Fara í efni
Íþróttir

Gerum örugglega margt öðruvísi næst

Aron Birkir Stefánsson, markvörður og fyrirliði Þórs, hefur leikið mjög vel í sumar. Mynd: Skapti Hallgrímsson

„Þetta er dálítið fyndið,“ var það fyrsta sem Aron Birkir Stefánsson markvörður og fyrirliði Þórs sagði við akureyri.net eftir sigur liðsins á FH, 2-1, í lokaumferð Bestu deildar karla í fótbolta á Þróttarvellinum í Reykjavík í dag. Sigur sem tryggði Þór áframhaldandi sæti meðal þeirra bestu og sendi um leið KA niður í 1. deild.

„Í fyrra unnum við deildina og stóðum uppi sem sigurvegarar, einmitt á þessum velli. Í dag unnum við mikilvægan leik hérna á Þróttarvellinum og héldum okkur uppi en það er ótrúlegt hve svipað þetta er – að vinna svona leik á síðasta degi tímabilsins. Það eru því alls konar tilfinningar í gangi,“ sagði Aron Birkir sem hefur verið ein af traustustu stoðum Þórsliðsins í ár og spilaði alla 27 leiki þess í Bestu deildinni þar sem hann skoraði eitt mark eins og frægt er, í heimaleiknum gegn KR.

Hann kvaðst vera sérstaklega ánægður með alla þá stuðningsmenn Þór sem mættu á Þróttarvöllinn en áhorfendur voru tæplega 900 og stór hluti þeirra á bandi Þórs þannig að stemningin var eins og liðið væri á heimavelli.

Ótrúlegt að fá þennan stuðning

„Þetta er eiginlega bara rugl, hvernig þetta fólk mætir á völlinn trekk í trekk. Svona er þetta búið að vera í allt sumar, var líka í fyrra og árið þar á undan og það er ótrúlegt hve vel er mætt á leikina hjá okkur hérna fyrir sunnan. Við eigum mikið af stuðningsfólki og erum heppnir með það. Að norðan komu, held ég, tvær fullar rútur og svo fóru margir á einkabílum, sem eru að fara að keyra aftur heim núna.

Það er ótrúlegt að vera með svona stuðning á þessum velli, manni líður eins og á heimavelli og það er pínulítið fyndið að fá þá tilfinningu að félagið eigi þennan völl eftir að hafa unnið hérna úrslitaleikinn gegn Þrótti í fyrra og svo þennan leik í dag,“ sagði Aron Birkir.

Við viljum bæta í

Þórsliðið var í harðri fallbaráttu allan tímann og Aron sagði að það væri mikil léttir að hafa náð þessu markmiði.

„Það er ógeðslega gott að vita að við verðum áfram í þessari deild á næsta ári. Við höfum lært helling af þessu tímabili og munum örugglega gert marga hluti öðruvísi næst. En svo er maður ekki farinn að hugsa mikið lengra en það. Við kláruðum þetta, núna tekur maður sér smá frí og svo finnum við út hvað við ætlum að laga og bæta. Við ætlum okkur að gera það, við erum ekki bara sáttir með að hafa haldið okkur í deildinni, við viljum bæta í.“

Það var ekki mikið eftir

Einhverjir Þórsarar fengu kuldahroll í góða veðrinu í Laugardalnum þegar Aron settist á völlinn í fyrri hálfleik og bað um aðstoð sjúkrateymisins. Hann hélt samt áfram eins og ekkert hefði í skorist en kvaðst aðspurður hafa verið mjög tæpur í lærinu undanfarnar vikur.

„Það var ekki mikið eftir, ég skal viðurkenna það. Ég fékk högg á lærið í leiknum við KA og svo aftur í leiknum gegn ÍBV. Þetta var svolítið mikið púsl síðustu vikurnar, eftir KA-leikinn var ég mjög slæmur en þetta var aðeins skárra núna í vikunni og ég gat klárað þetta.“

Spurning hvað Svenni segir

Fyrirliðinn er þó samningslaus von bráðar en hefur ekki þungar áhyggjur af því.

„Minn samningur rennur út núna um áramótin en ég er ekkert farinn að hugsa um það. Ég býst við því að vera hérna áfram, vona það alla vega. Spurning hvað Svenni segir!“ sagði Aron Birkir og hló en hann er 27 ára gamall, hefur leikið með Þór samfleytt frá 2016 og leikurinn í dag var hans 199. deildaleikur fyrir félagið.