Yndislegt að fagna með stuðningsmönnunum
Spænski knattspyrnumaðurinn Kevin Vazquez hefur sett svip sinn á Þórsliðið frá því hann kom til Akureyrar í lok júlí og hefur reynst því ákaflega mikilvægur.
Hann sagði við akureyri.net eftir sigurinn mikilvæga gegn FH á Þróttarvellinum í Reykjavík í dag, 2-1, að hann væri hæstánægður með hvernig málin hefðu þróast síðan hann gekk til liðs við Þórsara en þeir tryggðu sér áframhaldandi sæti í Bestu deildinni með þessum sigri og sendu KA niður í 1. deildina.
Þór endaði með 30 stig í 10. sætinu en KA fékk 29 stig í ellefta sæti og féll ásamt ÍBV.
„Þetta er ótrúlegt og það er yndislegt að fagna með þessum frábæru stuðningsmönnum félagsins. Stemningin á vellinum í dag var engu lík. Það er að sjálfsögðu allt öðruvísi að spila fótbolta hérna á Íslandi en á Spáni og tímabilið er ólíkt en ég tel að við höfum náð að spila góðan fótbolta á þessum tíma og það er frábært að hafa náð að halda sætinu í deildinni,” sagði Vazquez sem lék í sex ár með Celta Vigo í efstu deild Spánar, á árunum 2018-2024, og síðan í tvö ár með Sporting Gijon í næstefstu deild áður en hann ákvað að halda á vit ævintýranna á Akureyri.
Aðspurður sagði hann að það væru ágætar líkur á að hann myndi leika áfram með Þórsliðinu á næsta tímabili.
„Já, ég er með samning fyrir næsta ár og býst frekar við því. Ég veit það þó ekki fyrir víst ennþá en ég er ánægður með margt á Akureyri og það er ótrúlegt hversu vel hefur verið stutt við bakið á liðinu þessa síðustu mánuði. Ég er mjög glaður með að vera hérna,“ sagði Kevin Vazquez sem hefur reynst Þórsliðinu dýrmætur sem varnartengiliður en hann lék síðustu 11 leikina í deildinni og Þór fagnaði sigri í sex þeirra.