Hafdís Íslandsmeistari fjórða árið í röð

Hafdís Sigurðardóttir úr Hjólreiðafélagi Akureyrar varð í gær Íslandsmeistarí í tímatöku, í Elite-flokki, eins og flokkur þeirra bestu heitir í Íslandsmótinu. Keppnin fór fram í Hvalfirði. Regína Diljá Rögnvaldsdóttir vann keppnina í U15 flokki kvenna og Rögnvaldur Már Helgason varð annar í B-flokki karla, en þau keppa fæði fyrir hönd HFA eins og Hafdís.
Þetta er fjórða árið í röð sem Hafdís vinnur þennan Íslandsmeistaratitil. „Brosi hringinn eftir gott effort á hjólinu í kvöld,“ skrifaði Hafdís á Facebook-síðu sína þegar sigurinn var í höfn. Þar segir hún einnig að tilfinningin sé alltaf jafn góð.
Hafdís fær svo tækifæri til að bæta enn einum titlinum í safnið á morgun þegar keppt verður í götuhjólreiðum. Hjólreiðafélag Akureyrar á þar átta keppendur, þar af þrjár í Elite-flokki kvenna, en auk Hafdísar keppa þar Silja Jóhannesdóttir og Sóley Kjerúlf Svansdóttir í þeim flokki.
Keppnin fer fram í Kjósinni og hjólað í kringum Meðalfell. Rásmark verður við Félagsgarð á Hvalfjarðarvegi og hjólað réttsælis um Kjósarskarðsveg, að vegamótum á Meðalfellsvegi, niður á Hvalfjarðarveg og komið í mark við Félagsgarð. Konurnar í Elite-flokknum hjóla fimm hringi, samtals 114 kílómetra. Fyrsta ræsing í keppninni á morgun verður kl. 10.
Önnur úrslit í tímatöku í gær voru eftirfarandi, samkvæmt vef Hjólreiðasambands Íslands.
A-flokkur, konur
1. Hafdís Sigurðardóttir - HFA
2. Bríet Kristý Gunnarsdóttir - Tindur
3. Sara Árnadóttir - HFR
A-flokkur, karlar
1. Ingvar Ómarsson - Breiðablik
2. Davíð Jónsson - HFR
3. Þorsteinn Bárðarsson - Tindur
Yngri flokkar
Junior kvenna
1. Hekla Henningsdóttir - HFR
2. Eyrún Birna Bragadóttir - HFR
Junior karla
1. Sólon Kári Sölvason - BFH
2. Róbert Ægir Friðbertsson - Bjartur
3. Einar Valur Bjarnason - HFR
U17 kvenna
1. Hekla Henningsdóttir - HFR
U17 karla
1. Hrafnkell Steinarr Ingvason - HFR
2. Þorvaldur Atli Björgvinsson - HFR
U15 kvenna
1. Regína Diljá Rögnvaldsdóttir - HFA
U15 karla
1. Nói Kristínarson - HFR
Önnur úrslit
B-flokkur kvenna
1. Iðunn Björg Arnaldsdóttir - HFR
2. Heiða Ósk Guðmundsdóttir - Breiðablik
3. Berglind Heiða Árnadóttir - Breiðablik
B-flokkur karla
1. Pétur Árnason - Tindur
2. Rögnvaldur Már Helgason - HFA
3. Jón Arnar Sigurjónsson - Tindur