KA og Þór hefja leik í Bestu deildinni í dag
Besta deild karla í knattspyrnu, efsta deild Íslandsmótsins, hófst á föstudagskvöldið en Akureyrarfélögin hefja bæði leik í dag. KA-menn taka á móti Stjörnunni á Greifavelli sínum sunnan við KA-heimilið en Þórsarar sækja Valsmenn heim að Hlíðarenda í Reykjavík. Báðir leikirnir hefjast kl. 17.00.
Akureyri á nú tvö lið í efstu deild í níunda skipti og í fyrsta skipti í 24 ár, eða síðan KA og Þór léku bæði í úrvalsdeildinni árið 2002.
KA leikur nú 10. árið í röð í deildinni, sem er besti kafli félagsins frá upphafi. „Áður var KA lengst sex ár í deildinni, frá 1987 til 1992. Liðið náði sínum næstbesta árangri árið 2022 þegar það hafnaði í öðru sæti. Fyrsti bikarmeistaratitillinn leit dagsins ljós eftir frækinn sigur á Víkingi, 3-1, árið 2024. KA er nú að hefja sitt 24. tímabil í efstu deild,“ sagði Víðir Sigurðsson, reyndasti íþróttamaður Íslands, í grein sem akureyri.net birti á föstudaginn.
Víðir sagði ennfremur: „Þór er hins vegar kominn í Bestu deildina á ný eftir ellefu ára dvöl í 1. deildinni, sem er lengsta fjarvera félagsins. Þetta verður átjánda tímabil Þórs í efstu deild en þar hefur félagið leikið lengst átta ár í röð, á árunum 1983 til 1990.“
Eftirfarandi upphitunargreinar hafa birst á akureyri.net síðustu daga:
- Hallgímur Jónasson þjálfari KA:
„Finnst við vera með betri hóp en í fyrra“
- Sigurður Heiðar Höskuldsson þjálfari Þórs:
„Viljum gefa ungum leikmönnum tækifæri“
Komnir og farnir hjá Þór fyrir tímabilið
Komnir og farnir hjá KA fyrir tímabilið
Fjögur norðlensk lið í efstu deild 1988