Fram undan: Handbolti, körfubolti og íshokkí
Akureyrarliðin í handbolta, annað körfuboltaliðið og annað íshokkíliðið verða í eldlínunni á næstu dögum. Akureyringar fá þó aðeins tvo heimaleiki, þann fyrri þegar KA/Þór tekur á móti Fram í Olísdeild kvenna í handbolta á föstudag og þann síðari þegar SA Víkingar taka á móti Fjölni í Toppdeild karla í íshokkí. Karlaliðin í handboltanum eiga útileiki á fimmtudag og föstudag og karlalið Þórs í körfubolta á föstudag.
- Þórsarar sækja Hauka heim í Hafnarfjörðinn í 10. umferð Olísdeildar karla í handbolta á fimmtudag. Hafnarfjarðarliðið hefur verið algjörlega ósigrandi það sem af er tímabilinu, hefur unnið níu fyrstu leiki sína og er með 76 mörk í plús, sem þýðir að liðið hefur unnið leikina með um það bil 8,4 marka mun að meðaltali. Nær óvinnandi vígi, að því er virðist og fyrirfram mjög erfitt verkefni fyrir Þórsara. Haukar unnu KA á Akureyri í 9. umferðinni með níu marka mun, 37-26, en í sömu umferð töpuðu Þórsarar heima fyrir hinu Hafnarfjarðarliðinu, 30-37. Haukar eru augljóslega á toppi deildarinnar með 18 stig, en Þór er í 8. sætinu með sex stig, hefur unnið þrjá leiki af níu.
- Eftir tvo sigra hjá KA/Þór í röð, þá fyrstu sem liðið náði á leiktíðinni, kom fjögurra marka tap fyrir Selfyssingum í 8. umferð um síðastliðna helgi. KA/Þór tekur á móti Fram á föstudag í níundu umferð deildarinnar. Fram vann ÍR með sjö marka mun í síðasta leik sínum. KA/Þór er í 8. sæti deildarinnar með fjögur stig, en Fram í því fjórða með tíu stig.
- Karlalið Þórs í körfubolta náði sínum öðrum sigri þegar liðið tók á móti KFG um helgina, lokatölurnar 106-102. Þór sækir KV heim í næstu umferð á föstudag. KV hefur unnið þrjá leiki af fyrstu sex og situr í 7. sætinu, en Þór er í 9. sætinu með tvo sigra. KV vann Fjölni á útivelli í síðustu umferð, 96-89.
- Karlalið KA í handbolta sækir Selfyssinga heim í tíundu umferð Íslandsmótsins á föstudag. KA tapaði með sjö marka mun fyrir Haukum í síðustu umferð, 30-37. Í sömu umferð máttu Selfyssingar þola 12 marka tap á útivelli gegn HK, 34-22. KA er í 2. sæti deildarinnar með 12 stig efitr fyrstu níu umferðirnar, en Selfyssingar eru í botnsætinu með eitt stig.
- Karlalið SA í íshokkí, SA Víkingar eins og liðið er gjarnan kallað, er í efsta sæti Toppdeildarinnar með 16 stig að loknum átta leikjum. Reykjavíkurliðin hafa leikið einum leik minna, SR með 14 stig og Fjölnir 12 stig úr sjöleikjum. SA Víkingar taka á móti liði Fjölnis á laugardag. Síðast þegar þessi lið mættust, á Ofurhelginni í Laugardalnum undir lok október, buðu liðin upp á markaveislu, samtals 14 mörk þar sem SA sigraði, 8-6.
FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER - handbolti
- Handbolti
Olísdeild karla, 10. umferð
Ásvellir í Hafnarfirði kl. 18:30
Haukar - Þór
FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER - handbolti
- Handbolti
Olísdeild kvenna, 9. umferð
KA-heimilið kl. 19
KA/Þór - Fram
- Körfubolti
Bæjarins bezta deild karla, 7. umferð
Meistaravellir kl. 19:15
KV - Þór
- Handbolti
Olísdeild karla, 10. umferð
Set-höllin á Selfossi kl. 20:15
Selfoss - KA
LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER - íshokkí
- Íshokkí
Toppdeild karla
Skautahöllin á Akureyri kl. 16:45
SA - Fjölnir
Stöður í deildum og leikjadagskrár
Blak
- Unbroken-deild kvenna | BLÍ
- Unbroken-deild karla | BLÍ
- Kjörísbikar kvenna | BLÍ
- Kjörísbikar karla | BLÍ
Handbolti
Íshokkí
Körfubolti
Lesendur eru hvattir til að minna á íþróttaviðburði hvers kyns sem fram undan eru í meistaraflokkum, sérstaklega ef eitthvað verður út undan og gleymist í þessari vikulegu yfirferð í vikubyrjun hér á akureyri.net – sendið tölvupóst í haraldur@akureyri.net ef koma þarf slíkum upplýsingum á framfæri.