Fara í efni
Íþróttir

Kröfum SA gegn SR hafnað – áfrýjun líkleg

Deilumál SA og SR snýst um hlutgengi Friðriku Rögnu Magnúsdóttur með liði SR í úrslitaeinvígi liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í mars vegna spilamennsku hennar með skólaliði í Kanada á tímabilinu. Myndin er úr kynningu ÍHÍ á landsliðskonum og birtist á Facebook-síðu sambandsins.

Dómstóll ÍSÍ hefur dæmt Skautafélagi Reykjavíkur (SR) í vil í máli Skautafélags Akureyrar (SA) vegna meints ólöglegs leikmanns SR í úrslitaeinvígi SA og SR um Íslandsmeistaratitil kvenna í íshokkí. Búast má við að SA áfrýi dómnum til áfrýjunardómstóls ÍSÍ.

Krafa SA var að mörk SR í leik liðanna þriðjudaginn 24. mars yrðu þurrkuð út, að SR yrði dæmdur 0-5 ósigur og félagið dæmt til fjársekta í samræmi við reglugerð Íshokkísambands Íslands (ÍHÍ) um viðurlög við notkun ólöglegra leikmanna.

Sigurður Sveinn Sigurðsson, formaður Skautafélags Akureyrar, sendi inn kæru til dómstóls ÍSÍ þann 25. mars, en að ósk allra aðila var beðið með að kunngjöra dóminn vegna landsliðsverkefna þar sem leikmenn liðanna eru meirihluti landsliðs Íslands sem spilaði í 2. deild A á Heimsmeistaramótinu fljótlega eftir að úrslitaeinvígi liðanna um Íslandsmeistaratitilinn lauk. SR vann það einvígi 3-1 og hampaði því Íslandsbikarnum. Með dómi dómstóls ÍSÍ heldur SR titlinum nema áfrýjunardómstóll ÍSÍ komist að annarri niðurstöðu.

Deildarkeppni eða ekki deildarkeppni?

Málið snýst um það hvort Friðrika Ragna Magnúsdóttir, lykilleikmaður í liði SR og ein af bestu íshokkíkonum landsins, sem tók þátt í þremur af fjórum leikjum úrslitaeinvígisins hafi verið lögleg með liði SR vegna spilamennsku með skólaliði í Kanada. Friðrika Ragna var mætt á svellið í öðrum leik, sem fram fór í Reykjavík 24. mars. SR vann þann leik 2-1 eftir framlengingu og vítakeppni þar sem hún var sú eina sem skoraði í vítakeppninni og tryggði liði sínu sigurinn.

Friðrika Ragna stundaði nám í Kanada og spilaði með íshokkíliði skólans, ASCIS Stallions PREP U19. Deilumálið snýst um það hvort þar sé um að ræða „deildarkeppni“ í skilningi reglugerðar ÍSÍ um félagaskipti (10. grein, d-liður). Málatilbúnaður SA gengur út á að Friðrika Ragna hafi tekið þátt í deildarkeppni í tveimur löndum á sama tímabili án þess að hafa skráð sig til ÍHÍ fyrir 1. febrúar. SR mótmælti þessari túlkun og hélt því fram að Friðrika Ragna hafi eingöngu tekið þátt í sýningarleikjum. 

Í forsendum dómsins er farið yfir hlið beggja aðila málsins:

„Kærandi túlkar hugtakið „deildarkeppni“ vítt og telur að umfang og skipulag leikja FRM með ASCIS Stallions PREP U19 liðinu í Kanada, þar sem leikjafjöldi er mikill og lið raðast eftir árangri í styrkleikatöflu, falli undir þessa skilgreiningu. ... Kærði mótmælir þessari túlkun og vísar til þess að ASCIS Stallions PREP U19 liðið spili ekki í formlegri „deildarkeppni“ sem sé undir regluverki IIHF eða Hockey Canada.“ 

SR lagði meðal annars fram yfirlýsingar frá íþróttastjóra skólans og framkvæmdastjóra NAPHL (North American Prep Hockey League), sem staðfesti að liðið spili eingöngu sýningarleiki og sé ekki hluti af formlegri deildarkeppni eða NAPHL.

Meistari krýndur eða ekki?

Í dómnum er vísað til þess að félagaskiptareglur Alþjóða íshokkísambandsins, IIHF, sem tóku gildi 6. október 2025, sé „Hockey Competition“ skilgreint sem „organized hockey activity that leads to a champion being named“ – skipulögð hokkístarfsemi sem leiðir til þess að meistari er krýndur, í lauslegri þýðingu – og tekið fram að þessi skilgreining styðji málsvörn kærða, SR, þar sem sýnt hafi verið fram á að lið Friðriku Rögnu spili ekki í keppnisumhverfi þar sem meistari sé krýndur. Gögn málsins styðji þá niðurstöðu að þátttaka Friðriku Rögnu hafi ekki verið í formlegri „deildarkeppni“ í skilningi áðurnefnds ákvæðis reglugerðar ÍHÍ um félagaskipti.

Niðurstaða dómstóls ÍSÍ er því, að teknu tilliti til allra gagna málsins, að Friðrika Ragna hafi ekki tekið þátt í „deildarkeppni“ í Kanada. Hún hafi verið og sé leikmaður SR á meðan hún dvaldi í skóla í Kanada. „Þátttaka FRM í leiknum þann 24. mars 2026 var því lögmæt og kærði, íshokkídeild Skautafélags Reykjavíkur, hefur ekki teflt fram ólöglegum leikmanni,“ segir í niðurtöðu dómsins.

Dómurinn í heild á vef ÍSÍ.