Tap í framlengingu hjá SA eftir kaflaskiptan leik
Karlalið Skautafélags Akureryar í íshokkí tapaði fyrir SR í framlengdum leik sem fram fór í Skautahöllinni í Laugardal í dag eftir að hafa náð þriggja marka forystu í fyrstu lotunni. SR-ingar sneru leiknum sér í hag, tryggðu sér 4-3 sigur og aukastigið með marki í framlengingu. Liðin mætast aftur á morgun og ræðst þá hvort þeirra verður deildarmeistari og fær oddaleiksréttinn í úrslitaeinvíginu.
SA náðri góðri forystu með þremur mörkum á um fimm mínútna kafla um miðja fyrstu lotuna. Hafþór Andri Sigrúnarson skoraði fyrsta markið þegar hann sem fremsti maður í varnarsvæðinu fékk pökkinn frá andstæðingi og skautaði fram, kominn einn á móti markmanni og skoraði af öryggi. Rétt um tveimur mínútum síðar bætti Heiðar Gauti Jóhannsson við öðru markinu af stuttu færi eftir góðan undirbúning Una Steins Blöndal. Þremur mínútum eftir annað markið skoraði Bjarmi Kristjánsson það þriðja eftir góðan undirbúning frá Jóhanni Má Leifssyni og Hafþóri Andra.
Refsingar urðu síðan SA-liðinu dýrar þegar leið á leikinn. Eftir að heimamönnum í SR hafði ekkert gengið að koma pökknum í mark SA í fyrri hluta leiksins var langt liðið á aðra lotuna þegar fyrsta mark þeirra varð að veruleika. Þeir voru þá tveimur fleiri á svellinu eftir refsingar á leikmenn SA. Snemma í þriðju lotunni léku SR-ingar einum fleiri og náðu aftur að nýta sér yfirtöluna, skoruðu annað mark sitt og minnkuðu muninn í eitt mark. Um miðja þriðju lotuna kom svo jöfnunarmarkið frá Kára Arnarssyni, 3-3.
Leikmenn SA gerðu harða atlögu að marki heimamanna á lokamínútum þriðju lotunnar, en fleiri urðu mörkin ekki, 3-3 eftir þrjár lotur og gripið til framlengingar. Bæði liðin komin með stig og barist um aukastigið.
Í framlengingu spilar hvort lið með þrjá leikmenn og við refsingu er fjölgað í fjóra hjá hinu liðinu í stað þess að fækka í liðinu sem fær refsingu. Og enn var það sama uppi á teningum og í tveimur af þremur mörkum SR-inga í leiknum. SA fékk refsingu eftir aðeins sjö sekúndur í framlengingunni og voru því einum færri. Þrátt fyrir mikinn atgang framan við mark SA virtist stefna í að þeir næðu að halda út, en Níels Hafsteinsson var á öðru máli og skoraði þegar um ein og hálf mínúta var liðin af framlengingunni.
SR - SA 4-3 (0-3. 1-0, 2-0, 1-0)
Helstu tölur:
SR
Mörk/stoðsendingar: Eduard Kascak 1/1, Sölvi Atlason 1/0, Kári Arnarsson 1/0, Níels Hafsteinsson 1/0, Þorgils Eggertsson 0/1, Heiðar Örn Kristveigarson 0/1, Styrmir Maack 0/1, Alex Máni Sveinsson 0/1.
Varin skot: Ævar Björnsson 13 af 16 (81,25%).
Refsingar: 12 mínútur.
SA
Mörk/stoðsendingar: Hafþór Andri Sigrúnarson 1/1, Heiðar Gauti Jóhannsson 1/0, Bjarmi Kristjánsson 1/0, Uni Blöndal 0/1, Robbe Delport 0/1, Jóhann Már Leifsson 0/1.
Varin skot: Jakob Jóhannesson 18 af 22 (81,82%).
Refsingar: 12 mínútur.
SR er því áfram á toppi Toppdeildarinnar, er með 34 stig og SA með 32. Það er því ljóst að í lokaleik deildarkeppninnar á sama stað á morgun dugar SA ekkert annað en sigur í venjulegum leiktíma til að vinna deildarmeistaratitilinn og ná sér í oddaleiksréttinn í úrslitaeinvíginu. Verði jafnt og framlengt, eða ef SR vinnur í venjulegum leiktíma, hampa Reykvíkingar deildarmeistaratitlinum.
Þessi lið mætast svo í úrslitarimmunni um Íslandsmeistaratitilinn sem hefst þriðjudaginn 10. mars.