Þrjú brautarmet í Akureyrarsólinni
Þrjú brautarmet voru sett í dag í fjallahlaupinu Súlur Vertical, í karlaflokki í 28 km (Súlum), og bæði í karla- og kvennaflokki í 19 km hlaupinu, (Fálkanum). Enn einu sinni sá einhver til þess að veðurspá gekk ekki eftir; sól skein í heiði og hlýrra var í veðri en gert var ráð fyrir, auk þess sem regndropar, sem áttu að falla lengi og margir í einu, hafa líklega glatt aðra á einhverjum fjarlægum stað.
Þorbergur Ingi Jónsson, upphafsmaður fjallahlaupsins fyrir 11 árum, kom fyrstur í mark í 100 km hlaupinu sem kallað er Gyðjan; hann á brautarmetið, tæpar 10 klukkustundir – 9:48:39, sett 2024, en Þorbergur hljóp á 10:34:22 í dag. Fyrsta konan í mark í 100 km hlaupinu var Alda Rut Vestmann á 15:14:52. Ótrúlegt brautarmet í kvennaflokki var sett í fyrra, þegar Elísa Kristinsdóttir hljóp á 10:45:17; bætti metið þá um eina og hálfa klukkustund.

Sigurjón Ernir Sturluson missti í dag brautarmetið í 19 km hlaupi Súlna Vertical en bætti hins vegar brautarmetið í 28 km! Hann setti persónulegt met í þeirri vegalengd í dag og hringdi af því tilefni PB bjöllunni; PB stendur fyrir „personal best.“ Mynd: Skapti Hallgrímsson
Tapaði brautarmeti en setti annað!
Þrjú brautarmet voru sett að þessu sinni sem fyrr segir, öll þau gömlu voru sett 2023. Ef til vill mætti segja að Sigurjón Sturluson sé maður dagsins hvað metin varðar. Hann tapaði brautarmetinu í 19 km hlaupinu en bætti hins vegar metið í 28 km!
- Sigurjón Ernir Sturluson hljóp 28 km á 2:25:10 klst. Metið átti Snorri Björnsson – 2:25:59.
- Einar Árni Gíslason bætti brautarmetið í 19 km, hljóp á rúmlega klukkuktíma og korteri, 1:17:30. Gamla metið átti Sigurjón Ernir Sturluson – 1:17:40.
- Elísa Kristinsdóttir hljóp 19 km á 1:23:32 klst. Bætti met Írisar Önnu Skúladóttur um 26 sekúndur; Íris Anna hljóp á 1:23:58 árið 2023.

Elísa Kristinsdóttir og Einar Árni Gíslason sem bættu brautarmetið í 19 km hlaupinu í dag. Myndir af miðlum Súlur Vertical hlaupsins.
Á Facebook síðu Súlna Vertical hlaupsins má sjá myndbönd af keppendum koma í mark og viðtöl:

Þorbergur Ingi Jónsson nokkrum metrum áður en hann fór yfir marklínuna eftir að hafa lagt 100 kílómetra að baki! Mynd: Skapti Hallgrímsson

Hildur Aðalsteinsdóttir sem sigraði í Gyðjunni, 100 kílómetra hlaupinu. Mynd af miðlum Súlur Vertical hlaupsins.

Þórgunnur Oddsdóttir ræðir við Sigurjón Erni Sturluson fyrir miðla Súlna Vertical. Á Facebook og Instragram má sjá myndbönd af keppendum koma í mark og viðtöl Þórgunnar. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Efstu keppendur í hlaupi dagsins urðu þessir:
Gyðjan – 100 km
- Þorbergur Ingi Jónsson 10:34:22 klst
- Sigurður Tómas Þórisson 11:48:30
- Sigfinnur Björnsson 12:06:11
- Hildur Aðalsteinsdóttir 12:34:57 klst
- Noëmi Löw 12:41:29
- Þórdís Ólöf Jónsdóttir 12:53:36
- Dalrós Inga Ingadóttir 12:53:36
Tröllið – 43 km
- Guðlaugur Ari Jónsson 4:15:53 klst
- Guðni Siemsen Guðmundsdóttir 4:46:05
- Atli Steinn Sveinbjörnsson 4:47:24
- Aðalheiður Aðalsteinsdóttir 5:10:30
- Auður Ómarsdóttir 5:21:51
- Hulda Elma Eysteinsdóttir 5:46:18

Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir, til vinstri, sem sigraði í Súlum, 28 km hlaupinu, og Aðalheiður Aðalsteinsdóttir, sigurvegari 43 km hlaupsins, Tröllsins. Myndir af miðlum Súlur Vertical hlaupsins.
Súlur – 28 km
- Sigurjón Sturluson 2:25:10
Nýtt brautarmet. Metið átti Snorri Björnsson – 2:25:59 - Halldór Hermann Jónsson 2.30:48
- Grétar Örn Guðmundsson 2.34:32
- Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir 3:03:12
- Fanney Rún Stefánsdóttir 3:18:13
- Eva Birgisdóttir 3:22:49
Fálkinn – 19 km
- Einar Árni Gíslason 01:17:30
Nýtt brautarmet. Metið átti Sigurjón Ernir Sturluson – 1:17:40 - Ásgeir Daði Þórisson 1:20:55
- Árni Björn Höskuldsson 1:21:38
- Elísa Kristinsdóttir 01:23:32
Nýtt brautarmet. Metið átti Íris Anna Skúladóttir –1:23:58 - Fanney Guðmundsdóttir 1:26:27
- Katla Rut Robertsdóttir Kluvers 1:29:50

Guðlaugur Ari Jónsson sem kom lang fyrstur í mark í Tröllinu - 43 km hlaupinu. Hann hljóp á 4:15,53 mín, rúmlega hálftíma betri tíma en næsti maður. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Malen, systurdóttir Guðlaugs Ara, var í hópi þeirra sem fagnaði honum eftir öruggan sigur í 43 km hlaupinu. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Kristinn Karl Björnsson hljóp 100 kílómetra á 15:03:07 klst. – og hringdi því PB bjöllunni, til merkis um að þar með hefði hann sett persónulegt met. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Halldór Hermann Jónsson kemur í mark eftir 28 km. Hann varð annar í hlaupinu. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Grétar Örn Guðmundsson kemur þriðji í mark í 28 km hlaupinu. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Mynd: Skapti Hallgrímsson

Nokkrar kempur semkomu í mark á svipuðum tíma um hádegisbil. Frá vinstri: Halldór Hermann Jónsson sem varð annar í 28 km hlaupinu, bróðir hans, Þorbergur Ingi Jónsson, sem sigraði með yfirburðum í 100 km, Sigurjón Ernir Sturluson sem vann 28 km hlaupið á nýju brautermeti, Grétar Örn Guðmundsson, þriðji í 28 km og loks Guðlaugur Ari Jónsson sem sigraði í 43 km. Mynd: Skapti Hallgrímsson