Fara í efni
Íþróttir

Skautahlaup – tækifæri í ferðaþjónustu?

Íslenski hópurinn ásamt gestgjöfum í Thialf-skautahöllinni í Heerenveen í Hollandi. Erwin van der Werve er fjórði frá hægri. Myndin er af vef Skautasambands Íslands.

Þjálfari listskautadeildar Skautafélags Akureyrar í skautahlaupi, Erwin van der Werve, tók þátt í æfingabúðum í Hollandi dagana 12.-18. október ásamt tveimur iðkendum frá deildinni. Hópur frá Íslandi fylgdist með toppskauturum í Thialf-skautahöllinni í Heerenveen í Hollandi.

Í þessari sex daga fræðslu- og þjálfunarferð til Heerenveen voru ásamt fulltrúum frá Skautafélagi Akureyrar í hópnum þjálfarar frá Fjölni, Öspinni og SR og tveir fulltrúar Skautasambandsins. Hópurinn dvaldi í Thialf-skautahöllinni, fjölnota íþróttamannvirki með einum besta skautaís í heimi. Höll sem verður notuð á næstu Ólympíuleikum. „Markmið ferðarinnar var að kynna sér uppbyggingu skautahlaups, þróun þjálfunar og markmiðasetningu, auk þess að gefa íslenskum skauturum og þjálfurum tækifæri til að öðlast reynslu við aðstæður á alþjóðlegum vettvangi,“ að því er fram kemur á vef Skautasambandsins.

Mögnuð upplifun

Íslenski hópurinn fylgdist með æfingum í sex daga hjá einni sigursælustu skautaþjóð heims. Skautarar fengu afísæfingar með sjúkraþjálfara hollenska landsliðsins og fylgdust með skauturum á 400 metra svelli við æfingar fyrir nýtt tímabil. Þar var meðal annarra þekktur skautari, Jenning de Boo, við æfingar og skautaði 370 metra á 23,7 sekúndum, eða á um 60 km meðalhraða.

„Það var magnað að upplifa þetta, að fá að skauta í stóru höllinni og fylgjast með topp skauturum. Það er kannski eins og að vera boðið til Barcelona í viku til að spila með toppliðinu í fótbolta og geta farið út um allan völlinn,“ segir Erwin van der Werve um upplifunina. 

Íþrótt sem hentar öllum

Hann segir skautahlaupið frábæra íþrótt sem henti fólki á öllum aldri og nefnir að fjögurra ára krakkar hafi verið að stíga sín fyrstu skref á ísnum á meðan landsliðið var að æfa í hring á 60 km hraða. Eftir hádegið hafi síðan ellilífeyrisþegar, allt að 90 ára að aldri, að skauta sína hringi. „Það er hægt að æfa skautahlaup á Íslandi og á Akureyri, og aðstæður eru mjög góðar. Erlendis þurfa flestar skautahallir að loka á milli apríl og október en á Íslandi er hægt að skauta nánast allt árið. Það er fátt betra en að hreyfa sig úti, skauta á ísilögðu vatni og finna vindinn í hárinu og skauta saman með krökkunum, afa og ömmu. Þegar það er frost í Hollandi og úti ís fær fólk sér frí úr vinnu og allur aldur frá 3ja til yfir 80 ára eru saman á ísnum og hafa gaman,“ segir Erwin. 

Tækifæri í ferðaþjónustu

Erwin náði í fyrra að búa til 400 metra langa skautabraut með nokkurra sentimetra þykkum ís á hlaupabrautinni í Hrafnagilshverfinu í Eyjafjarðarsveit og segir drauminn að ná að hafa skautabraut yfir jólin og keppni í skautahlaupi, sem yrði þá fyrsta 400 metra brautarkeppni hér á landi í yfir 40 ár. Erwin segir aðstæður á Mývatni einnig einstakar, oft 70 sentimetra ís og hægt að búa til 10 km braut þar ef vilji er fyrir hendi að moka snjó í burtu. Ef til vill leynist þarna tækifæri í ferðaþjónustu því Erwin segir slíkt mjög vinsælt hjá Hollendingum, tugþúsundir ferðist alla leið til Luleå í norðurhluta Svíþjóðar til að skauta. 

„Það þarf bara smá vinnu með ísinn. Það er gert í Luleå af bæjarstjórn og það er orðið mjög vinsælt hjá Hollendingum núna,“ segir Erwin og bendir á að nú sé hægt að fljúga beint frá Amsterdam til Akureyrar og aðeins sé um klukkutíma akstur frá Akureyri til Mývatns þar sem „væri hægt að skauta með eldfjall og gíga í bakgrunninum og slaka á í Jarðböðunum á eftir. Svo er nægt gistipláss á hótelum yfir veturinn. Þetta er eiginlega bara fullkomið.“

Fyrir áhugasama má benda á að Íslandsmót í Shorttrack fer fram í Skautahöllinni á Akureyri 27.-29. nóvember, en æfingar í skautahlaupi eru á fimmtudagsmorgnum kl. 7 „og það er pláss fyrir fleiri,“ segir Erwin og bendir á að skautahlauð sé „skemmtileg íþrótt og góð æfing og hægt að fara áfram í listskauta, hokkí eða skautahlaup.“

Það getur verið margt um að vera samtímis í stóru fjölnota íþróttamannvirki. Myndin er fengin af Facebook-síðu Skautasambands Íslands fyrir skautahlaup.

Byrjendur, atvinnumenn, almenningur og krulluæfing

Í frásögn af Hollandsferðinni á vef Skautasambandsins er áhugaverð lýsing á því hvernig fjölnota íþróttamannvirki getur nýst á marga vegu samtímis, en þar segir meðal annars: 

„Thialf sýnir hvernig stórt fjölnota íþróttamannvirki getur þjónað mörgum verkefnum samtímis. Á meðan unglingalandslið Hollands æfði skautaat voru byrjendur í skautaskóla á litlum ís við hliðina. Á skautahlaupsbrautunum, fóru fram á sama tíma, almenningsskautun á helmingi þeirra og æfingar fyrir maraþonkeppni í skautahlaupi á hinum helmingnum. Skömmu síðar hófst krulluæfing á aukasvelli í miðju hússins.

Við hlið skautabrautanna er fullbúin skautahöll með þar sem stundað er listhlaup á skautum og íshokkí. Þar eru einnig íþróttasalir, fundarherbergi, samkomusalir og veitingastaðir.

Aðstaðan er til fyrirmyndar og sýnir hvernig hægt er að skapa öfluga umgjörð um fjölbreytt íþróttastarf. Það er von Skautasambands Íslands og þátttakenda í ferðinni að Ísland geti í framtíðinni byggt upp sambærilega aðstöðu fyrir skautahlaup og aðrar ísíþróttir.“