Fara í efni
Íþróttir

Silvía Rán í 400 stig í 141 deildarleik með SA

Aðstoðarfyrirliðinn Silvía Rán fagnar Íslandsmeistaratitli 2017 ásamt liðsfélögunum fyrirliðanum Ragnhildi Kjartansdóttur og aðstoðarfyrirliðanum Sunnu Björgvinsdóttur. Ragnhildur hefur spilað með Reykjavíkurfélögunum í nokkur ár, fyrst Fjölni og nú SR. Sunna spilaði nokkur ár með sænskum liðum, en er nú komin aftur heim í SA. Mynd: Skapti Hallgrímsson.

Silvía Rán Björgvinsdóttir, leikmaður kvennaliðs Skautafélags Akureyrar, er komin vel yfir 400 stigin í deildarleikjum með SA. Hún náði 400 stigunum í leik í janúar síðastliðnum. Hún mætir á svellið í dag ásamt liðsfélögunum þegar SA tekur á móti liði Fjölnis.

Fyrir nokkru kom fram í frétt sem akureyri.net tók upp eftir vef Skautafélagsins að Jóhann Már Leifsson, fyrirliði SA Víkinga, karlaliðs SA í íshokkí, hafi náð þeim áfanga að ná 400 stigum á ferlinum fyrir SA í deildarleikjum, það er samanlagður fjöldi marka sem hann hefur skorað og stoðsendinga sem hann hefur átt í mörkum liðsins. Jóhanni tókst að ná þessum áfanga í 277 leikjum á rúmum 15 keppnistímabilum.

Silvía Rán í leik Ásynja og Ynja. Um nokkurra ára skeið tefldi SA fram tveimur kvennaliðum í deildarkeppninni enda efniviðurinn nægur. Mynd: Skapti Hallgrímsson.

Þegar betur var að gáð kom í ljós að leikmaður kvennaliðs SA var nokkuð á undan Jóhanni Má í 400 stigin og náði þeim áfanga í færri leikjum. Silvía Rán Björgvinsdóttir hefur nú þegar náð 417 stigum í deildarleikjum með liðum SA og 432 stigum samtals að meðtöldum leikjum í úrslitakeppnum. Silvía Rán náði 400 stiga áfanganum í 141 deildarleik á 11 tímabilum með liðum SA, fyrst á árunum 2010-2019 og aftur 2023-2026, eftir að hafa spilað í Svíþjóð og Bandaríkjunum á árunum 2019-2023.

Áfanganum náði Silvía í 3-1 sigri SA á liði Skautafélags Reykjvaíkur 17. janúar á þessu ári. Hún átti stoðsendingu í fyrsta marki SA og skoraði svo annað markið snemma í öðrum leikhluta. Þá hafði hún samanlagt skorað 240 mörk og átt 160 stoðsendingar í 141. deildarleiknum, sem gera samanlagt 400 stig.

Silvía Rán meiddist í leik með Hammarby í Svíþjóð 2023 og kom aftur heim í SA þar sem hún varð spilandi aðstoðarþjálfari haustið 2023. Mynd: Skapti Hallgrímsson.

Silvía Rán á einnig að baki leiki með þremur félögum í Svíþjóð, Södertälje, Gautaborg og Hammarby, og nokkra leiki með háskólaliði í Bandaríkjunum, Norwich University, sem urðu þó heldur færri en til stóð vegna heimsfaraldurs.

Þegar allt er talið saman fram á þennan dag, bæði deildarleikir og leikir í úrslitakeppnum, hér á landi og erlendis eru tölurnar þessar:

  • 236 leikir (162 á Íslandi, 68 í Svíþjóð og sex í Bandaríkjunum)
  • 314 mörk (258 á Íslandi, 54 í Svíþjóð og tvö í Bandaríkjunum)
  • 204 stoðsendingar (174 á Íslandi, 28 í Svíþjóð og tvær í Bandaríkjunum)
  • Samanlagt 518 stig (432 á Íslandi, 82 í Svíþjóð og fjögur í Bandaríkjunum)