Fara í efni
Íþróttir

Hafdís meistari í 5. sinn í röð – MYNDIR

Hafdís Sigurðardóttir í tímatökukeppninni í gær. Mynd: Ármann Hinrik.

Hafdís Sigurðardóttir úr Hjólreiðafélagi Akureyrar (HFA) varð í gær Íslandsmeistari í tímatöku í hjólreiðum í fimmta sinn í röð. Keppnin fór fram í Eyjafjarðarsveit, upphaf og endir var við Botnsreit.

Hafdís hefur í mörg ár verið fremsta hjólreiðakona landsins og unnið fjölmarga titla. Hún getur enn bætt í safnið um helgina því keppt verður í götuhjólreiðum í Svarfaðardal á morgun, laugardag, og í criterium á Akureyri á sunnudag. Auk Hafdísar keppti Silja Jóhannesdóttir úr Hjólreiðafélagi Akureyrar í A-flokki kvenna og endaði í 4. sæti. Þess má geta að sonur Hafdísar, Aron Breki Haraldsson, vann U11 flokkinn, og dóttir Silju, Júlía Björg Jóhannsdóttir, vann U13 flokkinn.

Hafdís hjólaði brautina á 44:48,80 mínútum, sem er 56 sekúndum betri tími en hjá næsta keppanda. Þá vann Rögnvaldur Már Helgason úr Hjólreiðafélagi Akureyrar B-flokk karla. Rögnvaldur hjólaði brautina á 29:49,16 mínútum, eða einni mínútu og sex sekúndum betri tíma en næsti keppandi. 

Júlía Björg Jóhannsdóttir úr HFA í tímatökukeppninni í gær. Hún vann U13 flokk kvenna. Móðir hennar, Silja Jóhannesdóttir, varð í 4. sæti í A-flokki (Elite). Mynd: Ármann Hinrik.

Aron Breki Haraldsson úr HFA í tímatökukeppninni í gær. Hann hjólar hér ásamt ömmu sinni, Þórdísi Rósu Sigurðardóttur. Aron Breki er sonur Hafdísar Sigurðardóttur, margfalds Íslandsmeistara í hjólreiðum, og Þórdís Rósa er móðir hennar. Þar sem ekki var keppt í lokaðri braut fylgdi Þórdís dóttursyninum í keppninni. Mynd: Ármann Hinrik.

Árangur keppenda frá Hjólreiðafélagi Akureyrar:

  • A-flokkur kvenna (Elite)
    1. Hafdís Sigurðardóttir
    4. Silja Jóhannesdóttir
  • B-flokkur kvenna
    4. sæti: Harpa Mjöll Hermannsdóttir
  • B-flokkur karla
    1. sæti: Rögnvaldur Már Helgason
    9. sæti: Ómar Örn Gunnarsson
  • Konur, U17
    3. Regína Diljá Rögnvaldsdóttir
  • Konur, U13
    1. sæti: Júlía Björg Jóhannsdóttir
  • Karlar, U11
    1. sæti: Aron Breki Haraldsson

Sigurvegarar í einstökum flokkum:

  • Konur
    A-flokkur (Elite): Hafdís Sigurðardóttir, Hjólreiðafélagi Akureyrar
    B-flokkur: Bjarkey Jónasdóttir, Ægi3
    Junior, 17-18 ára: Friðrika Rún Þorsteinsdóttir, Hjólreiðafélagi Reykjavíkur
    U17: Áslaug Yngvadóttir, Hjólreiðafélagi Reykjavíkur
    U13: Júlía Björg Jóhannsdóttir, Hjólreiðafélagi Akureyrar
  • Karlar
    A-flokkur (Elite): Davíð Jónsson, Hjólreiðafélagi Reykjavíkur
    B-flokkur: Jovan Kujundzic, Tindi
    Junior, 17-18 ára: Sólon Kári Sölvason, Hjólreiðafélagi Reykjavíkur
    U17: Þorvaldur Atli Björgvinsson, Hjólreiðafélagi Reykjavíkur
    U15: Nói Kristínarson, Hjólreiðafélagi Reykjavíkur
    U13: Matthías Árni Jónsson, Tindi
    U11: Aron Breki Haraldsson, Hjólreiðafélagi Akureyrar

Allar upplýsingar um úrslit í keppninni má finna í í frétt á vef Hjólreiðasambandsins og á timataka.is.

Ármann Hinrik brá sér fram í sveit og sat fyrir hjólreiðafólkinu með myndavél og linsu að vopni.