Fara í efni
Íþróttir

SA tók forystuna í einvíginu við SR

Magdalena Sulova skoraði eina mark leiksins snemma í annarri lotu. Mynd: Rakel Hinriksdóttir.

Lið Skautafélags Akureyrar tók forystu í úrslitaeinvígi Toppdeildar kvenna í íshokkí með 1-0 sigri á liði Skautafélags Reykjavíkur í kvöld. Magdalena Sulova skoraði eina mark leiksins. 

Fyrsta lotan var fremur tíðindalítil, nema hvað SA fékk tveggja mínútna refsingu undir lok hennar, en gestunum tókst ekki að nýta sér yfirtöluna og markalaust að fyrstu lotunni lokinni. SA með fjögur skot á mark og SR fimm, en ekkert þeirra rataði í net andstæðinganna.

Leikmenn SA voru mun ágengari í annarri lotunni og ekki löng bið eftir að sóknir þeirra bæru árangur. Fyrsta mark leiksins kom eftir rúmar fimm mínútur í annarri lotunni. Magdalena Sulova skoraði þá eftir undirbúning Amöndu Ýrar Bjarnadóttur. Skömmu áður munaði hársbreidd að Silvía Rán Björgvinsdóttir næði forystunni, en skot hennar fór í stöng eftir sendingu frá Sólrúnu Össu og af stönginni rann pökkurinn meðfram marklínunni, aftan við markvörð SR. Í framhaldinu átti Magdalena tvö hættuleg skot að marki áður en pökkurinn lá loksins í netinu. 

Magdalena Sulova og Guðrún Ásta Valentine fagna marki Magdalenu, sem reyndist eina mark leiksins þegar upp var staðið. Mynd: Rakel Hinriksdóttir.

Æsispennandi lokamínútur

SA hafði áfram yfirhöndina framan af þriðju lotunni og náði nokkrum hættulegum skyndisóknum, en Julianna í marki SR kom í veg fyrir að þær tilraunir skiluðu mörkum fyrir heimakonur. Í markinu hinum megin var Shawlee Gaudreault öflug að vanda og varði allt sem að henni var rétt.

Forysta SA stóð þó tæpt um miðja þriðju lotuna þegar gestirnir voru einni fleiri eftir refsingu á leikmann SA. Mátti þá nokkrum sinnum litlu muna að SR næði að jafna, áttu meðal annars skot í stöng auk þess sem Shawlee stóð enn fyrir sínu og vel það í markinu.

Julianna Thomson var öflug í marki SR. Amanda Ýr Bjarnadóttir sækir að markinu, en Julianna varði eins og svo oft í leiknum. Mynd: Rakel Hinriksdóttir.

Lokakaflinn varð síðan æsispennandi, aftur missti SA leikmann í refsiboxið þegar um fimm mínútur voru eftir, en gestirnir náðu ekki að nýta sér það. Bæði lið sóttu ákaft á lokamínútunum, SA vildi bæta í og tryggja forystuna og SR reyndi að jafna, tóku markvörðinn út og fjölguðu í sókninni undir lokin, en mörkin urðu ekki fleiri þrátt fyrir að SR hafi átt mun fleiri skot á markið undir lokin. Þegar upp var staðið var það markið sem Magdalena skoraði í annarri lotunni sem skildi liðin að. 

Shawlee Gaudreault hélt markinu hreinu í kvöld, var öflug eins og svo oft áður í marki SA. Mynd: Rakel Hinriksdóttir.

  • 1-0 - Magdalena Sulova (25:45). Stoðsendingar: Amanda Ýr Bjarnadóttir, Sólrún Assa Arnardóttir.
    Magdalena og Sólrún Assa stöðvuðu sókn SR, Magdalena átti sending fram til vinstri þar sem Amanda Ýr var komin á ferðina og sendi pökkinn síðan út í svæðið þar sem Magdalena var mætt og skoraði.

SA - SR 1-0 (0-0, 1-0, 0-0)

SA

Mörk/stoðsendingar: Magdalena Sulova 1/0, Amanda Ýr Bjarnadóttir 0/1, Sólrún Assa Arnardóttir 0/1
Varin skot: Shawlee Gaudreault 21 af 21 (5, 4, 12) - 100%
Refsingar: 6 mínútur.

SR

Varin skot: Julianna Thomson 16 af 17 (4, 8, 4) - 94,12%.
Refsingar: Engar.

Liðin

Leikskýrslan 

Annar leikur liðanna verður í Skautahöllinni í Laugardal þriðjudaginn 24. mars og hefst kl. 19:45. Það lið sem vinnur þrjá leiki verður Íslandsmeistari.