Fara í efni
Íþróttir

Súlur Vertical verði þekkt alþjóðlegt hlaup

Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, og Þorbergur Ingi Jónsson, formaður Súlur Vertical, við undirritun samningsins í vikunni.

Akureyrarbær og félagasamtökin Súlur Vertical hafa gert með sér samning um stuðning sveitarfélagsins við fjallahlaupið Súlur Vertical á þessu ári.  Samningurinn felur einnig í sér sameiginlegt markmið um þróun og uppbyggingu til lengri tíma.

Súlur Vertical fer fram á Akureyri um verslunarmannahelgina. Það var fyrst haldið 2016 og hefur síðan vaxið ár frá ári en féll niður í fyrra af þekktum ástæðum. Stefnt er að því að hlaupið festi sig smám saman í sessi sem vel þekktur alþjóðlegur íþróttaviðburður og verði jafnframt einn af hápunktum verslunarmannahelgar á Akureyri sem dragi fjölda gesta til bæjarins. Með þessum nýja samningi er staðfestur vilji Akureyrarbæjar til að styðja við slíka þróun.

Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri á Akureyri og Þorbergur Ingi Jónsson formaður Súlur Vertical undirrituðu samninginn í vikunni. Hlutverk bæjarins samkvæmt samningnum er fyrst og fremst fólgið í vinnuframlagi, ráðgjöf og annarri aðstoð við undirbúning og framkvæmd hlaupsins en félagasamtökin annast stjórn þess, rekstur og bera ábyrgð á framkvæmdinni.

„Við höfum mikla trú á Súlur Vertical og teljum að það hafi spennandi tækifæri í för með sér. Framtíðarsýn þeirra sem standa að fjallahlaupinu fellur vel að stefnu sveitarfélagsins um að auka áherslu á heilsutengda ferðaþjónustu og markaðssetningu á einstökum útivistarmöguleikum svæðisins. Ég hlakka til að fylgjast með viðburðinum vaxa og dafna á komandi misserum,“ segir Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri í tilkynningu.

„Frá því við héldum fyrsta utanvegahlaupið á Akureyri fyrir fimm árum hafa vinsældir íþróttarinnar aukist mikið og fjöldi iðkenda á heimsvísu margfaldast. Þetta skapar möguleika fyrir okkur sem höfum fyrsta flokks aðstöðu með fjölbreyttu landslagi, fjöllum og útivistarstígum í bakgarðinum. Við viljum byggja upp Súlur Vertical og festa Akureyri í sessi sem vöggu fjallahlaupa á Íslandi. Í þeirri vinnu er lykilatriði að hafa góða liðsmenn og því fögnum við samstarfinu við Akureyrarbæ og þökkum fyrir stuðninginn,” segir Þorbergur Ingi Jónsson.

  • Keppt verður í þremur vegalengdum þann 31. júlí 2021: 18km, 28km og 55km. Hlaupið er um stórbrotna náttúru í nágrenni Akureyrar, þar á meðal um Glerárdal og bæjarfjöllin Súlur og Hlíðarfjall. Nú þegar eru á sjötta hundrað keppendur skráðir til leiks. Þar að auki verður boðið upp á fjölskylduvæna viðburði í tengslum við keppnina, til að mynda menningarhlaup með leiðsögn um Akureyri og krakkahlaup í Kjarnaskógi.