Fara í efni
Íþróttir

Hafdís önnur, Harpa vann B – MYNDIR

Bríet Kristý Gunnarsdóttir úr Tindi fagnar sigri í A-flokki kvenna. Sekúndubrrotum á eftir henni (fjær) eru Hafdís Sigurðardóttir úr Hjólreiðafélagi Akureyrar, sem varð önnur, og Sara Árnadóttir úr Hjólreiðafélagi Reykjavíkur. Mynd: Ármann Hinrik.

Hafdís Sigurðardóttir úr Hjólreiðafélagi Akureyrar (HFA) var aðeins rúmum fimmtung úr sekúndu frá því að vinna annan Íslandsmeistaratitil sinn í þessari viku þegar Íslandsmeistaramót í götuhjólreiðum fór fram í Svarfaðardal í dag. Harpa Mjöll Hermannsdóttir vann B-flokk kvenna.

Keppnin í A-flokki kvenna var hnífjöfn og munaði aðeins sekúndubrotum á fyrstu þremur keppendunum. Hafdís kom í mark á 3:24:35,66 klukkustundum, en Bríet Kristý Gunnarsdóttir úr Tindi var 0,23 sekúndum á undan henni í mark. Sara Árnadóttir úr Hjólreiðafélagi Reykjavíkur var síðan aðeins 0,05 sekúndum á eftir Hafdísi. 

Þarna eru 117 kílómetrar að baki og endaspretturinn í A-flokki kvenna í algleymingi. Bríet Kristý Gunnarsdóttir úr Tindi fyrst, þá Hafdís Sigurðardóttir úr HFA (í rauðu) og Sara Árnadóttir úr HFR. Aðeins munaði 0,28 sekúndum á keppendunum í fyrsta og þriðja sætinu. Mynd: Ármann Hinrik.

Harpa Mjöll Hermannsdóttir úr Hjólreiðafélagi Akureyrar vann B-flokk kvenna og varð tveimur sekúndum á undan öðrum keppanda úr HFA, Þórdísi Rósu Sigurðardóttur, móður Hafdísar.

Hjólreiðafélag Akureyrar átti sex keppendur í dag. Árangur þeirra var sem hér segir:

  • A-flokkur kvenna, 117 km
    2. sæti: Hafdís Sigurðardóttir – 3:24:35,66 – 0,23 sekúndum á eftir sigurvegara
    Silja Jóhannesdóttir og Sóley Kjerúlf Svansdóttir luku ekki keppni
  • B-flokkur kvenna, 70 km
    1. sæti: Harpa Mjöll Hermannsdóttir – 2:28:15,58 – 2 sekúndum á undan næsta keppanda
    2. sæti: Þórdís Rósa Sigurðardóttir – 2:28:17,58
  • B-flokkur karla, 92 km
    6. sæti: Bjarni Jónasson – 2:39:25,05 – 8:39 mínútum á eftir sigurvegara

Harpa Mjöll Hermannsdóttir og Þórdís Rósa Sigurðardóttir, báðar úr Hjólreiðafélagi Akureyrar, kepptu í B-flokki, hjóluðu 70 kílómetra og þegar í mark var komið varð Harpa Mjöll tveimur sekúndum á undan. Mynd: Ármann Hinrik.

Sigurvegarar í einstökum flokkum

  • Konur
    A-flokkur, 117 km:
    Bríet Kristý Gunnarsdóttir, Tindi – 3:24:35,43 – 0,23 sek. á undan næsta keppanda
    B-flokkur, 70 km: Harpa Mjöll Hermannsdóttir, Hjólreiðafélagi Akureyrar – 2:28:15,58 – 2 sek. á undan næsta
    U17 flokkur, 46 km: Friðrika Rún Þorsteinsdóttir, Hjólreiðafélagi Reykjavíkur – 1:48:29,20 – 3:18 mín. á undan næsta
  • Karlar
    A-flokkur, 140 km: Davíð Jónsson, Hjólreiðafélagi Reykjavíkur – 3:22:07,78 – 18 sek. á undan næsta
    B-flokkur, 92 km: Páll Snorrason, Tindi – 2:30:46,06 – 0,7 sek. á undan næsta
    Junior, 92 km: Einar Valur Bjarnason, Hjólreiðafélagi Reykjavíkur, 2:30:47,38 – 8,89 sek. á undan næsta
    U13 flokkur: Matthías Árni Jónsson, Tindi – 58:25,91 mínútur

Öll úrslit má finna á vefnum timataka.net.

Ármann Hinrik var sem fyrr á ferð með myndavél og linsur að vopni og má sjá afraksturinn í albúmi hér að neðan.