safnsins með glöðu geði á móti þeim til láns eða varðveislu. Hafið samband við Harald eða Kjartan í síma 4624162 eða með tölvupósti á minjasafnid@minjasafnid.is

  • Þess má þá í framhjáhlaupi geta að nú eru allra síðustu forvöð að sjá sýninguna Tónlistarbærinn Akureyrisíðasta sýningarhelgin er 21.-22. mars.


  • Svart hvítu myndirnar að ofan eru allar úr albúmi Richards Batemann Jessop.
  • Hér að neðan eru myndir eru úr fórum Minjasafnsins og verða að öllum líkindum á sýningunni um hernámsárin í Eyjafirði sem opnuð verður í júní