Fara í efni
Íþróttir

Íshokkí: SA-konur deildarmeistarar

Leikmenn SA fagna að leikslokum í gærkvöld eftir 5-2 sigur á liði SR í Laugardalnum. Deildarmeistaratitillinn og oddaleiksréttur í úrslitaeinviíginu tryggð. Skjáskot úr útsendingu ÍHÍ TV.

Kvennalið Skautafélags Akureyrar í íshokkí tryggði sér í gærkvöld deildarmeistaratitilinn með 5-2 útisigri á liði SR. SA er langefst í deildinni með 36 stig, en SR kemur næst með 17 stig og á fimm leiki eftir, getur því mest farið í 32 stig. Silvía Rán Björgvinsdóttir og hin 14 ára gamla Guðrún Ásta Valentine skoruðu tvö mörk hvor fyrir SA og Amanda Ýr Bjarnadóttir eitt.

Fyrir leikinn var SA langefst í deildinni með 33 stig og átti fjóra leiki eftir, en SR með 17 stig og átti sex leiki eftir. Það var því ljóst að með sigri myndi SA tryggja sér deildarmeistaratitilinn og oddaleiksréttinn í úrslitarimmu um Íslandsmeistaratitilinn, sem löngu er ljóst að verður gegn SR. 

Markalaust var eftir fyrstu lotuna, en SA-konur mun aðgangsharðari en gestgjafanir, áttu 17 markskot á móti fjórum. En strax á upphafsmínútum annarrar lotunnar dró til tíðinda. Eftir tvö mörk á upphafsmínútum annarrar lotunnar höfðu SA-konur leikinn nokkuð í hendi sér, en SR-ingar náðu að bíta frá sér í lokin. Það dugði þó ekki og SA tók öll stigin.

SR - SA 2-5 (0-0, 1-3, 1-2)

  • 0-1 Silvía Rán Björgvinsdóttir (21:39). Stoðsending: Sveindís Mary Sveinsdóttir.
    Sóknarþunginn bar loks árangur eftir tæplega tveggja mínútna leik í annarri lotunni þegar Silvía Rán lék skemmtilega innan um varnarmenn SR og skaut upp í markhornið. Mögulega mátti markvörður SR gera betur, en markið engu að síður fallegt.
  • 0-2 - Amanda Ýr Bjarnadóttir (24:53). Stoðsending: Silvía Rán Björgvinsdóttir.
    Ekki leið á löngu þar til annað mark SA leit dagsins ljós þegar Amanda Ýr Bjarnadóttir komst ein inn fyrir vörn SR eftir sendingu frá Silvíu Rán og afgreiddi pökkinn af öryggi í netið.
  • 0-3 - Silvía Rán Björgvinsdóttir (31:03). Stoðsending: Magdalena Sulova.
    SA-konur höfðu leikinn nokkuð í hendi sér þó svo SR hafi fengið sín færi. Ógnunin mun meiri frá þeim rauðu og þegar leið á aðra lotuna skoraði Silvía Rán sitt annað mark og þriðja mark SA eftir að hún fékk sendingu út til vinstri frá Magdalenu og fór svo skemmtilega framhjá varnarmönnum og átti skot sem var hálfvarið, pökkurinn fór upp i loft og datt fyrir aftan markvörðinn.
  • 1-3 - Ragnhildur Kjartansdóttir (39:05). 
    SR-ingar eygðu smá von fyrir lokalotuna eftir að Ragnhildur minnkaði muninn í tvö mörk á lokamínútu annarrar lotunnar. SR-ingar voru þá einni fleiri eftir refsingu á SA. Eftir þvögu fyrir framan mark SA barst pökkurinn út til Ragnhildar sem lyfti honum í gegnum þvöguna og framhjá Shawlee í markinu.
  • 1-4 - Guðrún Ásta Valentine (49:11). Stoðsending: Magdalena Sulova.
    Fyrri hluta síðustu lotunnar var hart barist um það hvoru liðinu tækist að ná inn næsta marki, mikilvægt fyrir SR að minnka muninn, en að sama skapi mikilvægt fyrir SA að slíta sig lengra frá gestgjöfunum. Þegar þriðja lotan var hálfnuð kom svarið, hin 14 ára Guðrún Ásta Valentine skoraði fjórða mark SA þegar þær voru einum fleiri og nýttu sér það vel til að skapa færi sem Guðrún Ásta kláraði vel.
  • 2-4 - Gunnborg Petra Jóhannsdóttir (50:30). Stoðsending: Ragnhildur Kjartansdóttir.
    Það leið þó ekki nema tæp ein og half mínúta þegar SR svaraði um hæl, Gunnborg Petra fékk þá pökkinn fyrir framan markið frá Ragnhildi, náði að snúa og koma pökknum í markið. 
  • 2-5 - Guðrún Ásta Valentine (55:55). Stoðsending: Kolbrún Björnsdóttir.
    SR-ingar náðu góðum kafla um og eftir annað markið og sóttu fast að marki SA. Ein sóknin endaði þó með því að Kolbrún og Guðrún Ásta komust í hraða sókn, Kolbrún með sendingu á Guðrúnu Ástu sem var ein á móti markverði og kláraði vel. Má segja að hún hafi klárað leikinn með fimmta marki liðsins, munurinn þrjú mörk og rétt rúmar fjórar mínútur eftir.

Guðrún Ásta Valentine klárar dæmið með öðru marki sínu í leiknum og fimmta marki SA eftir sendingu frá Kolbrúnu Björnsdóttur. Skjáskot úr útsendingu ÍHÍ TV.

Það voru ekki aðeins útileikmenn SA sem voru beittari og aðgangsharðari en gestgjafarnir. Shawlee Gaudreault varði vel í marki SA að venju þó skotin sem SR náði hafi ekki verið mörg. Þetta var þó í fyrsta skipti í viðureignum þessara liða á leiktíðinni sem SR tekst að skora oftar en einu sinni, sem segir ef til vill alla söguna um yfirburði SA í deildinni í vetur.

Helstu tölur:

SR

Mörk/stoðsendingar: Ragnhildur Kjartansdóttir 1/1, Gunnborg Petra Jóhannsdóttir 1/0.
Varin skot: Julianna Thomson 23 skot af 28 (82,1%).
Refsingar: 8 mínútur.

SA

Mörk/stoðsendingar: Silvía Rán Björgvinsdóttir 2/1, Guðrún Ásta Valentine 2/0, Amanda Ýr Bjarnadóttir 1/0, Magdalena Sulova 0/2, Sveindís Sveinsdóttir 0/1, Kolbrún Björnsdóttir 0/1.
Varin skot: Shawlee Gaudreault 10 af 12 (83,3%).
Refsingar: 8 mínútur.

Atvikalýsing

Staðan í deildinni