Fara í efni
Íþróttir

SA tapaði í vítakeppni – einvígið hnífjafnt

Markverðir liðanna, Julianna Thomson hjá SR og Shawlee Gaudreault hjá SA, hafa verið í aðalhlutverkum í leikjum liðanna. Myndir: Rakel Hinriksdóttir.

Úrslitaeinvígi Toppdeildar kvenna í íshokkí er hnífjafnt, Skautafélag Reykjavíkur (SR) jafnaði í gærkvöld með sigri á Skautafélagi Akureyrar (SA) eftir framlengingu og vítakeppni í Skautahöllinni í Laugardal. Þetta var annar úrslitaleikur félaganna um Íslandsmeistaratitilinn. Ekki er þó víst að öll kurl séu komin til grafar og mögulegt að endanleg niðurstaða fáist fyrir dómstólum þar sem deilt er um túlkun reglugerðar og hlutgengi leikmanns SR.

SR náði forystunni eftir að fyrsti leikhlutinn var hálfnaður þegar Arna Björg Friðjónsdóttir skoraði eftir Shawlee Gaudreault í marki SA hafði varið. Arna Björg fékk pökkinn fyrir framan markið og skoraði af stuttu færi. Leikurinn var hnífjafn, heimakonur í SR með heldur fleiri skot á markið, en segja má að markverðir liðanna hafi verið í aðalhlutverkum. 

Hvorugu liðinu tókst að skora í annarri lotunni, en eftir þrjár og hálfa mínútu í síðustu lotunni kom loks jöfnunarmarkið frá SA. Það var afrakstur einstaklingsframtaks þegar Herborg Rut Geirsdóttir skautaði með pökkinn frá eigin varnarsvæði, upp að marki SR og lyfti pökknum yfir markvörð SR í fjærhornið. Laglega gert hjá Herborgu. 

Jafnt var eftir þriðju lotuna, 1-1, og því farið í framlengingu. Þá er útileikmönnum fækkað til að opna leikinn, spilað þrjár á þrjár í fimm mínútur, eða þar til annað liðið skorar. Framlengingin varð æsispennandi, leikmenn SA voru meira í sókn og mun ágengari og fengu nokkur mjög góð marktækifæri sem ekki nýttust. Markverðirnir stóðu áfram fyrir sínu og hvorugu liðinu tókst að skora á þessum fimm mínútum og því gripið til vítakeppni. Þar höfðu SR-ingar betur.

  • 1-0 - Arna Björg Friðjónsdóttir (12:11). Stoðsendingar: Friðrika Magnúsdóttir, Kristína Ngoc Davíðsdóttir Linh.
    Brynja Líf Þórarinsdóttir átti skot af löngu færi, rétt innan bláu línunnar, Shawlee varði, en pökkurinn datt laus fyrir framan hana þar sem var þvaga af leikmönnum beggja liða og endaði með því að Arna Björg náði að koma honum í markið. 
  • 1-1 - Herborg Rut Geirsdóttir (43:29). Stoðsending: Kolbrún Björnsdóttir.
    SR-ingar voru á leið í sókn, en misstu pökkinn þegar þær nálguðust sóknarlínuna. Pökkurinn barst til Herborgar sem skautaði með hann upp hægra megin, næstum óáreitt, og að markinu þar sem hún síðan lyfti pökknum laglega yfir markvörðinn og í hliðarnetið fjær.

SR - SA 2-1 (1-0, 0-0, 0-1, 0-0, 1-0)

SR

Mörk/stoðsendingar: Arna Björg Friðjónsdóttir 1/0, Friðrika Magnúsdóttir 0/1, Kristína Ngoc Davíðsdóttir Linh 0/1.
Varin skot: Julianna Thomson 25 af 26 (96,15%).
Refsingar: 2 mínútur.

SA

Mörk/stoðsendingar: Herborg Rut Geirsdóttir 1/0, Kolbrún Björnsdóttir 0/1
Varin skot: Shawlee Gaudreault 22 af 24 (91,67%).
Refsingar: 4 mínútur

Leikskýrslan 

Liðin

SR jafnaði einvígið í 1-1, en vinna þarf þrjá leiki til að vinna Íslandsmeistaratitilinn. Þriðji leikur liðanna verður í Skautahöllinni á Akureyri á fimmtudagskvöld og sá fjórði í Laugardalnum á laugrdag. Úrslit kvöldsins þýða að einvígið fer að minnsta kosti í fjóra leiki, en komi til oddaleiks verður hann í Skautahöllinni á Akureyri þriðjudaginn 31. mars.

Hvar verður einvígið útkljáð?

Fyrir fyrsta leik í úrslitaeinvíginu skrifaði framkvæmdastjóri Íshokkísambandsins pistil á vef sambandsins, eins og akureyri.net greindi frá, þar sem fram kom að uppi væri ágreiningur um túlkun reglugerðar sem myndi mögulega þurfa íþróttadómstóla til að skera úr um, um leið og hann hvatti íshokkífólk til að njóta leiksins og láta umrætt mál ekki koma sér úr jafnvægi.

Ekki reyndi á þetta deilumál í fyrsta leiknum, en spennandi að sjá hvað gerist í framhaldi af leiknum í gær. Atriðið sem um ræðir snýst um það hvort Friðrika Magnúsdóttir, leikmaður SR, er gjaldgeng með liðinu eða ekki. Hún stundaði nám og spilaði íshokkí í Kanada í vetur og snýst málið í hnotskurn um það hvort um er að ræða deildarkeppni eða ekki. Samkvæmt reglum má leikmaður ekki spila í fleiri en einni deild á sama tímabilinu nema að skipt sé um félag fyrir 1. febrúar.

Hvort sem íshokkídeild Skautafélags Akureyrar kærir þátttöku Friðriku í leiknum eða ekki mun úrslitakeppnin halda áfram því kærufrestur er tíu dagar. Úrslitakeppninni gæti því lokið áður en niðurstaða fæst í málið.

Friðrika kom sannarlega við sögu í sigri SR, átti stoðsendingu í markinu og skoraði eina markið í vítakeppninni.