Fara í efni
Íþróttir

Súlur Vertical: Fyrstu í mark í hádeginu

Frá ræsingu í 100 km hlaupinu, Gyðjunni, við Goðafoss í fyrra. Mynd: Ármann Hinrik.

Fjallahlaupið Súlur Vertical hefur sannarlega fest sig í sessi sem eitt af vinsælustu ofurhlaupunum á Íslandi. Hlaupið fer fram í dag, en þegar þessi frétt birtist hafa þátttakendur í lengsta hlaupinu verið á ferðinni á tveimur jafnfljótum áleiðis frá Goðafossi til Akureyrar í nokkrar klukkustundir. Fyrstu keppendur í öllum vegalengdunum koma í mark í miðbæ Akureyrar um hádegisbil, en keppendur eru svo að koma í mark allan daginn. Endamarki verður lokað kl. 19.

Boðið er upp á fjórar mismunandi hlaupaleiðir og vegalengdir, 19, 29, 43 og 100 km. Þrjú styttri hlaupin hefjast í Kjarnaskógi en 100 km hlaupið hefst við Goðafoss. Endamark er í miðbæ Akureyrar þar sem hlauparar koma niður Brekkugötuna og inn í Göngugötuna síðustu metrana. Þar myndast jafnan góð stemning og fjölmenni í kringum hlauparana þegar þeir ljúka dagsverkinu.

Allar upplýsingar um hlaupið má finna á vef hlaupsins, sulurvertical.is þaðan sem upplýsingarnar hér að neðan eru fengnar, en nákvæmari leiðalýsingar er að finna á vef hlaupsins. Örlítið misræmi er í textaupplýsingum og kortaupplýsingum um vegalengdir og hækkanir.

Auk fjallahlaupsins er boðið upp á Þríleikinn. Í Þríleiknum er skíðagöngukeppni, malarhjólreiðar og svo fjallahlaupið sem fram fer um verslunarmannahelgina. Skíðagöngukeppnin fór fram 29. febrúar og á rætur að rekja til Hermannsgöngunnar, en tvær leiðir þar, Mjöll og Bylur, teljast með í þríleikskeppninni. Hjólreiðafélag Akureyrar sér um hjólreiðahluta þríleiksins og fer hann fram laugardaginn 8. ágúst.

Vakin er athygli á götulokunum og umferðarstýringum í tengslum við hlaupið, sjá hér neðar.

  • Fálkinn - 19 km - 530 m hækkun
    Byrjar í Kjarnaskógi, hlaupið upp í Fálkafell og niður í miðbæ.
    Ræsing kl. 11:30
  • Súlur 29 km - 1.410 m hækkun
    Byrjað í Kjarnaskógi, farið upp á Súlur og niður aftur, þaðan niður í miðbæ.
    Ræsing kl. 10
  • Tröllið - 43 km - 1.870 m hækkun
    Byrjað í Kjarnaskógi, báðir Súlutindar, Krummi, Litli Krummi, Lambárdalur, Lambárjökull, Lambáröxl, Glerárdalur, Lambi, niður Glerárdal og niður í miðbæ.
    Ræsing: 8:00
  • Gyðjan - 100 km - 3.580 m hækkun
    Byrjað við Goðafoss, hlaupið um Bárðardal, yfir Belgsárfjall, um Fnjóskadal, um Þórðarstaðaskóg, Lundsskóg, Vaglaskóg, um Systragil, Þingmannaleið, Vaðlaheiði, yfir gömlu brýrnar á Eyjafjarðará, í Kjarnaskóg, upp í Gamla og Fálkafell, báðir Súlutindar, Krummi, Litli Krummi, Lambárdalur, Lambárjökull, Lambáröxl, Glerárdalur, Lambi og áfram niður Glerárdalinn og niður í miðbæ Akureyrar.
    Ræsing kl. 21 (föstudagskvöld) - fyrri hópur, hlauparar með innan við 600 ITRA stig
    Ræsing kl. 02:00 - seinni hópur, hlauparar með yfir 600 ITRA stig.

Götulokanir og umferðarstýring vegna hlaupara í Súlur Vertical.

  • Brekkugata og Klettastígur verða lokuð laugardaginn 1. ágúst á tímabilinu kl. 11-18.
  • Umferðarstýring verður vegna þátttakenda í hlaupinu á nokkrum stöðum.
    • Við hringtorgið á mótum Hlíðarfjallsvegar og Hlíðarbrautar
    • Við gatnamót Dalsbrautar og Borgarbrautar
    • Í hluta Klettaborgar, frá göngustíg að Byggðavegi
    • Á gatnamótum Klettaborgar og Byggðavegar
    • Á Þórunnarstræti, gangbraut ofan við lögreglustöðina
    • Á gatnamótum Brekkugötu og Oddeyrargötu